Lífið

Á­horf­endur djúpt snortnir á for­sýningu Stóru stundarinnar

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Stemmingin á forsýningu fyrsta þáttar Stóru stundarinnar í Smárabíó var ansi góð.
Stemmingin á forsýningu fyrsta þáttar Stóru stundarinnar í Smárabíó var ansi góð. Vísir/Hulda Margrét

Fyrsti þáttur af Stóru stundinni á Stöð 2 verður frumsýndur í kvöld klukkan 19 en í þeim fylgir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir eftir viðmælendum í aðdraganda stærstu augnablika lífs þeirra. Í fyrsta þætti, sem verður í opinni dagskrá, fá áhorfendur að fylgjast með fæðingu barns.

Á dögunum var haldin sérstök forsýning í Smárabíói á fyrsta þættinum fyrir tökulið, viðmælendur og aðra góða gesti, en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var þar afar góðmennt.

Leikstjórinn Lúðvík Páll Lúðvíksson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir eru á bakvið Stóru stundina.Vísir/Hulda Margrét

Þáttaröðin verður sú síðasta sem birtist á skjánum í umsjón Sigrúnar Óskar, að minnsta kosti í bili, því hún sagði upp störfum í byrjun árs og hyggst nú snúa sér að öðru.

„Því fylgja óneitanlega blendnar tilfinningar eftir rúmlega sextán ára starf, en ég er mjög stolt af þessari þáttaröð og finnst gaman að enda þetta á að gefa fólki einstaka innsýn í líf annarra. Ég fæ kannski að nýta tækifærið hér og þakka viðmælendum innilega fyrir traustið - og líka Lúlla fyrir að þola mig í ferlinu, segir Sigrún og hlær, en leikstjóri og framleiðandi þáttanna er Lúðvík Páll Lúðvíksson.

Sem fyrr segir fjallar fyrsti þátturinn um fæðingu barns, en hinir um brúðkaup, erfiðustu kokkakeppni í heimi og þátttöku elsta keppanda sögunnar í Ungfrú Ísland.

Hér fyrir neðan má svo sjá myndir frá forsýningunni:

Hrafnhildur, tvíburasystir Smára sem er í aðalhlutverki í þættinum, með foreldrum þeirra, Eygló og Kristni.Vísir/Hulda Margrét
Halldór Björnsson og Sigurjóna Scheving, afi og amma Anítu Rósar, sem er í aðalhlutverki í þættinum.Vísir/Hulda Margrét
Hákon Sverrisson myndatökumaður og Sandra Rós Bjarnadóttir.Vísir/Hulda Margrét
Ása Valgerður Eiríksdóttir og Gerður Yrja Ólafsdóttir stilltu sér upp.Vísir/Hulda Margrét
Menn brostu misbreitt fyrir myndavélarnar. Garpur og Hákon Logi sýndu tennur en Jón Grétar og Friðjón slepptu því.Vísir/Hulda Margrét
Helga Hauksdóttir framleiðandi, Katla Marín Þormarsdóttir dagskrárfulltrúi og Þórunn Elva Þorgeirsdóttir aðstoðarframleiðandi skemmtu sér vel.Vísir/Hulda Margrét
Öfluga markaðsdeildin á Sýn mætti að sjálfsögðu.Vísir/Hulda Margrét





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.