Viðskipti innlent

Höggið á ís­lenska ferða­þjónustu ætti að vera tak­markað

Lovísa Arnardóttir skrifar
Arion banki telur að þó svo að höggið verði takmarkað verði áhrifin nokkur á framboð fluga og jafnvel á þjóðarsálina.
Arion banki telur að þó svo að höggið verði takmarkað verði áhrifin nokkur á framboð fluga og jafnvel á þjóðarsálina. Vísir/Vilhelm

Arion banki segir í nýrri efnahagsspá sinni að höggið við brotthvarf Play á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað. Hlutdeild Play í komum erlendra ferðamanna til landsins hafi verið komin undir tíu prósent við fall félagsins í gær. Hlutdeild Icelandair sé um fjörutíu prósent til samanburðar. Áhrifin verði þó alltaf einhver á flugframboð og atvinnuleysi.

„Þann 29. september hætti Play starfsemi. Þrátt fyrir að tilkynningin hafi borið brátt að, hafði staðið styr um rekstur félagsins í nokkurn tíma. Til að mynda hafði félagið kynnt breytt viðskiptalíkan fyrir ári síðan, sem fólst í því að færa leiðarkerfið yfir í sólarlandaáætlun og fækka flugvélum er þjónustuðu Íslandsmarkað. Félagið hafði því þegar rifað seglin er kom að umsvifum á Keflavíkurflugvelli,“ segir í nýrri efnahagsspá bankans sem birt var í dag.

Þar segir að þó svo að höggið verði takmarkað sé ekki þar með sagt að áhrifin á íslenskt hagkerfi verði engin. Þau geri ráð fyrir því að rekstrarstöðvunin muni hafa neikvæð áhrif á útflutta þjónustu, einkum í gegnum farþegaflutninga með flugi.

Þá hafi einnig fjöldi fólks misst vinnuna hjá Play og fjöldi afleiddra starfa verið í húfi. Á atvinnuleysisskrá í ágúst hafi verið 7.400 manns og því bætist við um 400 manns við þrotið.

Dragi úr utanlandsferðum

Í spánni segir að einnig muni líklega draga úr utanlandsferðum Íslendinga, að minnsta kosti til skemmri tíma. Í skýrslunni var til dæmis greint frá því að í hverjum mánuði á þessu ári hafi 16 prósent Íslendinga verið erlendis. Minni samkeppni með falli Play geti einnig leitt til hækkunar flugfargjalda, sem hafi bein áhrif á verðbólguna. Þá telur bankinn að rekstrarstöðvunin gæti haft neikvæð áhrif á þjóðarsálina en það sé eitthvað sem haglíkan eigi erfitt með að meta.

Í efnahagsspánni segir að eflaust hugsi margir á þessum tímamótum til falls WOW air en aðstæður séu gjörólíkar og stærðarmunur félaganna gríðarlegur. Áhrifin af rekstrarstöðvun Play muni þar af leiðandi vera mun minni á hagkerfið og íslenska ferðaþjónustu en gjaldþrot WOW air á sínum tíma, bæði er varðar komur ferðamanna og atvinnuleysi.

Í spánni segir að þó svo að aðsóknarmet hafi verið slegin í sumar sé erfitt að spá fyrir um það hvernig veturinn þróast. Samkvæmt forsvarsmönnum Icelandair sé bókunarstaðan inn í haustið og veturinn verri miðað við sama tíma í fyrra. Rekstrarstöðvun muni leiða til þess, til skamms tíma, að framboð dragist saman því til viðbótar hafi nokkur stór erlend flugfélög rifað seglin í áætlunarflugum til Íslands.

Icelandir fylli í skarð Play

Á móti vegi að Icelandair, sem er umsvifamesta flugfélagið á Keflavíkurflugvelli, hyggist auka flugframboð sitt allverulega á fjórða ársfjórðungi en stefna þeirra á næsta ári muni skipta sköpum. Leiðakerfi þeirra sé sveigjanlegt og félagið hafi síðustu mánuði fyllt í skarð Play að einhverju leyti með aukinni þjónustu við farþega til og frá landsin, á kostnað tengifarþega.

„Séu réttar aðstæður fyrir hendi er líklegt að félagið haldi áfram á þeirri vegferð. Þá getur félagið dregið það að leggja gömlum vélum og fyllt þannig upp í skarðið með stærri flugflota. Samkvæmt grunnspá okkar er útlit fyrir óbreyttum ferðamannafjölda á næsta ári. Yrði það þriðja árið í röð sem tæplega 2,3 milljónir ferðamanna sækja landið heim, en við reiknum með fækkun ferðamanna á síðustu mánuðum þessa árs. Slík þróun ætti ekki að koma á óvart í ljósi vendinga í flugframboði. Því til viðbótar er landið dýr áfangastaður, launakostnaður hár og krónan sterk. Þessi atriði ríða ekki endilega baggamuninn en skipta engu að síður máli, ekki síst ef óvissan í alþjóðamálum dregur úr tekjuvexti ferðamanna og eftirspurn eftir Íslandsferðum,“ segir að lokum.


Tengdar fréttir

Play-liðar minnast góðu tímanna

Flugfélagið Play fór í gjaldþrot í gær eftir fjögurra ára starfsemi, og um fjögur hundruð starfsmenn misstu vinnuna. Þar af eru rúmlega tvöhundruð flugfreyjur og flugþjónar sem minnast starfstímans með þakklæti og söknuði á samfélagsmiðlum, þrátt fyrir sorglegan endi.

Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, situr í samgöngunefnd og á von á því að nefndin muni strax í næstu viku, að lokinni kjördæmaviku, kalla ráðherra og forstjóra undirstofnanna á fund sinn. Hann segir þrotið hafa komið sér í opna skjöldu. Hann fór yfir gjaldþrot Play í Bítinu á Bylgjunni.

Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir lífeyrissjóðina verða að hugsa vel hvaða áhættufjárfestingum þeir taka þátt í. Hann telur fjárfestingu þeirra á Íslandi of miklar og að hún renni beint út í verðlag. Hann telur líklegt að samhliða hækkun á flugfargjöldum eftir gjaldþrot Play muni verðbólga hækka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×