Innlent

Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu

Agnar Már Másson skrifar
Meninnir fluttu efnið í vatsnbrúsum til landsins.
Meninnir fluttu efnið í vatsnbrúsum til landsins.

Erlendur maður er grunaður um að hafa flutt inn rúman lítra af kókaínvökva til landsins í vor. Ákæruvaldið segir hann hafa viðurkennt að hafa flutt efnin inn að beiðni förunauts síns gegn greiðslu upp á ríflega átta hundruð þúsund krónur en tveir menn sem komu með honum til landsns voru einnig handteknir.

Maðurinn var í síðustu viku úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst en áfrýjaði málinu til Landsréttar, sem staðfesti varðhald yfir honum fyrir helgi.

Maðurinn kom til Íslands ásamt tveimur öðrum hinn 3. maí. Þeir voru allir þrír handteknir eftir að tollverðir fundu níu hundruð millilítra af kókaínbasa í tveimur plastbrúsum í farangri mannsins, ákæruvaldsins að 

Heildarmagn vökvans reyndist svo 1.380 millilítrar, að sögn tæknideildar lögreglu.  Efnið var með styrkleika sem samsvarar 52 til 56 prósentum af kókaínklóríði, samkvæmt tæknideild lögreglu og rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði að því er fram kemur í dómnum.

Maðurinn sem er viðurkenndi það fyrir dómi að hafa flutt efnið að beiðni annars förunauts síns gegn greiðslu upp á sex þúsund evrur (855 þús. kr.).

Magn hinna meintu fíkniefna þykir eindregið benda til þess að hin meintu fíkniefni hafi verið ætluð til sölu og dreifingar, að sögn ákæruvaldsins. Kemur enn fremur fram að maðurinn sé erlendur ríkisborgari sem hefur engin tengsl hér á landi.

Eini tilgangur ferðar varnaraðila hafi því greinilega verið að koma með ávana- og fíkniefni til landsins og því er talin á að hann komist úr landi eða leynist ef hann gengur laus.

Afar mikið magn eiturlyfja hefur verið haldlagt á Keflavíkurflugvelli í ár og þykir líklegt að met verði slegið í ár.


Tengdar fréttir

Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum

Neysla á ketamíni hefur aukist verulega á síðustu árum og síaukið magn mælist í fráveitu. Lögregla hefur lagt hald á yfir þrjúhundruðfalt meira magn af efninu það sem af er ári en allt árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×