Tindastóll sópaði Keflvíkingum í sumarfrí 3-0 og Njarðvíkingar töpuðu 3-1 á móti Álftanesi en fjórði leikurinn fór fram í gærkvöldi.
Í fyrsta sinn í sex ár vinnur því hvorugt Reykjanesbæjarliðið einvígi í úrslitakeppninni en það gerðist síðast 2019.
Þetta er 41. úrslitakeppnin frá upphafi (byrjaði 1984) og í aðeins fimm þeirra (2012, 2013, 2018, 2019, 2025) hefur hvorki Keflavík né Njarðvík náð að vinna einvígi.
Reykjanesbæjarliðin unnu aðeins einn af sjö leikjum sínum í úrslitakeppninni í ár og það gerir bara fjórtán prósent sigurhlutfall.
Þetta er versta samanlagt sigurhlutfall Keflavíkur og Njarðvíkur í einni úrslitakeppni í fjögurra áratuga sögu úrslitakeppninnar.
Það fylgir þó sögunni að kvennalið félaganna eru heldur betur að halda uppi nafni sina félaga í úrslitakeppninni í ár enda bæði komin alla leið í undanúrslitin í Bónus deild kvenna. Keflavík vann Tindastól 3-0 og Njarðvík vann 3-0 sigur á Stjörnunni. Kvennaliðin eru því enn ósigruð í úrslitakeppninni í ár.
- Verstu úrslitakeppnirnar í sögu Reykjanesbæjar (Keflavík+Njarðvík)
- 14% sigurhlufall - 2025 (1 sigur - 6 töp)
- 20% - 2012 (1-4)
- 25% - 2019 (2-6)
- 25% - 2018 (2-6)
- 33% - 2013 (2-4)
- 40% - 2009 (2-5)
- -
- Reykjanesbæjarliðin í síðustu tíu úrslitakeppnum
- 2025: 1 sigur - 6 töp (14% sigurhlutfall)
- 2024: 10 sigrar - -9 töp (53%)
- 2023: 5 sigrar - 6 töp (45%)
- 2022: 6 sigrar - 6 töp (50%)
- 2021: 7 sigrar - - 3 töp (70%)
- 2019: 2 sigrar - 6 töp (25%)
- 2018: 2 sigrar - 6 töp (25%)
- 2017: 4 sigrar - 4 töp (50%)
- 2016: 6 sigrar - 8 töp (43%)
- 2015: 7 sigrar - 8 töp (47%)