„Galgopaleg orðræða“ leiði sjaldnast til framkvæmdar Geðlæknir sem framkvæmdi geðmat á sakborningum í hryðjuverkamálinu svokallaða bar fyrir dómi í dag að geðlæknisfræðilega stafaði hætta af hvorugum þeirra. „Ljóst er að yfirgnæfandi þorri galgopalegrar orðræðu ungra manna leiðir ekki til neinna framkvæmda, það er óskaplega mikil undantekning.“ Innlent 9. febrúar 2024 22:01
Bjargar börnum á Gasa og vinnur meiðyrðamál á Íslandi Landsréttur hefur staðfest sýknudóm úr héraði yfir Maríu Lilju Þrastardóttur aðgerðarsinna. Huginn Þór Grétarsson rithöfundur stefndi Maríu Lilju fyrir ummæli sem hún lét falla á Facebook í maí fyrir sex árum. María Lilja var ekki viðstödd dómsuppkvaðninguna en hún er að bjarga Palestínumönnum frá Gasa. Innlent 9. febrúar 2024 17:26
Riffillinn reyndist enn þá vera hálfsjálfvirkur Tæknifræðingur sem bar vitni í hryðjuverkamálinu svokallaða í dag segir að ekki sé mikið tiltökumál að breyta AR-15 riffli í hálfsjálfvirkan, sé maður sæmilega flinkur í höndunum. Hann sagði að riffill, sem Sindri Snær er sagður eiga, sé enn hálfsjálfvirkur. Hægt sé að skjóta þrjátíu skotum á tíu sekúndum úr honum. Innlent 9. febrúar 2024 16:56
Skorti sönnunargögn gegn stjúpafa á Suðurlandi Landsréttur hefur mildað dóm karlmanns sem stundaði það að taka myndir stjúpdóttur sinni og tveimur stjúpbarnabörnum ýmist nöktum eða klæðalitlum. Hann fékk fimmtán mánaða fangelsisdóm í héraði en Landsréttur taldi ekki sönnun komna fram hvað varðaði öll ákæruatriðin. Innlent 9. febrúar 2024 16:48
Unnustan segir Ísidór orðljótan en alls ekki ofbeldisfullan Kærasta Sindra Snæs Birgissonar, segir hann hafa verið í betra andlegu ástandi mánuðina áður en hryðjuverkamálið svokallaða kom upp en nokkurn tímann fyrr. Unnusta Ísidórs Nathanssonar segir hann hafa verið með nasistafána uppi á vegg en alls ekki ofbeldisfullan. Innlent 9. febrúar 2024 14:38
Fékk að prófa hálfsjálfvirkan riffil hjá föður ríkislögreglustjóra Faðir Sindra Snæs Birgissonar segir að sonur sinn hafi viljað breyta einskotariffli í hálfsjálfvirkan eftir að hafa fengið að prófa einn slíkan hjá Guðjóni Valdimarssyni, stórtækum vopnasafnara og föður ríkislögreglustjóra Innlent 9. febrúar 2024 12:33
Heilsuðust að nasistasið með lögreglu á hælunum Karl Steinar Valsson, sem stýrði aðgerðum þegar sakborningar í hryðjuverkamálinu svokallaða voru handteknir, segir að það hefði verið ábyrgðarleysi af hálfu lögregluyfirvalda að stíga ekki inn í málið. Hann lýsti því fyrir dómi að þeir Sindri Snær og Ísidór hefðu heilsast að nasistasið þegar lögregla sá Ísidór fyrst. Innlent 9. febrúar 2024 11:11
„Ég get ekki mótað hann eins og leir, hann er ekki strengjabrúða“ Ísidór Nathansson, sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintri skipulagningu Sindra Snæs Birgissonar á hryðjuverkum, segir fráleitt að ákæruvaldið haldi því fram að hann hafi hvatt Sindra Snæ til hryðjuverka. Hann hefur fyrir dómi ekki farið í grafgötur með umdeildar skoðanir sínar á samkynhneigðum og útlendingum. Innlent 8. febrúar 2024 21:00
Sindri segir meinta skipulagningu hryðjuverka hafa verið grín Sindri Snær Birgisson segir í skýrslutöku fyrir dómi að hann hafi ekki með nokkru móti verið að skipuleggja hryðjuverk þegar hann ræddi við félaga sinn um fjöldamorð, kaup á lögreglufatnaði, aðdáun á fjöldamorðingjum og fleira í þeim dúr. „Ég neita þessu alfarið, þetta er bara galið.“ Hann og verjandi hans hafa gagnrýnt ákæruvaldið harðlega fyrir að taka hlutina úr samhengi. Innlent 8. febrúar 2024 18:12
