
Hjónin létust eftir langvarandi veikindi
Andlát hjónanna sem fundust látin á heimili þeirra í Bolungarvík í lok maí er ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti. Þau hafi látist eftir langvarandi veikindi.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Andlát hjónanna sem fundust látin á heimili þeirra í Bolungarvík í lok maí er ekki talið hafa borið að með saknæmum hætti. Þau hafi látist eftir langvarandi veikindi.
Sveitastjóri í Langanesbyggð segist hafa rætt við íbúa á Bakkafirði sem er ósáttur við aðgerðir sérsveitarinnar á mánudag og afskiptasemi og neikvæðni í samfélaginu. Pólskt par var handtekið grunað um fíkniefnaframleiðslu og er karlmaðurinn eftirlýstur í heimalandinu fyrir fjársvik. Sveitastjórinn vonast til að öldur lægi. Ríkislögreglustjóri segir aðgerðir sérsveitar erfiðar fyrir alla.
Frá árinu 2016 hafa verið framin um þrjú manndráp á ári að meðaltali á Íslandi. Manndrápstíðnin á því tímabili er nálægt meðaltali margra Evrópuþjóða.
Þýfi að verðmæti tuga milljóna króna úr innbrotum í tvær verslanir Elko á höfuðborgarsvæðinu er ófundið. Litlu mátti muna að þeir sem grunaðir eru um innbrotin slyppu úr landi. Öryggiskerfi í annarri verslun Elko virkaði ekki vegna framkvæmda.
Þrír voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt í tengslum við innbrot í verslun. Eru þeir grunaðir um að hafa brotið rúðu í versluninni og haft vörur á brott með sér.
Brotist hefur verið inn í fjölmargar reiðhjólaverslanir á árinu, síðast fyrir helgi. Lögreglumaður segir innbrot í slíkar verslanir nokkuð ný af nálinni. Algengt sé að erlendir glæpahópar greiði Íslendingum fyrir að ræna verslanir og dæmi um að reynt hafi verið að senda þýfið úr landi.
Fjögur voru í dag úrskurðuð í gæsluvarðhald til næsta föstudags vegna innbrota í tvær verslanir á höfuðborgarsvæðinu seint á sunnudagskvöld og aðfaranótt mánudags. Auk þeirra eru þrjú í haldi. Öll eru þau erlendir ríkisborgarar.
Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til.
Þó nokkrir urðu vitni að því þegar karlmaður féll í Hlauptungufoss í Brúará um klukkan 13 í dag. Maðurinn fannst látinn skömmu síðar. Um var að ræða erlendan ferðamenn.
Verkstjóri á Bakkafirði hefur ýmislegt við framkomu sérsveitarmanna að athuga sem komu að handtöku pólsks karlmanns og kærustu hans í þorpinu í gær. Hann segir nokkra svarta sauði í samfélaginu gera það að verkum að fimm manna fjölskyldan ætlar að flytja úr bænum eftir fimm ára dvöl. Afskiptasemi og neikvæðni ráði ríkjum á Bakkafirði.
Sigurður Fannar Þórsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 21. október í Héraðsdómi Reykjaness í dag að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti ungrar stúlku.
Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir Sigurði Fannari Þórssyni, sem grunaður er um að hafa ráðið tíu ára dóttur sinni bana á sunnudag í síðustu viku. Gæsluvarðhald yfir honum rennur að óbreyttu út í dag.
Ellefu gista fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu nú í morgunsárið en lögregla var meðal annars kölluð til vegna slagsmála á milli nokkurra einstaklinga.
Engir hvítabirnir fundust við leitarflug Landhelgisgæslunnar yfir Vestfirði í dag. Lögreglustjóri segir menn nú hafa leitað af sér allan grun um að annað dýr sé á svæðinu, eftir að ung birna var felld á Höfðaströnd í Jökulfjörðum á fimmtudag.
Brotist var inn í verslanir Elko í Lindum og Skeifunni í nótt og farsímum stolið. Unnið er að því að komast að fjölda þeirra síma sem voru teknir, og að gera þá óvirka. Framkvæmdastjórinn segir engan símaskort í uppsiglingu þrátt fyrir innbrotið.
Lögreglan á Suðurlandi skilaði rannsókn á andláti manns í sumarbústað í Kiðjabergi í vor á borð Héraðsaksóknara á föstudag. Einn er með réttarstöðu sakbornings í málinu grunaður um að hafa orðið manninum að bana.
Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir lítinn hóp ungmenna í viðkvæmri stöðu hagnýttan í skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Fylgjast þurfi sérstaklega með þessum hópi og nálgast ungmennin með fjölbreyttum leiðum.
Aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar, tíu ára stúlku sem fannst látin sunnudagskvöldið 15. september, hafa efnt til söfnunar fyrir móður stúlkunnar á þessum erfiðu tímum.
Rannsókn á andláti hjóna í Neskaupstað í ágúst er á viðkvæmu stigi en miðar vel, að sögn yfirlögregluþjóns. Lögregla bíður þess að fá niðurstöður rannsókna á rafrænum gögnum og lífsýnum.
Lögreglan á Norðurlandi vestra mun viðhafa strangt eftirlit með ungmennum á svokölluðu Laufskálaréttarballi á Sauðárkróki um helgina. Öll tilvik „þar sem bersýnilega er um að ræða áhættuhegðun ungmenna“ verða tilkynnt til barnaverndaryfirvalda.
Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur stigið fram og greint frá því að hann sé maðurinn sem var handtekinn á Suðurlandsvegi í gær, þar sem hann gekk nakinn í veg fyrir bíla.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gærkvöldi eða nótt um ökumann sem tilkynnanda þótti helst til ungur. Við skoðun á málinu kom í ljós að hann var aðeins 14 ára gamall og hafði því aldrei öðlast ökuréttindi.
Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi við Ölvisholt í dag. Farþegar voru fluttir til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun.
Maður sem gekk nakinn eftir Suðurlandsvegi milli Rauðhóla og afleggjarans að Hólmsheiði var fluttur af lögreglu á bráðamóttökuna vegna andlegs ástands.
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað þar sem menn voru sagðir slást með vopnum. Lögregluþjónar frá lögreglustöð 3, sem sér um Kópavog og Breiðholt, voru sendir á vettvang og eru slagsmálin til rannsóknar.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir sænsk glæpagengi hafa sent fólk til Íslands til þess að fremja afbrot.
Mikla brunalykt og reyk bar frá heimili í hverfi 104 í Reykjavík eftir að gleymst hafði að slökkva á kerti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu.
Rannsókn lögreglu á andláti tíu ára stúlku miðar vel. Faðir stúlkunnar er enn í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið henni að bana. Lögregla segir að ekkert bendi til þess að sakborningum í málinu muni fjölga.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað eftir að tilkynning barst um mann sem ók um með það sem tilkynnandi kallaði loftbyssu. Umfangsmikil leit hófst þó að bílnum sem fannst skömmu síðar.