Áskorun

50+: Hræðslan við að eldast út­lits­lega og góð ráð

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er ekki bara húðin sem breytist með aldrinum, hárið er oft fyrsta vísbendingin líka um að við séum að verða eldri. Grá hár í dag þykja þó oft töff og það sama á við um karla með skalla. Að hræðast það að eldast útlitslega er hins vegar staðreynd og nokkuð sem margir glíma við.
Það er ekki bara húðin sem breytist með aldrinum, hárið er oft fyrsta vísbendingin líka um að við séum að verða eldri. Grá hár í dag þykja þó oft töff og það sama á við um karla með skalla. Að hræðast það að eldast útlitslega er hins vegar staðreynd og nokkuð sem margir glíma við. Vísir/Getty

Sitt sýnist hverjum um hvað fagurt er og með sanni má segja í dag að viðmiðin geta verið harla ólík. Ekki síst þegar kemur að því hvernig fólk eldist. Þar sem sumum finnst eftirsóknarvert að eldast náttúrulega á meðan aðrir velja ýmsar fegrunaraðgerðir og fleiri leiðir til að viðhalda unglegu útliti sem lengst.

Á vefsíðunni VeryWellMind segir að það sé í raun eðlilegt að fólk upplifi einhverja hræðslu við að eldast útlitslega. Hið slæma er ef sú hræðsla verður það yfirgnæfandi að fólk fer að upplifa viðvarandi óánægju með sjálft sig og hálfgerða þráhyggju.

Góðu ráðin gegn þessum ótta leyna hins vegar á sér. Því fæst koma þau útliti nokkuð við. Hér eru nokkur góð ráð sem sögð eru geta hjálpað.

Að rækta góð sambönd

Að leggja okkur fram við að rækta góð sambönd gerir okkur ótrúlega gott. Þetta eru þá samböndin við vini og vandamenn sem okkur finnst gefandi; Næra okkur frekar en að taka frá okkur orku.

Ástæðan fyrir því að það að rækta góðu samböndin okkar er sagt hjálpa okkur við að draga úr hræðslu við að eldast útlitslega, er einfaldlega sú staðreynd að góð sambönd gera okkur gott og hafa alltaf jákvæð áhrif á okkar andlegu líðan.

Veldu áhrifavaldana þína

Áhrifavaldar geta verið af öllum toga og í þessum lið er mælt með því að við séum duglegri við að velja okkur áhrifavalda; Þekkta sem óþekkta.

Það sem þetta þýðir er að á samfélagsmiðlum hættum við að fylgjast með fólki sem okkur finnst frekar kynda undir óánægju eða hræðslu við okkar eigið útlit. En veljum þess í stað fólk og hópa sem hafa jákvæð áhrif á okkur. 

Á samfélagsmiðlum er meira að segja hægt að finna fjöldann allan af erlendum hópum sem fyrst og fremst birta myndir og góð ráð um það, hvernig við getum verið ánægð og þakklát fyrir það að eldast náttúrulega frekar en að líða illa eða vera hrædd við það.

Okkar ábyrgð og vísindin

Við erum síðan öll í ábyrgð fyrir okkur sjálfum, þannig að ef við hræðumst það að eldast útlitslega þurfum við líka að velta fyrir okkur hvað við mögulega gerum sem er að hafa vond áhrif á húð og heilsu og hvað er gott. Hér eru auðvitað lykilatriðin sem við þekkjum öll; Svefn, vatn, hreyfing og gott matarræði.

Og það er vel hægt að stefna að góðum venjum eða betri venjum í þessum flokkum, án þess að umturna lífinu okkar.

Viljinn til að læra og eflast

Loks er það viljinn og löngunin okkar til að halda áfram að þróast. Sem þýðir í raun vilja til að halda áfram að læra eitthvað nýtt og vera sífellt að efla okkur. Þetta getum við gert óháð því hver árafjöldinn er en það að vera dugleg að læra eitthvað nýtt, gera eitthvað nýtt og þróast þannig að þroskast áfram, gefur okkur ákveðinn tilgang sem aftur eflir okkar andlegu heilsu.


Tengdar fréttir

50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen

Við erum flest með ákveðna ímynd af karlmönnum með gráa fiðringinn. Sjáum þá oft fyrir okkur rembast við að reyna að halda sér mjög ungæðislegum. Stunda jafnvel ræktina af offorsi eða byrja á nýrri hreyfingu og útivist; Með stæl.

50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu

Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.