Sindri segist hafa framleitt lélegar byssur viljandi Sindri Snær Birgisson játar að hafa selt þremur nafngreindum einstaklingum þrívíddarprentuð skotvopn af gerðinni FCG. Hann segir aðeins eitt þeirra hafa virkað almennilega og hin hafi verið léleg af ásettu ráði. Innlent 8. febrúar 2024 12:26
Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu hefst: „Full ástæða til þess að vera bjartsýnn“ Aðalmeðferð í hryðjuverkamálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Héraðsdómur verður skipaður þremur embættisdómurum vegna umfangs og efnis málsins. Verjandi annars sakborninga segir fulla ástæðu til þess að vera bjartsýnn fyrir niðurstöðu málsins. Innlent 8. febrúar 2024 09:01
Nýtti Snapchat til að freista fermingarstúlkna og nauðga þeim Theódór Páll Theódórsson, þrítugur matreiðslumaður, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Hann þarf að greiða hvorri stúlkunni þrjár milljónir króna í miskabætur. Innlent 8. febrúar 2024 06:01
Sjónvarp gamla fólksins á Spáni ekki óhult enn Landsréttur hefur fellt frávísunarúrskurð héraðsdóms í máli Sýnar gegn Jóni Einari Eysteinssyni úr gildi að hluta. Sýn höfðaði mál á hendur honum fyrir að hafa gegn betri vitund selt ótilgreindum fjölda fólks aðgang að læstri dagskrá sjónvarpsstöðva og streymisveitu félagsins. Innlent 7. febrúar 2024 17:05
Vill axla ábyrgð eftir misheppnað rán á Pizzunni 23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán á veitingastaðnum Pizzunni fyrir rúmum tveimur árum. Hann hafði lítið upp úr krafsinu og missti bæði síma sinn og lykla á vettvangi glæpsins. Hann sagðist fyrir dómi vilja axla ábyrgð á brotum sínum en hann hefur farið í meðferð vegna fíknivanda. Innlent 7. febrúar 2024 15:56
Mannréttindi. Upplýsingaöflun lögreglu um einkamálefni manna Með 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar er öllum sem staddir eru innan íslenskrar lögsögu tryggður réttur til friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Í 2. mgr. sömu greinar er mælt fyrir um að ekki megi gera tilteknar rannsóknaraðgerðir sem skerða friðhelgi einkalífs nema samkvæmt dómsúrskurði eða sérstakri lagaheimild. Skoðun 7. febrúar 2024 09:00
Hæstiréttur tekur eggjastokkamál fyrir Hæstiréttur hefur veitt Sjúkratryggingum Íslands áfrýjunarleyfi í máli sem snýr að læknamistökum þegar eggjastokkur konu var fjarlægður án hennar vitneskju. Sjúkratryggingar voru dæmdar til að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur í Landsrétti. Innlent 6. febrúar 2024 16:13
Neitar að hafa reynt að drepa fólk í Silfratjörn Shokri Keryo, tvítugur karlmaður, neitaði sök þegar ákæra á hendur honum fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal var þingfest í dag. Innlent 6. febrúar 2024 14:10
Ekki lengur á Íslandi til að svara fyrir ofbeldi gegn konum Karlmaður frá Póllandi var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir líkamsárás gegn tveimur konum og hótunarbrot. Önnur konan er jafngömul manninum en hin tuttugu árum eldri. Maðurinn var ekki viðstaddur meðferð málsins. Innlent 5. febrúar 2024 17:11
Persónuvernd fær á baukinn og stefnir í milljóna endurgreiðslu Ríkið þarf að endurgreiða Reykjavíkurborg fimm milljónir króna auk vaxta vegna slapprar stjórnsýslu þegar Persónuvernd sektaði borgina vegna Seesaw-kerfis sem notað var í nokkrum grunnskólum borgarinnar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Kópavogur gæti krafið ríkið um fjögurra milljóna endurgreiðslu. Innlent 5. febrúar 2024 16:52
