Ástin sögð ástæða þess að Sancho vilji ekki Roma Sindri Sverrisson skrifar 27. ágúst 2025 11:31 Jadon Sancho og Saweetie hafa verið að hittast allt þetta ár. Samsett/Getty Blaðamenn ítalska stórmiðilsins La Gazzetta dello Sport telja sig hafa fundið ástæðuna fyrir því hve treglega hefur gengið hjá Roma að landa enska knattspyrnumanninum Jadon Sancho frá Manchester United. Hann mun vera ástfanginn af bandarískri rappgellu.
Roma hefur reynt allt til þess að fá Sancho áður en lokað verður fyrir félagaskipti 1. september. Ricky Massara, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, fór meðal annars til London í gær til að ræða við umboðsmann Sancho en ekkert gengur. Ástæðan er víst ekki launamál, og Roma var tilbúið að greiða United 23 milljónir evra fyrir Sancho, sem er á sínu síðasta ári hjá félaginu miðað við núgildandi samning. Samkvæmt Gazzetta bendir ýmislegt til þess að Sancho vilji ekki fara til Rómar vegna sambands síns við hina bandarísku Saweetie. Hún er sögð ástæðan fyrir því að Sancho vilji ekki fara til Roma né aftur til Dortmund. Hann vilji raunar ekki spila í Evrópu heldur sé með hug á að komast í bandarísku MLS-deildina. Sancho mun hafa verið að ferðast um það bil þrisvar sinnum í mánuði til Bandaríkjanna til þess að hitta Saweetie en samband þeirra hófst undir lok síðasta árs. Ef að ekkert gerist á næstu dögum gæti Sancho mögulega endað á að vera áfram leikmaður United en utan leikmannahóps Ruben Amorim.
Ítalski boltinn Enski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Sjá meira