Innlent

Þriggja bíla á­rekstur við Sprengi­sand

Eiður Þór Árnason skrifar
Bústaðavegur. Myndin er úr safni.
Bústaðavegur. Myndin er úr safni. Vísir/Arnar

Þriggja bíla árekstur varð á horni Bústaðavegar og Reykjanesbrautar við Sprengisand nú síðdegis og var einn fluttur á slysadeild. Betur fór en á horfðist að sögn slökkviliðs en búast má við truflunum á umferð þangað til að frágangi lýkur á vettvangi.

Tilkynning barst um slysið um klukkan hálf fjögur og þarf að flytja ökutæki á brott með krókabíl. Þetta segir Sigurjón Ólafsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í samtali við fréttastofu. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×