Ísland í dag - Ert þú bjargvættur, hetja, blóraböggull, týnda barnið eða trúðurinn?

Eru flestir sem eru í vanvirkum fjölskyldum fastir í ákveðnum hlutverkum? Bjargvætturinn, hetjan, blóraböggullinn, týnda barnið eða trúðurinn? Valdimar Þór Svavarsson rekur ásamt konu sinni Berglindi Magnúsdóttur ráðgjafastofuna Fyrsta skrefið. Og hefur hann meðal annars verið að fjalla um og halda námskeið og fyrirlestra um systkina hlutverkin í fjölskyldum. En hann er sérmenntaður í meðvirkni og áfallafræðum Og í dag er hans aðal verkefni að halda úti hljóðvarpi sem heitir Meðvirknipodcastið sem vakið hefur gríðarlega athygli. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og hitti Valdimar og fræddist meira um þessi spennandi mál.

882
19:22

Vinsælt í flokknum Ísland í dag