Handbolti

Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem að­eins Ís­lendingar hafa náð

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson vann Meistaradeild Evrópu aftur með Magdeburg og var aftur valinn verðmætastur.
Gísli Þorgeir Kristjánsson vann Meistaradeild Evrópu aftur með Magdeburg og var aftur valinn verðmætastur. Getty/Jürgen Fromme

Gísli Þorgeir Kristjánsson segist hafa fengið „deja vu“ þegar hann vann Meistaradeild Evrópu í handbolta í gær, í annað sinn á þremur árum, en hann var aftur valinn verðmætasti leikmaður úrslitahelgarinnar.

Þar til í gær var Aron Pálmarsson sá eini í sögu Meistaradeildar Evrópu sem valinn hefur verið MVP (verðmætasti leikmaður) úrslitahelgarinnar í tvígang. Aron var valinn árið 2014 þegar hann vann keppnina með Kiel og aftur 2016 þegar hann lék með Veszprém.

Gísli endurtók hins vegar leikinn með liði sínu Magdeburg og var valinn verðmætastur rétt eins og 2023 þegar hann fór á kostum í úrslitaleiknum þrátt fyrir að hafa farið úr axlarlið í undanúrslitunum.

Í gær skoraði Gísli svo átta mörk og gaf tvær stoðsendingar í 32-26 sigrinum á Füchse Berlín í úrslitaleik í Köln, eftir að hafa aftur verið að glíma við axlarmeiðsli í aðdraganda úrslitahelgarinnar.

„Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu. Mér líður eins og að ég sé að fá „deja vu“. Þetta var stórkostleg liðsframmistaða frá fyrstu mínútu. Við gáfum tóninn, settum ákveðinn standard og gáfumst aldrei upp. Héldum stöðugt áfram að gera okkar besta. Við vorum hundrað prósent í öllum okkar sóknaraðgerðum og í vörn. Við vorum bara hundrað prósent einbeittir. Með eitt markmið í dag og það var að vinna Meistaradeild Evrópu. Það gerðum við,“ sagði Gísli í viðtali við EHF strax eftir leik.

Spurður út í einstaklingsverðlaun sín, sem hann hlaut nú í annað sinn, benti Gísli á Ómar Inga Magnússon og aðra liðsfélaga sína:

„Það er virkilega gaman að vinna þetta aftur en, líklega eins og ég sagði fyrir tveimur árum, þá er þetta í raun liðinu mínu að þakka. Ég vinn svona titla ekki einn, ég þarf að hafa þá í kringum mig. Ég er stoltur en ég er enn stoltari af að vinna titilinn með þessum gaurum í annað sinn,“ sagði Gísli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×