

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Þrír í haldi lögreglu vegna líkamsárásar
Þrír eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir líkamsárás í nótt þar sem eggvopni var beitt.

Vildu stöðva „stjórnlausa afbrotahrinu“ í Hrísey
Lögreglan á Norðurlandi eystra fór meðal annars fram á gæsluvarðhald yfir manni búsettum í Hrísey sem grunaður er um fjölmörg ofbeldisbrot til þess að stöðva afbrotahrinu hans, sem lögreglan segir að virðist hafa verið orðin stjórnlaus.

Gekk berserksgang á heilsugæslu
Karlmaður sem gekk berserksgang á heilsugæslunni á Reyðarfirði í ágúst á síðasta ári hefur verið ákærður.

Ekkert bendir til þess að barnið hafi lent í slysi
Málið er nú í höndum lækna, sem kanna hvort veikindi barnsins hafi valdið því að það missti meðvitund á leikskólanum Álfasteini í Hörgársveit á föstudag.

Framkvæmdastjórinn nýtur fulls trausts
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins Gunnvarar sem gerir út frystitogarann Júlíus Geirmundsson, nýtur traust stjórnar til að takast á við þau verkefni sem eru fram undan.

Ekkert bendi til saknæms athæfis í tengslum við húsbílabrunann
Ekki eru vísbendingar um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað í tengslum við húsbílabruna í Grafningi í byrjun þessa mánaðar.

Lögreglan ræðir við áhöfn Júllans
Lögreglan á Vestfjörðum mun ræða við áhöfn frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar.

Barnið á batavegi eftir slys í Hörgársveit
Barnið sem flutt var á sjúkrahús í Reykjavík eftir slys á leikskólanum Álfasteini í Hörgársveit á föstudag er á batavegi og virðist ekki hafa slasast alvarlega.

Sextán ára stal bílnum hennar mömmu
Sextán ára gamall ökumaður var stöðvaður af lögreglu í austurbænum í gærkvöldi.

Tómar fangageymslur í nótt
Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru tómar snemma í morgun sem þykir sæta tíðindum. Samkomubann og takmarkanir á starfsemi veitinga- og öldurhúsa hefur nú verið í gildi um nokkurra vikna skeið.

Áhöfnum tveggja báta brugðið eftir að þeir strönduðu
Bátur og skúta sem var í eftirtogi strönduðu í Njarðvík í dag en viðbragðsaðilum tókst að koma í veg fyrir slys á fólki.

Spellvirkjar skildu eftir sig eyðileggingu og brennivínsflöskur í Guðmundarlundi
Miklar skemmdir voru unnar á aðstöðu á útivistarsvæðinu Guðmundarlundi í Kópavogi í nótt. Rústuðu skemmdarvargarnir meðal annars klósetti, brutu bekki og rifu upp þungar öskutunnur.

Lögregla metur hvort rannsaka eigi hópsýkinguna á togaranum
Lögreglan á Vestfjörðum skoðar nú hvort ástæða sé til að rannsaka mál skipverjanna um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni.

Fjögur ungmenni á slysadeild eftir árekstur í Kópavogi
Bíl var ekið gegn rauðu ljósi yfir gatnamót og inn í hlið bifreiðar með fjórum ungmennum undir lögaldri um borð á tólfta tímanum í gærkvöldi. Ungmennin voru flutt á bráðadeild en upplýsingar um meiðsli þeirra liggja ekki fyrir, að sögn lögreglu.

Líkamsárás í austurbænum og trampólín braut stofuglugga
Skömmu eftir klukkan átta í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás í hverfi 108 í Reykjavík.

Rannsaka verkfæraþjófnað
Þjófnaður á talsverðu magni verkfæra og dokaplatna af byggingasvæðum á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur er nú til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Banaslys í malarnámu í Þrengslunum
Karlmaður á sextugsaldri fannst látinn í malarnámu í Þrengslunum í morgun. Jarðýta sem maðurinn stjórnaði virðist hafa farið fram af brún og fallið ofan í námuna úr mikilli hæð.

Fyrrverandi forstjóri Matís sýknaður af ákæru vegna heimaslátrunar
Sveinn Margeirsson, fyrrverandi forstjóri Matís, var á þriðjudag sýknaður af ákæru fyrir brot gegn lögum um slátrun og sláturafurðir með því að hafa staðið að sölu og dreifingu á fersku lambakjöti sem slátrað hafði verið utan löggilts sláturhúss.

Allir þrír áttu að vera í einangrun
Skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi hafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu afskipti af þremur mönnum í Hafnarfirði vegna gruns um brott á sóttvarnalögum.

Réðst á nágrannakonu í heimahúsi í Hafnarfirði
Karlmaður var handtekinn fyrir að ráðast á nágrannakonu sína í heimahúsi í Norðurhellu í Hafnarfirði í kvöld. Konan var flutt með minniháttar áverka til aðhlynningar á slysadeild samkvæmt upplýsingum lögreglu.

Rannsaka alvarlega líkamsárás í Borgarnesi
Lögregla á Vesturlandi rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem gerð var í Borgarnesi á mánudagskvöld.

Handtekinn grunaður um þjófnað og brot á sóttkví
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti tvívegis í gærkvöldi að hafa afskipti af fólki fyrir brot á sóttvarnarlögum.

Handtekinn grunaður um brot á sóttkví
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af tveimur ölvuðum mönnum í miðborg Reykjavíkur skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Annar maðurinn er grunaður um brot á sóttkví þar sem hann var nýlega kominn til landsins.

Fjögurra vikna síbrotagæsla fyrir ránin þrjú um helgina
Átján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fimm vikna síbrotagæslu til 16. nóvember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sagðir hafa hótað drengnum ofbeldi með ostaskera og pinna
Landsréttur hefur vísað frá kröfu annars þeirra sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald í tengslum við frelssissviptingarmál á Akureyri í síðustu viku, þess efnis að gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yrði felldur úr gildi

Handtekinn fyrir að hafa hrópað að ungmennum og berað sig
Að minnsta kosti tvívegis hefur lögregla þurft að handtaka ölvaðan karlmann á fertugsaldri í Laugardalnum sem ýmist hefur hrópað að krökkum að leik eða berað sig fyrir þeim. Umræddur maður hefur ítrekað snúið til baka, síðast á laugardag.

16 ára piltur fluttur á slysadeild eftir líkamsárás
Laust fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um líkamsárás í hverfi 108 í Reykjavík.

Fjögur vopnuð rán á þremur dögum
Ungur karlmaður er grunaður um að hafa framið þrjú vopnuð rán á tveimur dögum. Maðurinn var handtekinn í gær eftir að hafa framið vopnað rán í Pylsuvagninum.

Fjórtán stöðvaðir vegna vímuefnaaksturs
Lögreglan stöðvaði fjórtán ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna aksturs undir áhrifum áfengis eða vímuefna.

Handtekinn á Austurvelli grunaður um vopnað rán
Sérsveit handtók mann á Austurvelli í dag sem hafði framið vopnað rán í verslun í austurborginni. Myndbandi af handtökunni hefur verið deilt á samfélagsmiðlum og vakið nokkra athygli.