Fjölskyldan lýsti áralöngu ofbeldi en ekki fallist á brot í nánu sambandi Pólskur fjölskyldufaðir hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir og barnaverndarlagabrot gegn eiginkonu sinni og þremur börnum. Ekki var fallist á það með ákæruvaldinu að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi, þrátt fyrir að fjölskylda hans hafi lýst áralöngu ofbeldi af hans hálfu. Innlent 5. febrúar 2024 16:06
Lykilsönnunargagn ófundið í lífshættulegri skotárás Héraðssaksóknari hefur ákært Shokri Keryo, karlmann á 21. aldursári, fyrir tilraun til manndráps við Silfratjörn í Úlfarsárdal í nóvember síðastliðnum. Miskabótakrafa fimm einstaklinga sem ýmist urðu fyrir skoti eða stóð ógn af skotunum hljóðar upp á samanlagt níu milljónir króna. Skotvopnið er ófundið. Innlent 5. febrúar 2024 09:58
Óskar eftir því að dómur Hæstaréttar verði ræddur í nefnd Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur óskað þess að allsherjar- og menntamálanefnd taki til umræðu nýjan dóm Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Brynjari Joensen Creed og hvort að breyta þurfi ákvæðum hegningarlaga til að vernda börn betur. Innlent 3. febrúar 2024 17:05
Tugmilljóna mál skrifstofustjóra fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um áfrýjunarleyfi í máli Jóhanns Guðmundssonar, fyrrverandi skrifstofustjóra í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Jóhanni voru dæmdar 23,6 milljónir króna í skaða- og miskbætur vegna niðurlagningar ráðherra á embætti hans. Innlent 2. febrúar 2024 16:27
Borin út á börum eftir kynlíf en maðurinn sýknaður Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun og stórfellda líkamsárás, eftir að kona hlaut lífshættulega áverka eftir samfarir við manninn. Sonur konunnar gekk í skrokk á manninum síðar um nóttina í félagi við annan mann. Innlent 1. febrúar 2024 17:13
Ákærður fyrir að gabba lögregluna með sprengjuhótun: „Höfuð og hjörtu barna ykkar munu springa“ Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að senda tvær sprengjuhótanir sem bárust með tæplega 25 mínútna millibili í gegnum tölvupóst seint á febrúarkvöldi 2023. Innlent 1. febrúar 2024 07:00
Þungur dómur Zuisma-bróður stendur Áfrýjunarbeiðni Einars Ágústssonar, sem kenndur hefur verið við Zuisma, til Hæstaréttar hefur verið hafnað. Þriggja ára fangelsisdómur sem hann hlaut í Landsrétti stendur. Innlent 31. janúar 2024 20:00
Dómur Brynjars stendur þó ekki sé fallist á að netbrot séu nauðgun Kynferðisbrot þar sem gerandi og þolandi eru fjarri hvoru öðru og brotin fara fram í gegnum samfélagsmiðla eða samskiptaforrit teljast ekki til nauðgunar að mati Hæstaréttar. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar á hendur Brynjari Joensen Creed. Innlent 31. janúar 2024 15:45
Grunaður skotmaður í Silfratjörn segist hafa mátað hanska útataða púðri Maður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. febrúar næstkomandi vegna skotárásarinnar sem framin var í Silfratjörn í Úlfarsárdal í byrjun nóvembermánaðar. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þess efnis og birt hann á vef sínum. Innlent 31. janúar 2024 09:43
Grunaður um að brjóta á táningsstúlku og greiða henni fyrir Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot á fjórtán ára gamalli stúlku og fyrir að kaupa af henni vændi. Innlent 31. janúar 2024 07:01
Neita að afhenda lúxusvillu og hafa greitt tugi milljóna í dagsektir Félag í eigu sonar Karls Wernerssonar hefur greitt þrotabúi Karls tæpar 45 milljónir króna í dagsektir. Félaginu var með dómi Landsréttar gert að afhenda þrotabúinu ellefu hundruð fermetra íbúðarhús Karls í nágrenni við Lucca á Ítalíu, ellegar greiða 150 þúsund króna dagsektir. Innlent 30. janúar 2024 17:01