Innlent

Sex­tán ár fyrir að bana dóttur sinni

Árni Sæberg skrifar
Sigurður Fannar Þórsson huldi andlit sitt þegar hann gekk inn í dómsal þann 11. júní.
Sigurður Fannar Þórsson huldi andlit sitt þegar hann gekk inn í dómsal þann 11. júní. Vísir/Anton Brink

Sigurður Fannar Þórsson var í dag dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að verða dóttur sinni, hinni tíu ára Kolfinnu Eldeyju, að bana með hamri. Þá var hann einnig dæmdur fyrir fíkniefnalagabrot.

Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness, sem kvað upp dóm í málinu klukkan 14. Dóminn má lesa hér. Sigurður Fannar játaði sök í málinu en bar fyrir sig minnisleysi að einhverju leyti.

Í dóminum segir að meginsakargiftir málsins hafi lotið að því hvort Sigurður Fannar væri sannur að sök að manndrápi og stórfelldu broti í nánu sambandi, með því að hafa hafa sunnudaginn 15. september 2024, við Hraunhól, skammt vestan við Vatnsskarðsnámur, veist að dóttur sinni og ráðið henni bana af ásetningi með því að slá hana margoft í höfuðið með hamri.

Vísaði lögreglu á líkið í gjótu

Í dóminum segir að í símtali Sigurðar Fannars við Neyðarlínuna, sem hafi hafist klukkan 18:13 umræddan dag, hafi hann gengist við því að hafa banað dóttur sinni með vopni og sagt hana liggja í nálægri gjótu. Samkvæmt dómsvætti lögreglumanns hafi hann í framhaldi af því gengist við því á vettvangi, að gættum viðeigandi réttarfarsákvæðum, að hafa drepið dóttur sína, sagt hana liggja í nálægri gjótu og vísað lögreglu í átt að líkinu.

Samkvæmt vætti sama lögreglumanns hafi hann aftur gengist við manndrápinu í sjúkrabifreið á leið á bráðadeild Landspítala, sagst hafa barið dóttur sína með hamri og skilið hamarinn eftir við hlið líksins. 

„Upptökur úr búkmyndavél lögreglumannsins voru spilaðar við aðalmeðferð máls og styðja vitnisburð hans. Þær upplýsingar sem ákærði þannig veitti á fyrstu klukkustundum eftir andlát brotaþola virðast réttar.“

Dró úr framburðinu

Sigurður Fannar hafi verið yfirheyrður hjá lögreglu sama kvöld og upphaflega játað skýlaust að hafa orðið dóttur sinni að bana.

Í kjölfarið hafi hann verið yfirheyrður þrisvar. Í annarri yfirheyrslu hafi hann gengist við því að hafa haldið á klaufhamri, notað hann til að slá dóttur sína í höfuðið og þannig drepið hana. Í þriðju yfirheyrslu hafi hann dregið úr fyrri framburði um andlát stúlkunnar, kveðist telja að hann hefði drepið hana með hamrinum, því enginn annar hefði verið á staðnum og hann myndi eftir „höggunum“. 

Þegar leið á skýrslugjöfina hafi honum verið kynnt að frumniðurstöður réttarkrufningar bentu til þess að stúlkunni hefðu verið greidd að minnsta kosti níu til tíu högg í höfuðið. Sigurður Fannar hafi ekki gengist við því að hafa greitt stúlkunni svo mörg högg og sagst svo ekki muna eftir höggum. Í fjórðu og síðustu yfirheyrslunni hafi hann sagst ekkert hafa við fyrri framburð að bæta. Þegar gengið hafi verið á hann að útskýra hvernig og hvers vegna hann banaði dóttur sinni hafi hann líkt og áður sagst ekki vita það og ekki geta svarað slíkum spurningum.

Játaði aldrei ásetning

Í dóminum segir að Sigurður Fannar hafi á engum tímapunkti gengist við því, hvorki hjá lögreglu né í viðtölum við undirmatsmann og yfirmatsmenn, að hafa haft ásetning til að bana dóttur sinni. 

Á þessu hafi ekki orðið breyting þegar hann kom fyrir dóm 5. maí síðastliðinn. Hann hafi þá sagst ekki vita betur en að hann hafi banað dóttur sinni, en gæti ekki játað manndráp af ásetningi. Þrátt fyrir að hann gæfi síðan ítarlega skýrslu við aðalmeðferð máls hafi ekkert nýtt komið fram sem varpað geti ljósi á nákvæmlega hvernig og af hverju hann eigi að hafa banað stúlkunni með klaufhamri. 

„Hann kvaðst ekki vita nákvæmlega hvað gerðist og lítið muna eftir atvikum að andláti hennar, en sagði: „Ég tók líf dóttur minnar“. Í framhaldi kvaðst ákærði ekki muna hvort stúlkan hafi fallið til jarðar undan hamarshöggum, en séð að hún „var dáin og blóð út um allt“. Ákærði kvaðst ekki muna eftir að hafa slegið hana í höfuðið með hamrinum, þó hafa „tilfinningu fyrir einhverjum höggum“, sagði engan annan hafa verið á staðnum og því hljóti hann að hafa drepið hana með hamarshöggum í höfuð.“

Hann hafi ekki gefið skýringar á þeim verknaði, borið fyrir sig minnisleysi í því sambandi, sagt ekkert hafa komið upp á milli þeirra feðgina við Hraunhól, sagt stúlkuna vera augastein lífs síns og það að drepa hana „væri það síðasta sem [hann] myndi vilja gera við litla engilinn [sinn].“ 

„Þegar ákærði var spurður hvort einhver annar gæti hafa drepið dóttur hans áréttaði hann að enginn annar kæmi til greina og þvertók fyrir að andlát hennar tengdist hinni svokölluðu albönsku mafíu, fíkniefnaviðskiptum og/eða skuldum ákærða við ónefnda aðila.“

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×