Erlent

Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum

Samúel Karl Ólason skrifar
James Comey árið 2018.
James Comey árið 2018. EPA/MICHAEL REYNOLDS

James B. Comey, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) hefur verið sakaður um að kalla eftir því að Donald Trump, forseti, verði myrtur. Yfirmaður leyniþjónustumála segir að Comey ætti að vera í fangelsi en ásakanirnar eru til komnar vegna myndar af skeljum sem Comey birti á Instagram í gær, fimmtudag.

Comey er nú til rannsóknar hjá heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna og lífvörðum forsetans vegna myndbirtingarinnar. Kash Patel, núverandi yfirmaður FBI hefur heitið því að stofnunin muni styðja rannsóknina, samkvæmt frétt Washington Post.

Mynd þessi sýnir skeljar sem búið var að raða upp í sandi svo þær mynduðu „86 47“. Með myndinni skrifaði Comey: „Flottar skeljar í göngutúrnum mínum.“.

Þessa mynd hafa stuðningsmenn Trumps túlkað sem ákall eftir ofbeldi gegn forsetanum.

Myndin sem James Comey birti á Instagram.

Donald Trump er 45. og 47. forseti Bandaríkjanna, en talan 86 hefur af stuðningsmönnum Trumps verið túlkuð sem ákall eftir því að hann verði myrtur.

Uppruna þessarar túlkunar má rekja til þess að 86 var notað í þjónustugeiranum um viðskiptavini sem neita átti um þjónustu, vísa á brott eða fjarlæga frá tilteknum stöðum, samkvæmt orðabók Mirriam Webster. Í seinni tíð hefur það að „86a einhvern“ verið notað, en þó sjaldan, um það að myrða fólk.

Oftast er 86 þó notað í því samhengi að losna við einhvern.

Comey tók færsluna út og birti aðra þar sem hann sagðist hafa talið að skeljarnar væru pólitísk skilaboð en hann hefði ekki áttað sig á því að fólk tengdi þessar tölur við ofbeldi. Því hafi hann fjarlægt færsluna.

Kristi L. Noem, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna, sakaði Comey í gær um að kalla eftir því að Trump yrði myrtur. Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, lýsti því svo yfir í viðtali á Fox News í gær að Comey ætti að vera í fangelsi vegna myndbirtingarinnar.

James Blair, starfsmaður Trumps í Hvíta húsinu, setti mynd Comey í samhengi við ferðalag forsetans um Mið-Austurlönd. Sakaði hann Comey um að senda út ákall til hryðjuverkahópa og óvineittra ríkja um að myrða Trump á ferðalaginu.

Trump yngri, sonur forsetans, hefur sömuleiðis sakað Comey um að kalla eftir því að Trump verði myrtur.

Hefur lengi verið illa við Comey

Trump hefur lengi haft horn í síðu Comeys og hann hefur um árabil verið fyrirlitinn af Trump-liðum. Forsetinn rak Comey árið 2017, þegar FBI var að rannsaka afskipti Rússa af forsetakosningunum 2016 og meinta aðkomu framboðs Trupms af þeim afskiptum.

Trump var einnig reiður út í Comey fyrir að rannsaka ekki Hillary Clinton, mótframbjóðanda hans árið 2016, fyrir hina ýmsu glæpi sem Trump hefur sakað hana um og þá sérstaklega notkun hennar á einkavefþjóni fyrir opinbera tölvupósta. Trump hefur eins og frægt er lengi haldið því fram að hún hefði átt að fara í fangelsi vegna þessa.

Donald Trupm í herstöð Bandaríkjanna í Katar.AP/Alex Brandon

Árið 2018 gaf Comey út bók og reiddist Trump honum verulega vegna hennar. Þá kallaði Trump Comey eðal annars slímugan, óþokka, útsmoginn og heimskan.

Sjá einnig: Bandaríkjaforseti fer af hjörunum vegna bókar Comey

Sjálfur hefur Trump ítrekað í gegnum árin verið sakaður um að kalla eftir ofbeldi gegn andstæðingum hans og óvinum og hefur hann jafnvel sagt það berum orðum.

Hann hefur til að mynda sakað Comey um landráð, en hægt er að refsa fyrir landráð með dauðarefsingu. Hann hefur kallað eftir aftöku Mark A. Milley, fyrrverandi formanns herforingjaráðs Bandaríkjanna, og gefið í skyn að Liz Cheny, fyrrverandi þingkona Repúblikanaflokksins, ætti að mæta aftökusveit.

Á síðustu dögum hans í embætti náðaði Joe Biden þau tvö, auk annarra, með því markmiði að Trump reyndi ekki að refsa þeim.

Í kosningabaráttunni 2016 sagði Trump á fundi að ef Hillary Clinton yrðu kjörinn forseti og fengi að skipa dómara í embætti í Bandaríkjunum, yrði ekkert hægt að gera. Byssueigendur gætu þó mögulega gert eitthvað.


Tengdar fréttir

Sakamálarannsóknin sneri að Trump sjálfum

Sérstakur rannsakandi sem William Barr, dómsmálaráðherra Donalds Trumps, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, rannsakaði Trump sjálfan um tíma.

Trump-liðar kvarta undan „vopnvæðingu“ dómsmálaráðuneytisins

Rannsakendur Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) gerðu í gær húsleit í Mar-a-Lago sveitaklúbbinum í Flórída en Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, býr þar. Fjölmiðlar vestanhafs segja útlit fyrir að atlagan, sem stóð yfir frá morgni til kvölds í gær, tengist meðhöndlun Trumps og starfsmanna hans á opinberum og leynilegum gögnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×