Viðskipti innlent

Tekjur Haga jukust á fyrsta árs­fjórðungi

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Finnur Oddsson er forstjóri Haga. 
Finnur Oddsson er forstjóri Haga.  Vísir/Vilhelm

Rekstur Haga hf. á fyrsta ársfjórðungi gekk vel og var í samræmi við áætlanir stjórnenda, en tekjur félagsins jukust um sjö prósent og námu 33,2 milljörðum króna. Félagið segir bætta afkomu einkum til komna vegna áhrifa af rekstri færeysku verslunarinnar SMS auk þess sem afkoma stærstu rekstrareininga styrkist milli ára.

Þetta kemur fram í tilkynningu Haga til kauphallar en árshlutareikningur félagsins var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi í gær. Helstu fréttir af starfseminni eru þær að  heimsóknum viðskiptavina í dagvöru­verslanir á Íslandi hafi fjölgað um tæp 6 prósent. Seldum stykkjum hafi einnig fjölgað eða um tæpt eitt prósent.

Fram kemur að seldum eldsneytislítrum hafi fækkað um 17 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Aukin sala hafi verið í smásölu en samdráttur verið í heildarmagni, einkum vegna minni einskiptisviðskipta hjá erlendum stórnotendum.

Þá segir félagið frá góðu gengi í þróun á stafrænum lausnum og þjónustum. Til að mynda hafi nýrri netverslun Banana verið hleypt af stokkunum í apríl. Jafnframt hafi aukin áhersla verið lögð á vöruval og þægindi fyrir fjölskyldur. Barnabónus hafi verið kynnt til sögunnar sem er stuðningur Bónus við ungar barnafjölskyldur á fyrstu mánuðum eftir fæðingu.

Í samstarfi við Latabæ var stóru heilsuátaki ýtt úr vör sem miðar að því að auka neyslu barna á ferskum ávöxtum og grænmeti. 

„Rekstur Haga á rekstrarárinu 2025/26 fer vel af stað og staðfestir niðurstaða fyrsta fjórðungs sterka stöðu félagsins. Vörusala samstæðunnar nam 48,1 ma. kr. og jókst um 9,2 prósent miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA nam 4.046 milljónum króna og hagnaður var 1.165 milljónir króna, sem er töluverð bæting á milli ára. Starfsemi gekk vel á öllum sviðum, bæði á Íslandi og í Færeyjum, en samanburður við árið á undan litast af innkomu SMS í samstæðu Haga og umtalsverðri lækkun olíuverðs á milli ára,“ er haft eftir Finni Oddssyni forstjóra Haga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×