Menning

Lax­veiði í net á góðum sumar­degi 1993 í Óseyrarnesi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Baldvin Karel fylgist með Björgvini Guðmundssyni sýna ljósmyndara tvo nýveidda laxa. Bjarnfinnur Þorkelsson og Guðmundur Sævarsson sýsla í bakgrunni.
Baldvin Karel fylgist með Björgvini Guðmundssyni sýna ljósmyndara tvo nýveidda laxa. Bjarnfinnur Þorkelsson og Guðmundur Sævarsson sýsla í bakgrunni. Magnús Karel Halldórsson

Um helgina eru síðustu forvöð að sjá ljósmyndasýninguna „Veiðidagur í Óseyrarnesi 1993“ í Gömlu kartöflugeymslunni við Búðarstíg á Eyrarbakka. 

Á sýningunni eru myndir sem Eyrbekkingurinn Magnús Karel Hannesson tók af laxveiði í net fyrir landi Óseyrarness einn sumardag árið 1993.

Guðmundur Sævarsson og aðstoðarmaður hans, Bjarnfinnur Þorkelsson, leysa landfestar.Magnús Karel Hannesson

Jörðin, sem hét áður Nes eða Ferjunes, liggur að Ölfusá neðanverðri og komst í eigu Eyrarbakkahrepps árið 1906. Sagt er að bærinn hafi verið fluttur fimm sinnum til austurs undan ágangi árinnar og landbroti sem enn stendur. 

Óseyrarnesi fylgdu mikil hlunnindi af lax- og silungsveiði í Ölfusá. Eftir að hreppurinn eignaðist jörðina var veiðirétturinn leigður út og stunduðu ýmsir veiðina sem leigutakar – einna lengst Magnús Magnússon í Laufási á Eyrarbakka.

Netin lögð út.Magnús Karel Hannesson

Öllum hnútum kunnugur

Síðust leigutakarnir voru Bjarnfinnur Ragnar Jónsson og Guðmundur Sæmundsson frá 1984 til 1996 en þá var veiðunum hætt vegna minnkandi veiði og lækkandi fiskverðs. 

Síðustu árin annaðist Guðmundur veiðarnar með hjálp yngri aðstoðarmanna. Guðmundur var öllum hnútum kunnugur, þekkti aðstæður og vissi hvernig standa ætti að framkvæmdinni – enda hafði hann starfað hjá Magnúsi í Laufási áður fyrr.

Drengirnir leika sér í sandinum meðan fullorðna fólkið horfir út á sjó.Magnús Karel Hannesson

Ljósmyndirnar voru teknar á góðum sumardegi árið 1993 og endurspegla það verklag sem beita þurfti við veiðarnar og þann andblæ og eftirvæntingu sem ríkti á veiðistaðnum. Þær sýna hlunnindanýtingu sem nú er aflögð og verður væntanlega ekki tekin upp aftur í Óseyrarnesi.

Ljósmyndirnar hafa verið falinn fjársjóður sem nú er dreginn fram í dagsljósið og gerður almenningi sjáanlegur.

Sýningin var opnuð á Jónsmessu síðustu helgi í Gömlu kartöflugeymslunni sem Björgvin Guðmundsson, einn veiðimannanna, rekur ásamt konu sinni, Agnesi Ósk Snorradóttur. 

Um helgina verður sýningin opin frá 13 til 15 laugardaginn 28. júní og frá 13 til 16 sunnudaginn 29. júní.

Laxinn dreginn á land.Magnús Karel Hannesson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.