Enski boltinn

Ætlar að biðja stuðningsmennina af­sökunar eftir lokaleikinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ruben Amorim á hliðarlínunni í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Ruben Amorim á hliðarlínunni í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. getty/Giuseppe Maffia

Ruben Amorim, knattspyrnustjóri Manchester United, ætlar að biðja stuðningsmenn liðsins afsökunar eftir lokaleik þess í ensku úrvalsdeildinni í dag.

United tekur á móti Aston Villa í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Villa er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti á meðan United er í 16. sæti deildarinnar. Á miðvikudaginn tapaði liðið fyrir Tottenham, 1-0, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Þrátt fyrir afleitt gengi í vetur ætlar Amorim að ávarpa stuðningsmenn United eftir leikinn á Old Trafford í dag.

„Þetta verður afsökunarbeiðni. Ég held að það sé ljóst. Ég hef ekki tíma fyrir útskýringu,“ sagði Amorim.

„Ég verð heiðarlegur við stuðningsmennina og segi það sem mér býr í brjósti og það kemur frá hjartanu.“

Amorim tók við United í nóvember á síðasta ári eftir að hafa gert góða hluti með Sporting í Portúgal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×