Eurovision: Hera í ham - myndband Við fylgdumst með Heru Björk í hádeginu í dag þegar hún tók á móti fjölmiðlum á hótelinu í Osló þar sem hún dvelur ásamt fylgdarliði. Lífið 26. maí 2010 18:00
Eurovision: Við stefnum klárlega á sigur Við hittum Jónatan Garðarsson sem heldur utan um íslenska Eurovisionhópinn í Osló í hádeginu í dag. „Það sem ég geri er að skipuleggja þetta frá a-ö. Núna eru margir í hópnum sem hafa gert þetta áður og vita hvaða kröfur ég geri," segir Jónatan. Sjá viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði. Lífið 26. maí 2010 17:30
Eurovision: BBC vill Heru Björk Annað kvöld verður tveimur keppendum sem Bretum þykir að hafi slegið í gegn í gærkvöldi boðið að vera í beinni útsendingu á BBC þegar seinni riðillinn er sýndur þar annað kvöld. Hera Björk er annar af keppendunum en ekki hefur fengist uppgefið hver hinn keppandinn er. Fólk er að velta fyrir sér hvort það sé Grikkinn eða Belginn. Breski Eurovisionklúbburinn hefur spáð Heru Björk sigri í ár. Lífið 26. maí 2010 15:30
Eurovision: Norrænir fjölmiðlar með Heru á heilanum Langflestir norrænir fjölmiðlar slá því upp að Hera Björk hafi komist áfram í umfjöllun sinni um undankeppni Eurovision í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 15:00
Eurovision: Ég verð fyrsti Íslendingurinn sem sigrar „Ég verð fyrsti Íslendingurinn til að sigra Eurovisionkeppnina,“ segir Hera Björk meðal annars í myndskeiðinu. Lífið 26. maí 2010 12:30
Eurovision: Nei, ekki aftur! Jónatan dró 16. sætið fyrir Ísland Hér má sjá þegar Jónatan Garðarsson dregur töluna 16 á blaðamannafundi í gærkvöldi. Þetta þýðir að Ísland verður númer 16 á sviðið af 25 löndum. Lífið 26. maí 2010 10:45
Eurovision: Gríska goðið fílar Ísland Við spjölluðum við söngvarann og lagahöfundinn Giorgos Alkaios, fulltrúa Grikklands í Eurovisionkeppninni, eftir lokaæfinguna í gærdag. Við spurðum gríska goðið út í atriðið hans og hvernig honum líst á íslenska hópinn. Grikkinn komst upp úr fyrri undanúrslitakeppninni með lagið OPA sem fram fór í Telenor höllinni í Osló í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 09:30
Eurovision: Hera hágrét - myndband Hera Björk grét eins og fegurðardrottningarnar þegar úrslitin voru kynnt í gærkvöldi. Lífið 26. maí 2010 06:30
Eurovision: Fjölmiðlabann Heru Örlygur Smári lagahöfundur framlags Íslands í Eurovision og Kristjana Stefánsdóttir söngkona veittu okkur viðtal eftir æfinguna fyrir utan Telenor höllina í gærdag. Lífið 26. maí 2010 05:30
Eurovision: Í sigurvímu á blaðamannafundi eftir keppni Hera, sem var í sigurvímu eins og allir í íslenska Eurovisionhópnum, var ekki lengi að svara á léttu nótunum aðspurð hvort hún persónulega stoppaði eldgosið á Íslandi. Lífið 26. maí 2010 01:00
Eurovision: Símkerfið tilbúið fyrir átökin Búist er við miklu álagi á íslenska símkerfið í kvöld enda eru Íslendingar jafnan manna duglegastir að taka þátt í kosningunni í Eurovision. Lífið 25. maí 2010 17:45
Eurovision: Tilbúin fyrir stóru stundina - myndir Hera Björk og Örlygur Smári höfundar lagsins Je Ne Sais Quoi eru ánægð með síðustu æfinguna sem fram fór í Telenor höllinni í Osló dag. Í kvöld flytur Hera ásamt söngvurum lagið í beinni útsendingu í fyrra undanúrslitakvöldi Evrópusöngvakeppninnar sem hefst klukkan 19:00 í kvöld. Sautján lög verða flutt og komast tíu lög áfram í úrslitakeppnina á laugardag. Skoða má Heru Björk og hennar fólk í myndasafninu en þau verða síðust á svið í kvöld. Lífið 25. maí 2010 16:45
Eurovision: Sigmar þulur er bjartsýnn - myndband Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður trúir því eins og íslenska þjóðin að Hera Björk og hennar föruneyti komist áfram í aðalkeppnina sem er á laugardaginn næsta. Lífið 25. maí 2010 15:30
Eurovison: Kjóllinn geymdur á öruggum stað Við kíktum í morgun á hótelið þar sem íslenski hópurinn dvelur. Þar hittum við Emilíönu Tómasdóttur hárgreiðslukonu, Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, Elínu Reynisdóttur förðunarfræðing og Birnu Gyðu Björnsdóttur danshöfund. Lífið 25. maí 2010 12:30
Eurovision: Fær enga athygli í Osló - myndband Örlygur Smári segist ekki vera kominn til Noregs til að baða sig í athygli. Hann er ánægður með að fókusinn sé á Heru. Lífið 25. maí 2010 11:00
Samstilltur Eurovision hópur - myndband Meðfylgjandi myndband sýnir hópinn skunda í rigningunni í gær í rútuna á leið þeirra í Telenor höllina í Osló. Lífið 25. maí 2010 10:00
