

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Valur lenti í engum vandræðum með Gróttu um helgina er liðin mættust í 2. umferð Pepsi Max-deildar karla. Spekingarnir í Pepsi Max-stúkunni sögðu Valsmenn hafa fengið alltof mikið pláss og tíma í leiknum.
Það tók allt í allt fjórtán sekúndur að dæma mark Höskuldar Gunnlaugssonar af í leiknum gegn Fylki á sunnudaginn en þessu greindi Guðmundur Benediktsson frá í Pepsi Max-stúkunni á mánudagskvöldið.
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion mun ekki spila með Fylki í sumar eins og vonir stóðu til. Málið strandar á indónesíska knattspyrnusambandinu.
KA fékk í vetur til sín Mikkel Qvist en hann kom til félagsins að láni frá Horsens í Danmörku. Aðal styrkleiki Qvist eru rosaleg innköst eins og sást í markalausa jafnteflinu gegn Víkingi um helgina.
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, segir að varnarmaður liðsins, Eiður Aron Sigurbjörnsson, sé ekki á förum frá félaginu.
Hildur Antonsdóttir, miðjumaður Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna, er með slitið krossband.
Rúnar Kristinsson var ómyrkur í máli eftir 8-1 sigur KR á Vængjum Júpíters í Mjólkurbikarnum en Gunnar Þór meiddist illa í leiknum og hefur líklega leikið sinn síðasta leik á ferlinum.
KR átti aldrei möguleika á Kópavogsvelli í kvöld. Lokatölur 6-0 Breiðablik í vil.
KR-ingar töpuðu stórt fyrir Breiðablik í Pepsi Max deild kvenna í kvöld, lokatölur 6-0 á Kópavogsvelli en spilamennska KR var ekki upp á marga fiska.
Fyrstu mörk Gróttu komu gegn 3. deildarliði Hattar/Hugins í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.
Selfoss vann FH 2-0 í Hafnafirði í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Nýliðar FH eru enn án stiga og hafa ekki skorað mark.
Fram vann ÍR í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í kvöld.
Nik Anthony Chamberlain, þjálfari Þróttar, var mjög ánægður með stigið eftir 2-2 jafntefli Þróttar gegn Fylki í Lautinni.
FH og Selfoss voru bæði án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Pepsi Max-deild kvenna. Selfoss vann öruggan 2-0 sigur í Hafnafirði í kvöld og sá til þess að nýliðar FH eru enn án stiga.
Breiðablik valtaði yfir KR á Kópavogsvelli í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Lokatölur 6-0 fyrir Blikum en yfirburðirnir voru gríðarlegir.
Þróttur náði í óvænt stig í Lautinni í kvöld. Lokatölur 2-2 en bæði lið skoruðu í uppbótartíma.
KR, Valur og Afturelding eru komin áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla.
ÍBV flaug örugglega inn í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Fram er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir 3-1 sigur á 2. deildarliði ÍR. Þrjú af fjórum mörkum leiksins komu í fyrri hálfleik en gestirnir úr Breiðholti komust yfir í leiknum.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson, leikmaður FH og þjálfari ÍH, ræddi komandi leik ÍH og Fylkis í Mjólkurbikarnum við Gaupa í Sportpakka kvöldsins á Stöð 2.
Knattspyrnudeild Þórs hefur loks tjáð sig um atvikið eftir leik liðsins gegn Grindavík í Lengjudeildinni þar sem leikmenn og þjálfarar auglýstu vísvitandi erlent veðmálafyrirtæki.
Óvænt stjarna HK á móti KR á Meistaravöllum fékk bæði verðlaunin frá Gumma Ben og félögum í Pepsi Max Stúkunni.
Þróttur teflir fram nýjum leikmanni í Árbænum í Pepsi Max deild kvenna í kvöld þegar hin bandaríska Morgan Goff spilar sinn fyrsta leik með liðinu.
32 liða úrslit Mjólkurbikars karla í knattspyrnu hefjast í dag og þau gætu orðið söguleg fyrir liðin sem eru nú að koma inn í aðalkeppnina.
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur vísað til aga- og úskurðarnefndar máli Þórsara á Akureyri sem auglýstu erlent veðmálafyrirtæki í viðtölum. Um lögbrot er að ræða sem varðað getur sektum eða allt að hálfs árs fangelsi.
Tómas Ingi Tómasson stýrir og Bjarnólfur Lárusson leiðir sannkallað kempulið sem keppir fjóra leiki í sumar og leyfir þjóðinni að fylgjast með í nýjum sjónvarpsþáttum.
Kvennalið Fylkis hefur unnið alla níu keppnisleiki sína á árinu 2020 en sá tíundi verður í kvöld þegar nýliðar Þróttar koma í heimsókn.
Ef allt gengur eins og í draumi hjá karlaliði Fram í fótbolta í sumar gæti liðið „þurft“ að leika á Laugardalsvelli á næstu leiktíð. Sumarið 2022 standa vonir hins vegar til að ný og glæsileg aðstaða í Úlfarsárdal verði tilbúin fyrir liðið.
Guðmundur Benediktsson, þáttarstjórnandi Pepsi Max-stúkunnar, birti skemmtilegt myndband af Tryggva Hrafni Haraldssyni undir lok leiks FH og ÍA á sunnudaginn.
3. deildarliðið Höttur/Huginn fær ærið verkefni í kvöld er liðið mætir úrvalsdeildarliði Gróttu í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Viðar Jónsson, þjálfari liðsins, segir að stemning sé í hópnum fyrir kvöldinu og að menn séu spenntir fyrir sjónvarpsleik.