
Vilja spila leik í ensku C-deildinni á bandarískri grundu
Eigendur enska knattspyrnuliðsins Birmingham City hafa biðlað til forráðamanna ensku C-deildarinnar að heimaleikur þess við Hollywood-liðið Wrexham fari fram í Bandaríkjunum.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Eigendur enska knattspyrnuliðsins Birmingham City hafa biðlað til forráðamanna ensku C-deildarinnar að heimaleikur þess við Hollywood-liðið Wrexham fari fram í Bandaríkjunum.
Hinn hollenski Ruud van Nistelrooy, fyrrum framherji Manchester United, er nú orðaður við þjálfarastöðu hjá félaginu. Sjálfur lagði Nistelrooy skóna á hilluna 2012 en hefur sinnt ýmsum þjálfarastöðum í heimalandi sínu síðan 2014.
Alan Hansen er kominn heim til sín eftir að hafa eytt síðustu dögum á sjúkrahúsi.
Chelsea hefur keypt Estevao Willian frá brasilíska félaginu Palmeiras og það vantar ekki meðmælin úr herbúðum brasilíska félagsins.
Michael Olise fer ekki til Chelsea því hann valdi það frekar að semja við þýska liðið Bayern München.
Dan Friedkin, bandarískur eigandi og forseti ítalska félagsins Roma, hefur tryggt sér kauprétt á enska félaginu Everton. Kaupverð er talið vera um 400 milljónir punda.
Rodrigo Bentancur, leikmaður Tottenham, hefur beðið Son Heung-Min, fyrirliða Tottenham, afsökunar á rasískum ummælum sem hann lét falla í viðtali á dögunum.
Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni frá keppnistímabilinu 2025/26 til 2027/28.
Elísabet Gunnarsdóttir, betur þekkt sem Beta, er orðuð við þjálfarastöðu Aston Villa í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Elísabet hefur verið án starfs síðan hún lét af störfum hjá Kristianstad í Svíþjóð að lokinni síðustu leiktíð.
Sir Jim Ratcliffe segir að samkvæmt regluverki Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, megi Manchester United ekki kaupa leikmann af Nice þar sem hann á eignarhluta í báðum félögum.
Leicester City hefur ráðið Steve Cooper sem nýjan þjálfara liðsins og mun hann stýra liðinu í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.
Nýr knattspyrnustjóri Liverpool þarf ekki að kvarta mikið yfir erfiðri byrjun á stjóraferli sínum í ensku úrvalsdeildinni.
Arne Slot leitaði ráða hjá Jurgen Klopp áður en hann tók formlega við störfum hjá Liverpool í byrjun mánaðar. Hann mun taka þrjá þjálfara með sér frá Feyenoord.
Það vakti athygli þegar Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, mætti til Boston fyrir fyrsta leikinn á móti Dallas Mavericks í úrslitaeinvíginu um NBA titilinn í körfubolta. Nú er komið í ljós að þessi frábæri knattspyrnuþjálfari kann sitthvað fyrir sér í körfuboltanum líka.
Manchester United skoðar nú hvort það sé möguleiki á að festa kaup á framherjanum Joshua Zirkzee, leikmanni Bologna á Ítalíu.
Leikjaniðurröðun tímabilsins 2024-25 í ensku úrvalsdeildinni var birt fyrr í dag. Ljóst er að ferðakostnaður West Ham verður ekki hár í upphafi tímabils.
Enska úrvalsdeildin gaf í morgun út leikjaniðurröðunina fyrir 2024-25 tímabilið.
Það virðist sem mark Jóns Dags Þorsteinssonar á Wembley hafi kveikt áhuga þónokkurra liða í ensku úrvalsdeildinni á þessum flinka vængmanni.
Manchester City er tilbúið að fara inn í nýtt keppnistímabil með sama leikmannahóp og tryggði félaginu á dögunum fjórða enska meistaratitilinn í röð.
Ítalska knattspyrnufélagið Juventus ætlar sér að slá tvær flugur með einu höggi með því að kaupa brasilíska knattspyrnumanninn Douglas Luiz frá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa.
Erik Ten Hag fékk að halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri Manchester United en er meðvitaður um að yfirmenn hans skoðuðu aðra möguleika. Hann segir þá hafa komist að þeirri niðurstöðu að hann væri besta mögulegi maðurinn.
Það hefur mikið gengið á hjá Manchester United síðan Erik Ten Hag tók við liðinu sumarið 2022.
Brighton & Hove Albion heldur áfram að fara ótroðnar slóðir í þjálfararáðningum sínum en nýr þjálfari liðsins mun verða sá yngsti í sögu ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu.
Kevin Campbell, fyrrum framherji Arsenal og Everton, er látinn eftir stutta baráttu við veikindi. Campbell var 54 ára.
Matija Sarkic, markvörður Millwall, er látinn aðeins 26 ára gamall. Sarkic var bráðkvaddur á heimili sínu í Budva í Svartfjallalandi en hann lék alls níu landsleiki fyrir Svartfjallaland.
Manchester United mun hefja endurbætur á æfingasvæðinu Carrington í næstu viku. Alls verður 50 milljónum punda varið í framkvæmdirnar sem munu standa yfir allt næsta tímabil.
Adam Lallana hefur gengið frá samningi við enska félagið Southampton. Hann snýr því aftur til uppeldisfélagsins eftir tíu ár annars staðar.
Man. Utd hefur náð samningi við Jarrad Branthwaite, varnarmann Everton, en þarf að opna veskið duglega til að fá hann.
Sam Kerr, ein besta knattspyrnukona heims, verður áfram á mála hjá Englandsmeisturum Chelsea. Nýr samningur hennar var tilkynntur með hádramatísku myndbandi þar sem það virtist sem hún væri á förum frá félaginu.
Rio Ferdinand, fyrrverandi miðvörður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, myndi selja Harry Maguire ef ákvörðunin væri hans. Þá myndi hann vilja tala við þá Marcus Rashford og Mason Greenwood áður en hann tæki ákvörðun.