
Maðurinn sem var stunginn enn á sjúkrahúsi
Maðurinn sem leitaði á bráðamóttöku í gær eftir að hafa verið stunginn í brjóstkassa er enn á sjúkrahúsi. Að öðru leyti liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins en málið er í rannsókn.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Maðurinn sem leitaði á bráðamóttöku í gær eftir að hafa verið stunginn í brjóstkassa er enn á sjúkrahúsi. Að öðru leyti liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins en málið er í rannsókn.
Gangandi vegfarandi sem var ekið á laust eftir miðnætti á Sæbraut við Vogabyggð er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Laust eftir miðnætti var ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut við Vogabyggð og sjúkraflutningafólk og lögregla kölluð út vegna þessa. Um alvarlegt umferðarslys var að ræða.
Maður leitaði til bráðamóttöku í nótt eftir að hann hafði verið stunginn í brjóstkassa. Ekki liggur fyrir hvaða vopni var beitt en málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Tilkynnt var um þjófnað á kreditkorti sem hafði svo verið notað í miðbænum til að versla fyrir háar upphæðir. Lögregla fór á staðinn til að afla upplýsinga og málið er í rannsókn.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rúmlega eitt í dag vegna fjórhjólaslyss sem átti sér stað á Hagabraut á svokölluðum Gíslholtshring í Rangárþingi ytra.
Lögregla hafði afskipti af manni sem hafði„útdraganlega kylfu“ meðferðis í miðbænum í nótt.
Lögreglan á Vesturlandi þurfti að veita bíl eftirför sem ók á ofsahraða um Vesturlandsveg, Borgarfjarðarbraut og Hvítarfjallarveg í Borgarfirði í gærkvöldi. Bílstjórinn og farþegar bílsins voru sautján og átján ára gamlir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti á þriðja tímanum í dag eftir tveimur mönnum, sem hún sagðist þurfa að ná tali af. Ekki kom fram vegna hvers en myndir af mönnunum voru úr öryggismyndavélum.
Matvælastofnun hefur kært tvo einstaklinga til lögreglu fyrir hótanir í garð eftirlitsmanns stofnunarinnar. Um er að ræða tvo aðskilin atvik en báðir kærðu eru búfjáreigendur.
Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum við eftirlit lögreglu í gærkvöldi, þar sem settur var upp „ölvunarpóstur“ á Reykjanesbraut. Aðrir reyndust í lagi.
Héraðssaksóknari hefur ákært Brynjar Joensen Creed fyrir kynferðislega áreitni gegn átta stúlkum. Stúlkurnar voru aldrinum 11 til 14 ára þegar brotin eiga að hafa átt sér stað. Brynjar afplánar nú sjö ára dóm fyrir nauðganir og önnur brot gegn fimm stúlkum. Fjallað var fyrst um ákæruna á vef RÚV í kvöld.
Skipstjóri hjá Samherja segir að síðasta orðið hafi ekki verið sagt í máli sem varðar byrlun og stuldi á síma hans þrátt fyrir að lögreglan hafi fellt rannsókn á því niður. Hann sakar blaðamenn um blekkingar og að afvegaleiða rannsóknina.
Áralöng rannsókn lögreglustjóran á Norðurlandi eystra á sex blaðamönnum hefur ekki aðeins kælingaráhrif á þá heldur á alla stéttina, að sögn formanns Blaðamannafélags Íslands. Málið hafi hvílt þungt á mörgum.
Blaðamannafélag Íslands fagnar því að margra ára rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á hendur sex blaðamönnum sé nú lokið. Samt sem áður lýsir félagið yfir þungum áhyggjum af því að Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra skuli um margra ára skeið hafa haft blaðamenn til rannsóknar fyrir að sinna starfi sínu.
Fyrrverandi ritstjóri Kjarnans og sakborningur í byrlunar- og símastuldsmáli Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja segir einstökum aðförum í sögu Íslands loks lokið eftir 961 dags rannsókn. Hann er hugsi yfir réttlætingu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra á rannsókninni.
Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur tekið ákvörðun um að hætta rannsókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upplýsingum af síma einstaklings og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Sex blaðamenn fengu réttarstöðu sakbornings í málinu auk fyrrverandi eiginkonu Páls.
