Lífið

Hundruðir gengu skrúð­göngu í Laugar­dal

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Hundruðir barna úr Laugardalnum tóku þátt.
Hundruðir barna úr Laugardalnum tóku þátt. Vísir/Sigurjón

Það var líf og fjör í Laugardalnum í Reykjavík í dag þegar nokkur hundruð börn fóru í skrúðgöngu og fögnuðu Regnbogadeginum.

Börnin stunda frístundastarf í Laugardals, Háaleitis- og Bústaðahverfi og var hátíðin á vegum frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri.

Litadýrðin réð ríkjum en hvert frístundaheimili fékk sinn lit til að skreyta sig með. Eftir vætutíð undanfarna daga hélst hann þurr í dag og nutu börnin þess að leika sér.

Kátar að lokinni göngu.Vísir/Sigurjón
Það er vandasamt verk að aka mótorhjóli.Vísir/Sigurjón
Verðandi lögregluþjónar?Vísir/Sigurjón





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.