Eurovisionkveðja frá Osló - myndband „Við erum að fara upp á herbergi með smá pizzu áður en við förum á æfingu núna í kvöld í Telenor-höllinni," sagði Pétur Örn Guðmundsson söngvari sem var með fangið fullt af pizzum þegar við hittum hann og söngkonurnar Heiðu Ólafs og Ernu Hrönn á Radisson hótelinu í Osló í gærkvöldi. Þá senda söngvararnir Íslendingum hlýja Eurovisionkveðju í meðfylgjandi myndskeiði. Hera Björk á rauða dreglinum. Lífið 25. maí 2010 06:00
Hera Björk stelur senunni í Osló - myndir Opnunarhátíð Eurovisionkeppninnar var haldin hátíðleg í Ráðhúsi Oslóar í gær þar sem norski dúettinn Bobbysocks söng meðal annars lagið La det swinge við mikinn fögnuð viðstaddra. Hera Björk fékk gríðarlega mikla athygli fjölmiðla þegar hún mætti á rauða dregilinn. Lífið 24. maí 2010 20:03
Eurovision-hópurinn vel stemmdur fyrir lokarennslin - myndir Örlygur Smári er bjartsýnn og segir einfaldleika íslenska atriðisins gera það að verkum að myndvinnslan er fyrsta flokks. Lífið 24. maí 2010 13:00
Kjóll Jóhönnu Guðrúnar vakti athygli á stóra sviðinu Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún mun klæðast í forkeppni Eurovision á þriðjudagskvöld vakti mikla athygli á æfingum í Moskvu í gær. Mikil leynd hefur hvílt yfir honum en það er fatahönnunartvíeykið Andersen & Lauth sem á heiðurinn að honum. Tíska og hönnun 8. maí 2009 09:00
Alíslenskt undanúrslitakvöld Annað undanúrslitakvöldið í Eurovisionforvalinu brestur á eftir Spaugstofuna á laugardaginn. Okkur er boðið upp á fjögur lög, það fyrsta, "Fósturjörð“, er eftir Einar Scheving. Einar hefur verið í fremstu röð íslenskra trommara lengi og vakti mikla athygli nýlega fyrir jazzplötuna Cycles. Lagið hans er dramatískur ættjarðaróður sem Páll Rósinkranz syngur hnarreistur. Lífið 15. janúar 2009 06:00
Sökuð um svindl í Eurovision "Við þurfum svo sem enga bakraddasöngvara. Ég er til dæmis svo kröftugur að ég gæti tekið þetta einn. Þótt þetta séu toppmenn í húsbandinu var þetta óþarfi og hugsað sem alger uppfylling,“ segir Egill Einarsson, Lífið 15. febrúar 2008 06:00
Euro-nördar gráta Haffa Haff Eurovision-nördar hafa látið í ljós óánægju sína með að Haffi Haff komst ekki áfram um síðustu helgi. Tónlist 13. febrúar 2008 04:00
Haffi, Gröndal og jötnarnir Áfram heldur Eurovisionmaraþonið í Laugardagslögum Rúv. Í kvöld er komið að fjórða og síðasta undanúrslitakvöldið og að því yfirstöðnu verður loksins ljóst hvaða átta lög keppa til sigurs á stóra úrslitakvöldinu 23. febrúar. Tónlist 9. febrúar 2008 03:00
Partí-Hanz rindill við hlið helmassaðs Gaz-manns Mercedes Club með syngjandi vöðvabúnt í viðbragðsstöðu. Lífið 9. janúar 2008 06:00
Hver fer til Belgrad? Það kemur í ljós laugardagskvöldið 23. febrúar hvaða lag verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Belgrad í maí. Keppnin hefur sem kunnugt er farið fram í Laugardagslögunum og það eru enn sjö þættir eftir. Fyrirkomulag keppninnar þykir nokkuð flókið og því er ekki úr vegi að útskýra næstu skref. Lífið 4. janúar 2008 04:00
Waterloo besta Eurovision-lagið Lagið Waterloo, sem hljómsveitin Abba flutti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 1974, var í gærkvöld valið Eurovision-lag allra tíma á hátíð, sem haldin var í Kaupmannahöfn en Eurovision hefur nú verið haldið 50 sinnum. Tónlist 23. október 2005 10:00
Bestu lögin koma á plötu Sjónvarpið hefur falið fyrirtækinu BaseCamp að sjá um framkvæmd forkeppni Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva hér heima á næsta ári. Frestur til að skila inn lögum rennur út 18. næsta mánaðar, en skilyrði er að texti sé á íslensku, auk þess sem lagið má ekki vera lengra en þrjá mínútur. > Innlent 12. október 2005 00:01
Um 24 lög í forkeppni Eurovision Sjónvarpið stefnir að því að 24 lög taki þátt í forkeppni fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á næsta ári. Jóhanna Jóhannsdóttir, aðstoðardeildarstjóri í innlendri dagskrárdeild hjá Ríkisútvarpinu, segir ekki fullmótað með hvaða hætti keppnin verði. Innlent 12. september 2005 00:01
Björgvin í sigursæti í Ástralíu Björgvin Björgvinsson sigraði í svigkeppni í Ástralíu í morgun. Sindri Már Pálsson varð sjöundi og Kristinn Ingi Valsson áttundi. Kristján Uni Óskarsson keyrði út úr brautinni í seinni ferðinni. Björgvin Björgvinsson hefur forystu í stigakeppni þessa móts en þarna keppa skíðamenn aðallega frá Nýja Sjálandi og Ástralíu. Innlent 1. september 2005 00:01