Þýfi að verðmæti tugmilljóna króna úr tveimur verslunum Elko á höfuðborgarsvæðinu er enn ófundið. Sjö voru handteknir í tengslum við málið en um er að ræða Rúmena sem hafa ekki búsetu hér á landi.
Sérfræðingur hjá ASÍ vill skoða hvort takmarka eigi starfsemi starfsmannaleiga. Starfsmenn leiganna séu of útsettir fyrir mansali þótt að alls ekki allar starfsmannaleigur gerist sekar um vinnumansal.
Sextán ára piltur sem grunaður er um að hafa banað sautján ára stúlku með hnífi við Skúlagötu í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Beiting eggvopna, kyrkingar og barsmíðar eru algengustu verknaðaraðferðirnar í manndrápum hér á landi. Oft eiga gerendur ofbeldis- eða brotasögu að baki áður en þeir fremja manndráp, sem eru sjaldnast vel skipulögð. Karlar eru í miklum meirihluta gerenda og fórnarlamba í manndrápsmálum.
Lögmaður sem gætir hagsmuna fimm kvenna segir hafa legið fyrir að kæra ætti fyrir nauðgun áður en flugmaður og meintur gerandi svipti sig lífi. Kæran hafi verið formlega lögð fram eftir andlát mannsins. Maðurinn lést 25. ágúst en kæra var formlega lögð fram 28. ágúst. Í millitíðinni leituðu foreldrar flugmannsins á náðir Vilhjálms og báðu hann um að gæta hagsmuna sonar síns. Vilhjálmur gætti þá þegar hagsmuna konunnar sem sakar hinn látna um nauðgun.
„Viðskiptavinir eiga fyrst og fremst að hringja í lögreglu, það er númer eitt tvö og þrjú. Þeir eiga aldrei að reyna að fara og hafa afskipti af aðilanum. Til dæmis ef þetta er inn í verslun, þá á að hafa samband við verslunarstjóra sem mun þá fara með annan starfsmann með sér og tala við viðkomandi. Þá er um að gera að vera kurteis og halda ró sinni og aldrei ásaka neinn um stuld.“
Fjölskylda Ibrahim Shah Uz-Zaman íhuga að fara í skaðabótamál vegna andláts hans. Hann lést 30. október á síðasta ári í umferðarslysi á Ásvöllum í Hafnarfirði. Rannsókn lögreglu lauk í janúar á þessu ári en enn er málið hjá ákærusviði og ekki verið tekin ákvörðun um hvort gefa eigi út ákæru.
„Umrætt fólk hefur komið vel fram og stend ég enn þá á þeirri skoðun meðan rannsókn málsins á sér stað að þarna er um góða vini og öflugt starfsfólk að ræða.“
Í dag eru sex mánuðir síðan tveir grímuklæddir þjófar stálu tugum milljónum króna úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar. Málið er enn óupplýst.
Erlend þjófagengi herja á verslanir hér á landi en á síðasta ári var stolið fyrir fjóra milljarða í matvörubúðun. Þá hafa eldri konur orðið sérstaklega fyrir barðinu á skipulögðum glæpahópum í verslunum.
Maðurinn sem lést í gær þegar hann féll í Hlauptungufoss í Brúará var um þrítugt og frá Katar. Hann var hér á ferðalagi ásamt fjölskyldu sinni þegar slysið varð.
Andlát hjónanna sem fundust látin á heimili þeirra í Bolungarvík í lok maí er ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti. Þau hafi látist eftir langvarandi veikindi.
Sveitastjóri í Langanesbyggð segist hafa rætt við íbúa á Bakkafirði sem er ósáttur við aðgerðir sérsveitarinnar á mánudag og afskiptasemi og neikvæðni í samfélaginu. Pólskt par var handtekið grunað um fíkniefnaframleiðslu og er karlmaðurinn eftirlýstur í heimalandinu fyrir fjársvik. Sveitastjórinn vonast til að öldur lægi. Ríkislögreglustjóri segir aðgerðir sérsveitar erfiðar fyrir alla.