Punga út 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 6. júlí 2025 13:57 Bálstofa er nú starfrækt í Öskjuhlíð. Aðsend Dómsmálaráðherra og Kirkjugarðar Reykjavíkur hafa undirritað viljayfirlýsingu um fjárframlag til uppbyggingar nýrrar líkbrennslu í Gufuneskirkjugarði. Ríkissjóður leggur fram 80 milljónir króna árlega í tólf ár til að standa undir stofnkostnaði nýrrar líkbrennslu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að um sé að ræða mikilvægt skref til að leysa þann bráðavanda sem legið hefur fyrir vegna athugasemda heilbrigðiseftirlits í garð starfsemi líkbrennslunnar í Fossvogi. Samhliða verði til staðar umhverfisvæn og gjaldfrjáls líkbrennsluþjónusta á Íslandi. Stenst ekki nútímakröfur Kirkjugarðar Reykjavíkur eru í senn reknir sem sjálfseignastofnun og almannaheillafélag, sem stafar meðal annars að líkbrennslu á grundvelli samkomulags við ríkið. Með viljayfirlýsingu hafi með varanlegum hætti verið tryggt að mikilvægir innviðir samfélagsins séu nútímavæddir og þjóni hlutverki sínu. Líkbrennsla hefur verið starfrækt í Fossvogi af Kirkjugörðum Reykjavíkur frá árinu 1948 og er hún fyrsta og eina líkbrennsla landsins. Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að líkbrennslan þar standist ekki lengur nútímakröfur um mengunarvarnir og hefur Heilbrigðieftirlit Reykjavíkur gert alvarlegar athugasemdir við starfsemina. Fyrirséð hafi verið að afköst brennslunnar gætu dregist verulega saman og að þörfin fyrir líkgeymslur hefðu aukist. Ef ekkert hefði verið að gert hefði getað skapast verulegur fráflæðisvandi frá heilbrigðisstofnunum. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Ingvar Stefánsson framkvæmdastjóri Kirkjugarða ReykjavíkurStjórnarráðið Þessu til viðbótar hafi þörf fyrir þjónustuna aukist verulega á síðustu árum og fyrirsjáanlegt sé að aukningin verði enn meiri á komandi árum með áframhaldandi fólksfjölgun hér á landi og aukinni eftirspurn. Starfsemi hefst á næsta ári Áttatíu milljóna króna framlag ríkissjóðs mun nýtast til kaupa á tveimur nýjum líkbrennsluofnum og viðbyggingu við húsnæði Kirkjugarða Reykjavíkur í Gufunesi. Búnaður og ofnar verði í fremstu röð hvað varðar umhverfisvernd og mengunarvarnir. Gert er ráð fyrir að ný líkbrennsla hefji starfsemi á næsta ári. „Ég er ánægð að þessi vandi sé leystur farsællega eftir margra ára óvissu. Með viljayfirlýsingunni eru tvær flugur slegnar í einu höggi; annars vegar bráðavandinn sem blasti við í málinu og hins vegar erum við að nútímavæða mikilvæga innviði á umhverfisvænan hátt fyrir almenning.“ er haft eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kirkjugarðar Reykjavík Tengdar fréttir Brenna líkin á nóttunni Forsvarsmenn Kirkjugarða Reykjavíkur hafa lagt til að lík verði brennd í bálstofunni í Öskjuhlíð að næturlagi á meðan endurskoðun á starfsleyfi bálstofunnar stendur yfir. 15. nóvember 2024 10:44 Garðabær gefur grænt ljós á bálstofu og athafnahús sem verður opið öllum Fyrirtækið Tré lífsins hefur fengið heimild hjá Garðabæ til að byggja allt að 1.500 fermetra byggingu norðan við Vífilsstaðavatn, með salarkynnum fyrir athafnir á borð við skírnir, hjónavígslur og útfarir, auk bálstofu. 16. september 2021 06:45 „Okkur finnast þetta vera stjórnsýsluleg fantabrögð“ „Við erum algjörlega steinhissa og í raun misboðið yfir þeim fréttum að ráðuneytið skuli þegar eiga í viðræðum við KGRP um rekstur nýrra bálstofu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi Trés lífsins. 8. mars 2023 06:41 Mest lesið Nítján ára ferðamaður fannst látinn Erlent Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Innlent Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Innlent Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Erlent Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Erlent Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Innlent Fleiri fréttir Á hundrað og þrjátíu á sextíu götu Gul viðvörun: Brýna fyrir fólki á húsbílum að vara sig á vindinum Boltaleikir bannaðir á skólalóðinni eftir klukkan tíu Leggja til 80 milljónum árlega í nýja líkbrennslu Hinn stungni á batavegi en stungumennirnir ófundnir Mikill áhugi á ræktun rabarbara með tilkomu Rabarbarafélags Íslands Málþófið endurspegli ráðaleysi minnihlutans gagnvart samstíga stjórn Vill meira frá ríkinu, annars gætu nemar þurft að borga meira Stutt í land í þinginu og spenna fyrir landsleik Yfirgangur hins opinbera, þrátefli á þinginu og fráleit þjóðaratkvæðagreiðsla Ætla að knýja Flatey með sólarorku Fagnar „hugrökkum hetjum“ Bandaríkjahers en skrifar um þarmaflóruna á sautjánda júní Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sjá meira
Brenna líkin á nóttunni Forsvarsmenn Kirkjugarða Reykjavíkur hafa lagt til að lík verði brennd í bálstofunni í Öskjuhlíð að næturlagi á meðan endurskoðun á starfsleyfi bálstofunnar stendur yfir. 15. nóvember 2024 10:44
Garðabær gefur grænt ljós á bálstofu og athafnahús sem verður opið öllum Fyrirtækið Tré lífsins hefur fengið heimild hjá Garðabæ til að byggja allt að 1.500 fermetra byggingu norðan við Vífilsstaðavatn, með salarkynnum fyrir athafnir á borð við skírnir, hjónavígslur og útfarir, auk bálstofu. 16. september 2021 06:45
„Okkur finnast þetta vera stjórnsýsluleg fantabrögð“ „Við erum algjörlega steinhissa og í raun misboðið yfir þeim fréttum að ráðuneytið skuli þegar eiga í viðræðum við KGRP um rekstur nýrra bálstofu,“ segir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, forsvarskona og stofnandi Trés lífsins. 8. mars 2023 06:41