Umfjöllun og viðtöl: KA – ÍA 3-0 | Lánlausir Skagamenn steinlágu á Akureyri Fall blasir við Skagamönnum eftir slæmt tap á Akureyri í dag. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 29. ágúst 2021 19:34
Arnar Gunnlaugsson: Þetta var vonandi meistarasigur Víkingur Reykjavík vann FH 1-2 í fjörugum leik. Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings var afar sáttur með stigin þrjú og voru FH töluvert betri að hans mati. Sport 29. ágúst 2021 19:30
Verðum að nýta landsleikjafríið vel Heimir Guðjónsson þjálfari ríkjandi Íslandsmeistara Vals var að vonum ekki sáttur eftir 1-2 tap á heimavelli fyrir Stjörnunni. Íslenski boltinn 28. ágúst 2021 23:58
Umjöllun og viðtöl: Valur – Stjarnan 1-2 | Valsarar misstigu sig í toppbaráttunni Íslandsmeistarar Vals töðuðu 2-1 á móti Stjörnunni í Pepsi Max deild karla í fótbolta í kvöld. Gestirnir frá Garðabæ eru nú ansi nálægt því að tryggja sæti sitt í efstu deild, en tapið gæti orðið dýrkeypt fyrir Valsara í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Íslenski boltinn 28. ágúst 2021 21:10
Guðmann tók í lurginn á samherja sínum Guðmann Þórisson hafði lítinn húmor fyrir því þegar Hörður Ingi Gunnarsson, samherji hans, var að dútla með knöttinn í eigin vítateig gegn Keflavík er liðin mættust í Kaplakrika. Guðmann lét Hörð Inga heyra það og bakvörðurinn svaraði fullum hálsi. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 15:00
Lof og last: Viktor Örlygur, Sölvi Geir, Kristinn Steindórs, andleysi og misheppnað boð Kópacabana Síðustu fjóra daga hefur heil umferð farið fram í Pepsi Max deild karla. Raunar voru tveir leikir sem hafði verið frestað fyrr í sumar en það er aukaatriði. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last úr síðustu sex leikjum deildarinnar. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 12:00
Sjáum hvernig hann gengur frá þessum leik Kristinn Steindórsson var allt í öllu er Breiðablik vann 2-0 útisigur á KA og tyllti sér á topp Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 10:01
Mörkin sem skutu Blikum á toppinn og halda Evrópubaráttu KR á lífi Þrír leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í gær. Breiðablik tyllti sér á topp deildarinnar með 2-0 útisigri á KA, KR heldur í vonina um Evrópusæti eftir 2-0 útisigur á Akranesi og þá gerðu FH og Keflavík markalaust jafntefli. Íslenski boltinn 26. ágúst 2021 08:00
Umfjöllun og viðtöl: KA - Breiðablik 0-2 | Blikar á toppinn eftir sigur fyrir norðan Breiðablik lyfti sér í efsta sæti Pepsi Max deildarinnar með sterkum 2-0 útisigri gegn KA þegar fjórar umferðir eru eftir. Norðanmenn eru hinsvegar nánast búnir að stimpla sig út úr toppbaráttunni. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 21:39
Umfjöllun og viðtöl: ÍA - KR 0-2 | Skagamenn að renna út á tíma í fallbaráttunni Skagamenn fengu KR í heimsókn á Akranes í Pepsi-Max deild karla. Skagamenn að róa lífróður á botni deildarinnar en KR-ingar að gæla við baráttu um sæti í Evrópukeppni á næsta ári eftir góðan 2-0 útisigur. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 21:32
Sigurður Ragnar: Þessir strákar leystu hlutverkin sín með miklum sóma Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar þjálfara Keflavíkur, var ánægður eftir markalausa jafnteflið við FH í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:59
Umfjöllun og viðtöl: FH - Keflavík 0-0 | Bútasaumsvörn Keflvíkinga hélt í Krikanum FH og Keflavík gerðu markalaust jafntefli í Kaplakrika í frestuðum leik í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Þetta var annar leikur liðanna á fimm dögum en FH-ingar rúlluðu yfir Keflvíkinga suður með sjó á laugardaginn, 0-5. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:50
Kjartan Henry: Það kemur mér ekkert á óvart að Skagamönnum finnist eitthvað vera á móti sér KR fór og sótti þrjú stig á Akranes í kvöld þegar þeir mættu ÍA í Pepsi-Max deild karla. Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, var glaður í leikslok. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:49
Óskar Hrafn: Mikilvægt að menn faðmi hana, umvefji hana og kunni að elska hana Óskar Hrafn þjálfari Breiðabliks var ánægður þegar honum var tjáð að toppsætið væri Breiðabliks eftir góðan 2-0 útisigur á KA í kvöld. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 20:46
Steven Lennon ekki meira með á tímabilinu Framherjinn Steven Lennon verður ekki með FH-ingum í lokaleikjum tímabilsins eftir að hann meiddist á ökkla gegn Keflvíkingum um síðustu helgi. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 18:51
Þórsarar tóku illa í beiðni stuðningssveitar Blika Stuðningsfólk Þórs Akureyrar hefur lítinn áhuga á að styðja lið Breiðabliks í leiknum gegn KA í Pepsi Max deild karla í kvöld. Svo virðist sem bæjarstoltið toppi ríginn sem ríkir á milli félaganna. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 15:01
