Handbolti

„Það er kúnst að leggja þetta til hliðar og byrja að fókusa“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Elín Rósa varð Evrópubikarmeistari með Val síðasta laugardag og hefur leik í úrslitakeppninni gegn Haukum í kvöld.
Elín Rósa varð Evrópubikarmeistari með Val síðasta laugardag og hefur leik í úrslitakeppninni gegn Haukum í kvöld. vísir / anton brink

Elín Rósa Magnúsdóttir var enn að jafna sig eftir að hafa lyft Evrópubikarnum þegar blaðamaður náði af henni tali í dag, fyrir úrslitaeinvígið gegn Haukum sem hefst í kvöld. Elín segir það krefjast kúnstar, en liðið sé gott í, að leggja Evrópubikarævintýrið til hliðar og einbeita sér að næsta verkefni.

Lítill tími gefst milli leikja, aðeins þrír dagar. Valskonur fögnuðu sigrinum vel síðasta laugardag og hafa eytt síðustu tveimur dögum í endurheimt.

„Við tókum frí á sunnudaginn og æfðum létt í gær, tókum fund og æfingu. Skipulögðum okkar og erum bara klárar í þetta.“

Hápunktur tímabilsins að baki

Evrópubikarinn er mesta afrek í sögu íslensks kvennahandbolta, en baráttan um Íslandsmeistaratitilinn er eftir.

„Þetta er mjög sérstakt. Að vera mjög hátt uppi ennþá í gær og þurfa bara að hætta því. Maður þarf bara að stoppa. Það er mjög erfitt, en við erum góðar í að halda fókus á mikilvægasta verkefnið hverju sinni og nú eru það Haukar.“

Reynir á andlegu hliðina

Þó liðið sé gott í því að halda fókus segir Elín það sannarlega reyna á hausinn, andlegu hliðina.

„Maður er ennþá að fá sendar myndir og allt það. Ennþá verið að tala um þetta í kringum mann. Þannig að það er kúnst að leggja þetta til hliðar og byrja að fókusa á næsta verkefni.“

Evrópubikarinn gefur ekkert í úrslitaeinvíginu

Þá var fókusinn færður á úrslitaeinvígið sjálft, sem hefst á Hlíðarenda klukkan hálf átta í kvöld. Liðin mættust einnig í úrslitum í fyrra, þar sem Valur vann einvígið 3-0. Á þessu tímabili mættust liðin þrisvar, Valur vann tvo leiki á heimavelli en tapaði leiknum á Ásvöllum.

„Þetta er frábært lið og verður ekkert auðveldara þó við séum orðnar Evrópubikarmeistarar. Það skiptir engu máli í þessu samhengi. Frábært Haukalið með frábæra leikmenn og við munum þurfa að setja allt í þetta til þess að eiga möguleika.“

Elín var að lokum spurð út í stuðninginn sem liðið fékk síðasta laugardag og hvort hún ætti von á því að hann myndi haldast í úrslitaeinvíginu.

„Það verður bara að koma í ljós. Við þurfum á góðum stuðningi að halda, ekki bara í Evrópubikarnum. Það er nóg um að vera þegar þú ert Valsari, karlarnir líka í úrslitaeinvíginu, en við þurfum áfram góðan stuðning og ég vona að það verði þannig í kvöld“ sagði Elín Rósa að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×