Erlent

Andrew hand­tekinn á heimili sínu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Andrew er ekki lengur Andrés prins.
Andrew er ekki lengur Andrés prins. EPA

Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Hann á afmæli í dag og er 66 ára gamall.

Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu fyrst á heimili hans í morgun, að afla gagna að því er fyrst sagði í fréttum breskra miðla, vegna rannsókna á meintum leka prinsins á trúnaðargögnum, meðal annars til milljarðamæringsins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. 

Breska blaðið The Telegraph greinir frá málinu. Í nýjustu uppfærslum fréttar þess segir að fyrrum prinsinn hafi verið handtekinn. Áður hafði prinsinn nýverið flust af heimili sínu við Windsor kastala í London og að Sandringham höll.

Miðilllinn segir einn lögreglubílanna hafa keyrt fyrir framan hús hans og segir að hinum fimm bílunum hafi verið lagt fyrir aftan húsið. Ómerktur lögreglubíll hafi svo yfirgefið svæðið þrjátíu mínútum síðar og tveir á eftir en Telegraph segir öryggisgæslu Andrew um borð í einum bílanna.

Sagður hafa lekið trúnaðarupplýsingum

Rannsókn lögreglu snýr að tímanum sem Andrew gegndi hlutverki sérstaks erindreka Bretlands. Nýjustu gögn vegna Epsteins málsins eru sögð benda til þess að hann hafi meðal annars árið 2010 lekið trúnaðarupplýsingum frá breska fjármálaráðuneytinu, meðal annars í tengslum við eftirmál íslenska bankahrunsins. Tölvupóstsamskipti eru sögð benda til þess að hann hafi þetta ár lekið gögnum til vinar síns bankamannsins Jonathan Rowland sem þá var forstjóri Banque Havilland sem hafði þá nýlega keypt eignir af Kaupþingi eftir bankahrun.

Á þessum tíma gegndi Andrew hlutverki sérstaks erindreka Bretlands á sviði viðskipta en Ísland og Bretland áttu þá í deilum í hinu svokallaða Icesave-máli, sem dregur nafn sitt af hávaxtareikningum sem Landsbankinn bauð upp á í Bretlandi og Hollandi í aðdraganda hrunsins en lokuðust þegar bankinn féll árið 2008 – og sparifjáreigendur komust því ekki í peningana sína.

Breska blaðið Telegraph efur sagt að í febrúar 2010 hafi ritari Mountbatten-Windsors beðið um minnisblað frá breska fjármálaráðuneytinu með uppfærslu um stöðu mála varðandi Icesave-deiluna. Tveimur klukkustundum eftir að Andrew fékk minnisblaðið í hendur hafi hann áframsent það á Jonathan Rowland.

„Maður á sjötugsaldri handtekinn“

Lögregluyfirvöld í Bretlandi hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna handtökunnar. Þar segir að vegna rannsóknar hafi „maður á sjötugsaldri frá Norfolk“ verið handtekinn vegna gruns um misferlis í opinberu starfi. Maðurinn sé í haldi.

„Við munum ekki nafngreina manninn sem var handtekinn,“ segir í yfirlýsingunni. Tekið er fram að lögregla átti sig á því að mikill áhugi sé á málinu og að yfirlýsingar vegna málsins verði gefnar út á viðeigandi tíma.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×