Vængbrotið lið KA getur blandað sér í toppbaráttuna Í kvöld mætast KA og Breiðablik á Greifavellinum á Akureyri í leik sem gæti skipt sköpum í toppbaráttu Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 14:31
Stuðningssveit Blika biður Þórsara um hjálp Kópacabana, stuðningsmannasveit Breiðabliks, hefur beðið um aðstoð fyrir leikinn mikilvæga gegn KA í kvöld. Sveitin hefur beðið gallharða Þórsara um að mæta með sér í stúkuna og styðja við bakið á Blikum er liðið mætir á Greifavöll í dag. Íslenski boltinn 25. ágúst 2021 08:01
Kristinn framlengir til ársins 2023 Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til ársins 2023. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 19:30
Eldskírn í bakverði í sex stiga fallslag: „Var bara frábær í þessum leik“ Hinn ungi og efnilegi Óli Valur Ómarsson lék í stöðu hægri bakvarðar í fallslag Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Óli Valur, sem leikur vanalega mun framar á vellinum, stóð sig með sóma en farið var yfir frammistöðu hans í Stúkunni að leik loknum. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 13:00
„Átti erfitt með að einbeita mér og muna hvað hafði gerst í leiknum“ Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður Stjörnunnar, þurfti að fara af velli í 2-0 sigri Garðabæjarliðsins á Fylki í Pepsi Max-deild karla í gær vegna heilahristings. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 12:01
Sjáðu mörk Stjörnunnar og umræðuna um markið sem var dæmt af Leikni: „Fyrir mér hefur hann ekki áhrif á leikinn“ Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í gærkvöld. Stjarnan vann gríðarlega mikilvægan 2-0 sigur á Fylki en fyrir leik voru bæði lið aðeins þremur stigum frá fallsæti. Leiknir Reykjavík og HK gerðu þá markalaust jafntefli þar sem mark var dæmt af Leikni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 08:31
Slysið haft mikil áhrif á feril Sölva: „Bíllinn flaug 40 metra“ Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings Reykjavíkur, tilkynnti í viðtali við Stöð 2 í gær að yfirstandandi leiktíð væri hans síðasta á ferlinum. Sá ferill hefur að miklu leyti einkennst af meiðslum sem rekja má aftur til bílslyss sem hann lenti í ungur að árum. Íslenski boltinn 24. ágúst 2021 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Garðbæingar unnu fallslaginn Stjarnan steig stórt skref frá fallsvæðinu í Pepsi Max-deild karla í fótbolta með 2-0 heimasigri á Fylki í kvöld. Fylkismenn eru í bráðri hættu eftir að hafa leikið sex leiki í röð án sigurs. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 22:10
„Þetta var góður vinnusigur hjá okkur og við spiluðum vel“ Stjörnumenn unnu 2-0 sigur á Fylki í Pepsi-Max deild karla á heimavelli í Garðabænum í kvöld. Þorvarldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var léttur í leikslok. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:50
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - HK 0-0 | Markalaust í Breiðholti Það var mikið í húfi fyrir gestina úr Kópavogi þegar þeir mættu nýliðum Leiknis á Domusnovavellinum.Markmenn beggja liða voru á tánum í leiknum og átti þeir báðir góðan leik. Í fyrri hálfleik átti Arnar Freyr Ólafsson frábæra markvörslu þegar hann varði skalla frá Sóloni Breka.Í seinni hálfleik varði Guy Smit þrumu skot frá Ívari Erni Jónssyni. Liðin fóru síðan bæði að skjóta boltanum langt fram sem lukkaðist ekki og 0-0 jafntefli niðurstaðan. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 21:12
Leiknir voru með flest alla sína leikmenn fyrir aftan miðju í seinni hálfleik HK sótti stig á Domusnovavellinum gegn Leikni. Fyriliði HK Leifur Andri Leifsson var ánægður með að liðið hélt hreinu en var svekktur að ná ekki inn einu marki. Sport 23. ágúst 2021 20:34
„Þetta er svolítið glórulaust hjá mér“ „Þetta gerðist svo fljótt að það eina sem mér datt í hug var að henda hausnum fyrir þetta. sagði Sölvi Geir Ottesen, varnarmaður Víkings, um björgun sína á marklínu með höfðinu er lið hans vann Val 2-1 í toppslag í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gær. Sölvi Geir segist ætla að hætta eftir tímabilið og vill kveðja með Íslandsmeistaratitli. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 19:00
Ekki háskaleikur hjá Sölva: „Held að maður hefði alltaf leyst þetta eins“ Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, telur að ekki hafi verið um háskaleik að ræða þegar Sölvi Geir Ottesen bjargaði á línu í leik Víkings og Vals í Pepsi Max-deild karla í gær. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 13:59
ÍTF vill fleiri en tvö hundruð í hverju hólfi og grímurnar burt Íslenskur toppfótbolti, hagsmunasamtök félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, telur rétt að endurskoða reglur um sóttvarnir á kappleikjum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Íslenski boltinn 23. ágúst 2021 13:30