Innlent

Þrír látnir og sex­tán saknað eftir á­rás á fraktskip

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Eternity C er skráð í Líberíu en er rekið af grísku fyrirtæki. 
Eternity C er skráð í Líberíu en er rekið af grísku fyrirtæki.  AP

Björgunaraðgerðir standa yfir í Rauðahafinu eftir að hersveitir Húta í Jemen gerðu handsprengjuárás á fraktskip í gær. Minnst þrír voru drepnir í árásinni og sextán er enn saknað.

Í frétt breska ríkisútvarpsins um málið segir að 25 hafi verið um borð í skipinu Eternity C, sem er rekið af grísku fyrirtæki en skráð í Líberíu, þegar Hútar hófu að skjóta handsprengjum á skipið úr bátum í grennd við skipið. Skipið missti allt vélarafl eftir að skotið var á það. 

Í yfirlýsingu sögðust Hútar hafa skotið á skipið vegna þess að það hafi verið á leið til Ísrael. Hútar hafa frá upphafi stríðs Ísraels og Hamas hótað loftárásum á öll skip sem sigla um Rauðahafið án þess að koma hjálpargögnum til Gasa. 

Samkvæmt upplýsingum frá filippseyskum yfirvöldum er 21 af hinni 25 manna áhöfn filippseyskur ríkisborgari. Einn rússneskur ríkisborgari særðist alvarlega í árásinni og missti fótlegg. Þá var einn Indverji um borð sem lifði árásina af. 

Embættismaður tengdur björgunaraðgerðunum sagði í samtali við AFP fyrr í dag að sex manns hefði þegar verið bjargað en nítján enn saknað. Síðan þá hafa þrjú dauðsföll verið staðfest. 

Skipið er eitt af sjötíu fraktskipum sem Hútar hafa ráðist á síðan í lok árs 2023. Árásin er með þeim fyrstu sem Hútar gera á fraktskip á Rauðahafinu síðan í lok árs 2024.


Tengdar fréttir

Allt í rugli á Rauðahafi

Orrustuþota bandaríska hersins, af gerðinni F/A-18 Super Hornet, féll í sjóinn og sökk niður á botn Rauðahafs. Bandaríski sjóherinn greinir frá þessu, en þetta er í þriðja skiptið á skömmum tíma sem mál tengd sama flugmóðurskipinu komast í fréttir.

Mannskæðasta árásin á Húta hingað til

Minnst 74 eru taldir af eftir loftárás Bandaríkjahers á eldsneytisgeymslur Húta við Ras Isa höfnina í Jemen í morgun. Árásin er sú mannskæðasta síðan herinn hóf að auka árásir á herstöðvar Húta í fyrra. 

Minnst fimmtán drónaárásum Húta afstýrt í nótt

Danska freigátan Iver Huitfeld skaut niður fjóra dróna í nótt sem Hútar sendu út til að gera árás á það. Það kom fram í tilkynningu frá danska hernum frá í morgun. Minnst fimmtán drónar gerðu atlögu að skipaumferð sunnanvert í Rauðahafinu í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×