Enski boltinn

Forest var búið að kaupa lands­liðs­mann en hann vildi ekki koma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Timothy Weah hefur ekki náð að blómstra hjá Juventus og vill komast annað. Bara ekki fara til Notttingam Forest.
Timothy Weah hefur ekki náð að blómstra hjá Juventus og vill komast annað. Bara ekki fara til Notttingam Forest. Getty/Ivan Romano

Bandaríski landsliðsmaðurinn Timothy Weah vill ekki spila með Nottingham Forest og er því ekki á leiðinni í ensku úrvalsdeildina.

Forest og Juventus voru búin að ná samkomulagi um kaupverðið á Weah og vængmanninum Samuel Mbangula sem var 22 milljónir evra eða rúma þrjá milljarða íslenskra króna.

Weah sagði hins vegar nei takk. Enska félagið ætlar ekki að reyna sannfæra hann og er því hætt við kaupin. ESPN segir frá.

Hinn 25 ára gamli Weah á þrjú ár eftir af samningi sínum við ítalska félagið sem keypti hann frá Lille í júlí 2023.

Í stað þess að fara til Forest þá vill Weah frekar bíða eftir tilboðum frá öðrum félögum. Það er nánast öruggt að hann spilar ekki áfram með Juventus.

Weah byrjaði feril sinn hjá Paris Saint-Germain en hefur einnig spilað fyrir Celtic og Lille.

Weah skoraði fimm mörk í þrjátíu leikjum í Seríu A á síðustu leiktíð en flest þeirra komu eftir að hann hafi komið inn sem varamaður.

Weah er fastamaður í bandaríska landsliðinu og hefur skorað sjö mörk í 44 landsleikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×