Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 11. júní 2025 18:46 Valskonur fagna. Vísir/Hulda Margrét Eftir afar dapurt gengi í Bestu deild kvenna í fótbolta á Valur enn möguleika á að verja titil sinn í Mjólkurbikarnum. Valskonur urðu fyrsta liðið til að leggja Þrótt að velli í sumar og eru komnar í undanúrslit. Fyrsta mark leiksins kom á 21. mínútu þegar Fanndís Friðriksdóttir átti frábæra fyrirgjöf á Ragnheiði Þórunni Jónsdóttir sem kláraði laglega með vinstra fæti í hægra hornið. Þróttarar virtust hafa jafnað leikinn fjórum mínútum síðar þegar Unnur Dóra tók frákast eftir að skalli Jelenu Tinnu fór í stöngina eftir hornspyrnu. Markið var hins vegar dæmt ógilt vegna rangstöðu. Valskonur komust einnig í gott færi á 33. mínútu þegar Nadía Atladóttir skoraði en það mark var einnig dæmt af vegna rangstöðu. Þróttur sótti stíft undir lok fyrri hálfleiks og áttu nokkur skot að marki, en markvörður Vals, Tinna Brá, hafði lítið fyrir því að verjast. Í síðari hálfleik færðu Þróttarar sig ofar á völlinn og settu pressu á Valskonur. Það skilaði marki á 67. mínútu þegar Caroline Murray komst upp hægri kantinn, lék framhjá Bryndísi Eiríksdóttur og sendi boltann fyrir markið þar sem Freyja Karín Þorvarðardóttir var mætt og skoraði. Þróttur hélt áfram að sækja en tókst ekki að nýta færin sem sköpuðust. Það voru svo Valskonur sem kláruðu leikinn þegar Nadía Atladóttir skoraði sigurmarkið á 85. mínútu eftir góða fyrirgjöf frá Elísu Viðarsdóttir Valskonur halda því áfram og eru komnar í undanúrslit Mjólkurbikarsins. Atvik leiksins Þegar Óli Kristjáns ákvað að láta vallarstarfsmann eða sjálfboðaliða heyra það fyrir að kasta ekki boltanum áfram þegar Þróttarar áttu innkast, hann fékk svo að sjálfsögðu tiltal frá Helga Mikael dómara leiksins. Stjörnur og skúrkar Tinna Brá Magnúsdóttir var virkilega örugg í markinu hjá Val og hafði nóg að gera. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir var öflug hjá Valskonum og Nadía Atladóttir með frábæra afgreiðslu í seinna marki Valskvenna. Katie Cousins og Þórdís Elva Ágústsdóttir voru frábærar hjá Þrótti. Katie Cousins var frábær með boltann og stjórnaði miðjunni algjörlega. Þórdís Elva átti svo þó nokkur skot og var flott í sóknarleiknum en ekkert af skotunum rataði í markið. Stemning og umgjörð Fín stemning, nokkuð góð mæting á leikinn og heyrðist vel í stuðningsmönnum. Það er ágætis umgjörð hérna á Hlíðarenda en það er gjörsamlega galið að það er opið úr blaðamanna stúkunni í innanhúss salinn, þú getur ímyndað þér að horfa á fótboltaleik en hlusta á körfuboltaleik. Dómarar Helgi Mikael Jónasson, Arnþór Helgi Gíslason og Óliver Thanh Tung Vú dæmdu leikinn hér í kvöld. Engin vafamál, engin sérstök atvik og leikurinn fékk að flæða vel. Ragnheiður Þórunn: Við þurftum að hafa gaman að því að verjast Ragnheiður Þórunn (t.v.).Vísir / Hulda Margrét Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir átti frábæran leik fyrir Valskonur og skoraði meðal annars fyrsta mark leiksins. „Úrslitin leggjast mjög vel í mig, þetta var mjög sætt sérstaklega á móti toppliðinu í Bestu deildinni. Það var líka gott að koma sér aðeins úr þessum dal sem við erum búnar að vera í.“ „Mér fannst frammistaðan og liðsheildin mjög góð í kvöld. Við vissum að við myndum liggja niðri en við vorum þolinmóðar og þurftum bara að hafa gaman að því að verjast.“ Kristján Guðmundsson: Varnarleikurinn eins og við lögðum upp með Kristján, á Hlíðarenda, er hann þjálfaði Stjörnuna.Vísir/Hulda Margrét „Frammistaðan var góð og varnarleikurinn var heilt yfir góður og eins og við lögðum upp með. Við þjöppuðumst reyndar alltof aftarlega í seinni hálfleik vegna þess að sóknarleikurinn varð ekki til þar að segja hann gekk ekki upp. Sóknarleikurinn í fyrri hálfleik gekk ágætlega upp, þar skoruðum við mark og sköpuðum færi, en við eigum ekki færi í seinni hálfleik fyrr en við skorum úr skyndisókn.“ „Frammistaðan í leikjunum undanfarið hefur verið þannig að við eigum að vera búin að fá meira út úr þeim en það hefur ekki dottið með okkur. Eins og núna þá erum við í jöfnum leik og skorum úr skyndisókn og náum að halda það út og vinnum leikinn. Við erum töluvert aftarlega á vellinum, sérstaklega í seinni hálfleik og það er vegna þess að við náum ekki að halda boltanum á móti Þrótturum, Þróttarar eru mjög gott lið og við vorum bara að berjast við mjög gott lið.“ Ólafur Kristjánsson: Úrslitin eru bara eins og þau eru Ólafur er á sínu öðru tímabili sem þjálfari Þróttar.Vísir/Diego „Úrslitin eru bara eins og þau eru, ég segi alltaf að úrslitin eru afleiðing af því sem þú gerir og við gerðum ekki nóg í þessum leik sóknarlega til þess að vinna leikinn.“ „Við vorum í fyrri hálfleik sérstaklega bitlausar og blóðlausar og liðið var ekki líkt sjálfu sér. Við vorum hikandi í okkar aðgerðum, bakverðirnir komu ekki með, unnum ekki seinni bolta og vorum ekki að taka þessar árástir maður á mann á köntunum.“ „Það var svo allt annar bragur á liðinu í seinni hálfleik, við settum tempó í boltann og komum okkur vel inn í leikinn, mér fannst markið vera svona meira á leiðinni til okkar en þeirra í stöðunni 1-1. Það gerist svo það sem stundum gerist þegar þú ert svolítið á þessari bjargbrún að við duttum framyfir hana.“ Mjólkurbikar kvenna Þróttur Reykjavík Valur