Höfnuðu fimmtíu milljóna punda tilboði í Strand Larsen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2025 10:32 Jörgen Strand Larsen vakti athygli fyrir góða spilamennsku á síðasta tímabili. getty/Catherine Ivill Newcastle United er í framherjaleit og rennir hýru auga til Norðmannsins Jörgen Strand Larsen hjá Wolves.
Callum Wilson yfirgaf Newcastle í sumar og þá ríkir mikil óvissa með framtíð Alexanders Isak. Hann vill fara til Liverpool en Newcastle vill ekki selja hann. Isak hefur ekki verið í leikmannahópi Newcastle í fyrstu tveimur leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Enskir fjölmiðlar greina frá því að Newcastle hafi boðið fimmtíu milljónir punda í Strand Larsen en Wolves hafi hafnað því tilboði. Newcastle hefur einnig boðið í Yoane Wissa, framherja Newcastle, en ekki haft erindi sem erfiði. Strand Larsen skoraði fjórtán mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann lék þá sem lánsmaður með Wolves frá Celta Vigo. Úlfarnir keyptu norska framherjann svo í sumar fyrir 23 milljónir punda. Anthony Gordon byrjaði sem fremsti maður hjá Newcastle í markalausa jafnteflinu við Aston Villa um þarsíðustu helgi og í 2-3 tapinu fyrir Liverpool í gær. Gordon var rekinn af velli í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir að hann braut á Virgil van Dijk, fyrirliða Liverpool. Newcastle er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í ensku úrvalsdeildinni. Næsti leikur liðsins er gegn nýliðum Leeds United á laugardaginn. Wolves er án stiga og hefur ekki enn skorað mark á tímabilinu. Liðið mætir Everton á heimavelli í næsta leik sínum á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Kansas frá Kansas til Kansas Sport Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Glódís framlengir samninginn við Bayern Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Fleiri fréttir Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Sjá meira