Neytendur

Air­pods 40 pró­sent dýrari hér­lendis

Atli Ísleifsson skrifar
Verð var tekið í stórum keðjum og hjá Apple verslunum í hinum ýmsu löndum.
Verð var tekið í stórum keðjum og hjá Apple verslunum í hinum ýmsu löndum. Getty

Airpods Pro 3 kosta 28 til 65 prósent meira á Íslandi en í átta samanburðarlöndum. Verðmunurinn er mun meiri en á nýjum iPhone símum. 

Þetta kemur fram í úttekt Verðlagseftirlitsins á nýútkomnum vörum frá tæknifyrirtækinu Apple.

Í tilkynningu segir að vörurnar hafi verið kynntar í byrjun september og sala á þeim hafist í liðinni viku. 

„Skoðað var verð á nýju iPhone línunni, tveimur hulstrum framleiddum af Apple og nýjum Airpods Pro ómvölum. Verðbilið milli íslenskra söluaðila og erlendra var minnst á símunum en mest á Airpods Pro, en hulstrin féllu þar á milli.

Verð var tekið í stórum keðjum og hjá Apple verslunum í hinum ýmsu löndum. Af þeim aðilum sem skoðaðir voru var Elgiganten í Svíþjóð næst íslensku verðlagi, 7% undir íslensku verði að meðaltali. Þar kosta nýir iPhone símar svo gott sem það sama og á Íslandi. Hins vegar kosta nýjar Airpods Pro 3 ómvölur 28% meira á Íslandi en í sænska systurfyrirtæki ELKO.

Verðbilið breikkar lítillega í Apple-búðinni í Danmörku og er orðið 40% sunnan landamæranna í Þýskalandi. Þó eru allir evrópsku verðpunktarnir á vörunni svipaðri innbyrðis en gagnvart Íslandi. Bandaríkin, heimaland Apple, skera sig svo úr þar líkt og í verði símanna sjálfra. Þar kosta Airpods Pro 3 ígildi rétt rúmra 30 þúsund króna.

Taka þarf fram að bandarísk verð eru gefin upp án söluskatts, sem er í sumum fylkjum enginn, en getur verið yfir 10%.

Alls voru 17 vörur bornar saman og 206 verðathuganir framkvæmdar. Miðað var við verð og gengi sunnudaginn 21. september,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×