
Segir að Jordan KA-liðsins gæti lent í vandræðum án Pippen
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður að draga vagninn fyrir KA í sumar þrátt fyrir að félagi hans, Elfar Árni Aðalsteinsson, verði fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður að draga vagninn fyrir KA í sumar þrátt fyrir að félagi hans, Elfar Árni Aðalsteinsson, verði fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Eiður Smári Guðjohnsen setti tvö aldursmet í efstu deild fyrir 26 árum síðan. Annað þeirra féll strax sama sumar en hitt á hann ennþá.
Annar sérfræðinganna spáði KR Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð en hinn sérfræðingurinn vildi alls ekki spá KR titlinum.
Helgi Valur Daníelsson er elstur allra útispilara í Pepsi Max-deild karla. Hann fékk nóg af fótbolta og hætti í þrjú ár. Helgi nýtti tímann til að klára að nám í lyfja- og efnafræði og fékk vinnu við nýja jáeindaskannann á Landsspítalanum þegar hann kom aftur heim.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 8. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.
Það er ekki bara leikstíll Breiðabliks sem mun breytast milli ára heldur hefur einn leikmaður liðsins ákveðið að breyta nafni sínu.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, viðurkennir að hann hafi haft samband við Heimi Guðjónsson eftir að hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá FH eftir tímabilið 2017.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, segist ekki hafa verið of harður við eldri og reyndari leikmenn Stjörnunnar eins og Veigar Pál Gunnarsson og Garðar Jóhannsson sem hann hleypti frá félaginu.
Íslensk knattspyrnufélög þurfa ekki að gera ráð fyrir börnum fimmtán ára og yngri þegar þeir takmarka fjölda áhorfenda á leiki sína í sumar.
Pepsi Max deildirnar fara af stað 12. og 13. júní næstkomandi og það verður mikið af beinum sjónvarpsútsendingum þessa fyrstu helgi Íslandsmótsins í knattspyrnu 2020.
Guðjón Pétur Lýðsson og Arnór Guðjohnsen deila metinu í efstu deild yfir flest mörk beint úr aukaspyrnu á einu tímabili. Það voru hins vegar sextán ár á milli afreka þeirra.
Þrátt fyrir erfiðleika utan vallar standa Skagamenn saman og ætli að láta að sér kveða í sumar að sögn Árna Snæs Ólafssonar. Markvörðurinn segir að ÍA muni spila öðruvísi fótbolta en í fyrra og vill að Skagamenn endurheimti stöðu sína í íslenskum fótbolta.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍA 9. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.
Pepsi Max deildarlið Víkings er komið með nýjan klefa, mun hann hjálpa þeim í toppbaráttunni í sumar?
Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar.
Íslandsmeistarar KR í fótbolta hafa ekki verið sannfærandi í þeim tveim æfingaleikjum sem liðið hefur spilað eftir kórónuveiruhléið. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir að hans menn þurfi að komast aftur upp á tærnar.
Óttar Magnús Karlsson sýndi enn og aftur hversu frábær spyrnumaður hann er þegar Víkingur tók á móti Stjörnunni í æfingaleik í gær.
Tveir FH-ingar eiga metið yfir flestar stoðsendingar á einu tímabili í efstu deild en alls hafa tuttugu leikmenn náð að gefa tíu stoðsendingar eða fleiri á einu tímabili.
Arnar Freyr Ólafsson varð ekki aðalmarkvörður í meistaraflokki fyrr en hann var 23 ára. Misvel gekk fyrst eftir að hann kom í HK en leiðin hefur legið upp á við frá miðju tímabili 2017. Góð samskipti eru ein stærsta ástæðan fyrir sterkum varnarleik HK.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 10. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar.
Haukur Páll Sigurðsson er spenntur fyrir komandi tímabili og segir Valsmenn stefna á toppbaráttu eins og svo mörg önnur lið í deildinni.
Ólafur Jóhannesson náði ekki að vinna titil með Valsmönnum á síðasta tímabil og þar með lauk langri sigurgöngu hans liða.
Pepsi Max deildarlið Vals og Breiðabliks gerðu 3-3 jafntefli á Kópavogsvelli í gærkvöld.
Heimir Guðjónsson segir leikmannahóp Vals kláran fyrir sumarið.
Breiðablik og Valur gerðu jafntefli í hörkuleik á Kópavogsvelli í kvöld.
Unglingalandsliðsmaðurinn Kristall Máni Ingason mun leika með Víking í Pepsi Max deildinni í sumar.
„Ég á í góðu sambandi við mína gömlu liðsfélaga,“ segir Gonzalo Zamorano, leikmaður Víkings Ó., en mikill hiti var í leiknum þegar hann mætti sínu gamla liði ÍA í vináttuleik í gær. Rauða spjaldið fór á loft og dómarinn vildi flauta leikinn af í kjölfarið.
Andri Rúnar Bjarnason er sá nýjasti sem jafnaði markametið í efstu deild og fékk inngöngu í nítján marka klúbbinn. Andri fékk vissulega færi til að skora tuttugasta markið.
Það er grunnt á því góða á milli ÍA og Víkings Ó. ef marka má æfingaleik liðanna á Akranesi í dag, í fótbolta karla, þar sem dómarinn virtist vilja flauta leikinn af eftir ljót brot og mikinn æsing í báðum liðum. KA vann Fylki á Akureyri, 1-0.
Landsliðsmaðurinn Emil Hallfreðsson spilar hugsanlega með FH í Pepsi Max-deildinni í fótbolta í sumar. Hann lék með liðinu í æfingaleik gegn Fram í dag.