Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 09:02 Albert Gudmundsson fagnar marki sínu með liðfélaga í Fiorentina. Getty/Image Photo Agency Íslenski landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson skoraði frábært mark í langþráðum sigri Fiorentina í ítölsku Seriu A-deildinni í gær.
Fiorentina vann Udinese 5-1 en þetta var fyrsti deildarsigur liðsins á leiktíðinni, í leik númer sextán. Albert skoraði annað markið á 42. mínútu leiksins. Markið var einkar huggulegt, ekki bara afgreiðslan heldur einnig hvernig Albert losaði sig á besta stað fyrir framan vítateiginn. Albert fékk þarna boltann frá Fabiano Parisi með varnarmann í bakinu en tók geggjan snúning sem fíflaði varnarmann Udinese algjörlega upp úr skónum. Gabbhreyfing Alberts var svo góð að hann var allt í einu kominn í frábært skotfæri við teiginn. Albert var ekki lengi að nýta sér það og skaut frábæru vinstri fótar skoti upp í bláhornið, óverjandi fyrir markvörð Udinese. Þetta var svo erfitt færi að xG-ið var aðeins 0,08 sem segir mikið um erfiðleikastigið á danstilþrifum íslenska landsliðsmannsins fyrir framan teiginn. Albert var þarna að skora þriðja deildarmarkið sitt á leiktíðinni en hann hefur alls skorað sex mörk í öllum keppnum á leiktíðinni. Þetta frábæra mark má sjá hér fyrir neðan en einnig stangarskot Alberts fyrr í leiknum sem og nokkur færi sem hefðu getað gefið honum bæði fleiri mörk og stoðsendingar. View this post on Instagram A post shared by Livey (@livey.events)
Ítalski boltinn Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Kansas frá Kansas til Kansas Sport Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Körfubolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Fleiri fréttir Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Neres hetja Napoli í Sádi-Arabíu Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Glódís Perla veik í jólafríið en enn taplaus Glódís og Hákon best í fótboltanum á árinu Frelsaði fjárfestirinn Dani Alves gefur sjálfum sér samning Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni „Allir virðast elska hann“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjá meira