Lífið

Á­hrifa­rík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Bergsveinn Ólafsson, Beggi Ólafs, hefur komið víða við á undanförnum árum.
Bergsveinn Ólafsson, Beggi Ólafs, hefur komið víða við á undanförnum árum. Instagram

Beggi Ólafs, áhrifavaldur, fyrirlesari og doktorsnemi í sálfræði, varð þess heiðurs aðnjótandi að flytja erindi á Tedx ráðstefnu á dögunum. Áhrifaríkt erindið fjallaði meðal annars um það hvernig maður þarf að segja skilið við gamlar sjálfsmyndir til að þroskast og stíga betur inn í sjálfan sig.

„Í vikulegu símtali við besta vin minn brotnaði ég algjörlega niður. Hann lagði við hlustir, þagnaði svo áður en hann sagði:“

„Beggi, þú þarft að hreinsa dagatalið þitt eftir hádegi. Þú munt halda sjálfsmyndarjarðarför. Þú munt kveðja íslenska þjálfarann og fyrirlesarann Begga, og leyfa bandaríska rannsakandanum Begga að taka við.“

Á þessum orðum hefst bútur úr erindinu sem Beggi birti á Instagram og vakið hefur mikla athygli.

„Hann [vinur minn] veit að ég elska Batman, þannig hann sagði: Hvað myndi Batman gera?“

„Ég sagði: Bruce Wayne myndi hverfa inn í hellinn sinn og æfa sig, og æfa, og koma svo út sem nýr Batman sem heimurinn hefur aldrei séð áður.“

„Þetta fannst mér hljóma stórfenglega. Ég fór svo í dramatískan göngutúr með Hans Zimmer í eyrunum, andaði að mér sólríka loftinu í Kaliforníu, og hvíslaði svo að sjálfum mér:“

„Íslenski þjálfarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Beggi, takk, þú þjónaðir mér vel. En núna er tími til kominn að leyfa bandaríska rannsakandanum Begga að taka við.“

Beggi Ólafs býr í Los Angeles í dag þar sem hann stundar doktorsnám í sálfræði við Claremont Graduate University.


Tengdar fréttir

Reynir ekki að gera öllum til geðs

Athafnamaðurinn Bergsveinn Ólafsson er að gefa út nýja bók sem ber heitið Tíu skilaboð. „Ég leyfi mér að segja þann sannleika sem ég trúi að sé réttur í staðinn fyrir að reyna gera öllum til geðs,“ segir hann um bókina.

„Ég held þú eigir ekki að sofa hjá öllum stelpum þó þú getir það“

„Mig langar í stelpu sem er hreinskilin og hefur ákveðin gildi og er ekki bara já- manneskja,“ segir Bergsveinn Ólafsson, doktorsemi í sálfræði og fyrrverandi knattspyrnumaður - betur þekktur sem Beggi Ólafs. Hann var spurður hvaða eiginleika draumastúlkan hans þurfi að búa yfir á dögunum.

„Ótrúlega erfitt að taka ákvörðun um að fara út“

Athafnamaðurinn Bergsveinn Ólafsson ákvað að taka stökkið í haust og flytja út til Claremont í Kaliforníu þar sem hann mun stunda doktorsnám í sálfræði við Claremont Graduate University. Hann er nýlentur í ævintýrinu og ræddi við Vísi um það sem býður hans í nýja heimalandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.