Markús Máni að hætta? "Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu," sagði Markús Máni Michaelsson í samtali við Vísi þegar hann var spurður hvort hann ætlaði sér að spila með Íslandsmeisturum Vals í vetur. Markús er samningsbundinn Val en segir frekar ólíklegt að hann verði á fullu með liðinu í deildarkeppninni. Handbolti 5. september 2007 13:40
Stjarnan kveður Ásgarð Meistarakeppni HSÍ fer fram í kvöld og báðir leikirnir verða spilaðir í Ásgarði í Garðabæ. Konurnar ríða á vaðið klukkan 18 þegar Stjarnan og Haukar mætast en klukkan 20 mætast Stjarnan og Valur í karlaflokki. Handbolti 2. september 2007 10:00
Stjarnan mætir Tenax Dobele frá Lettlandi Handknattleikslið Stjörnurnar í karlaflokki mætir Tenax Dobele frá Lettlandi í fyrstu umferð Evrópukeppni bikarhafa. Dregið var fyrir leikina í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í morgun. Fyrri leikurinn fer fram á Íslandi þann 1. eða 2. september og seinni leikurinn fer fram 8. eða 9. september. Handbolti 24. júlí 2007 14:35
Viljum alls ekki missa Valdimar Handknattleiksmaðurinn Valdimar Þórsson, sem gekk í raðir Fram í lok síðasta mánaðar, gæti verið á förum til sænska úrvalsdeildarliðsins HK Malmö. Sænskir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að samningur við leikmanninn væru nánast frágenginn og að aðeins formsatriði yrði að fá undirskrift. Handbolti 17. júlí 2007 01:00
Valdimar Þórsson í Fram Framarar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í DHL-deild karla næsta vetur. Á blaðamannafundi nú klukkan 16 tilkynnti handknattleiksdeild félagsins að hún hefði gert tveggja ára samning við Valdimar Þórsson, fyrrum leikmann HK. Valdimar hefur verið einn af betri leikmönnum Íslandsmótsins undanfarin ár og skoraði 162 mörk í 21 leik fyrir HK í vetur. Handbolti 28. júní 2007 16:00
Valsmenn mæta liði frá Litháen Í morgun var dregið í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Íslandsmeistarar Vals í karlaflokki mæta litháísku meisturunum Panevezys Viking Malt og byrja á útivelli 1. eða 2. semptember. Síðari leikurinn er hér heima viku síðar. Handbolti 28. júní 2007 12:49
Serenko fer frá Fram Framarar hafa ákveðið að nýta sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við Úkraínumanninn Sergiy Serenko og því mun hann ekki leika með liðinu í DHL-deildinni á næstu leiktíð. Serenko kom til Fram haustið 2005 og átti þá frábæra leiktíð, en náði sér ekki á strik síðasta vetur. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Handbolti 26. júní 2007 14:26
Trúi ekki öðru en að þetta hjálpi mér Akureyringurinn Jónatan Magnússon fór fyrir viku síðan í sína fyrstu aðgerð vegna meiðsla sem hafa hrjáð hann síðan á síðasta ári. Jónatan hefur lítið getað hreyft sig vegna meiðslanna sem enginn getur sjúkdómsgreint. „Það veit enginn hvað er að mér,” sagði kappinn í nýlegu viðtali við Fréttablaðið en Brynjólfur Jónsson ákvað loks að skera hann upp. Handbolti 26. júní 2007 07:00
Á námskeiði hjá Tommy Svensson Tveir efnilegustu markverðir landsins, Pálmar Pétursson úr Val og Björgvin Páll Gústavsson úr Fram, fara á sunnudaginn til Svíþjóðar þar sem þeir verða á vikulöngu markvarðanámskeiði hjá sænsku markvarðagoðsögnunum Tommy Svensson og Claes Hellgren. Handbolti 21. júní 2007 00:01
Ungverji þjálfar handknattleikslið Fram Handknattleiksdeild Fram hefur samið við ungverska þjálfarann Ferenc Buday um að þjálfa meistaraflokk karla næstu tvö árin. Hann tekur við af Guðmundi Þórði Guðmundssyni, fyrrverandi landsliðsþjálfara, sem ákvað að hætta með liðið í vor. Handbolti 16. maí 2007 11:40
HK deildarbikarmeistari HK menn urðu í kvöld deildarbikarmeistarar í handbolta þegar þeir báru sigurorð af Stjörnunni í oddaleik í Digranesi 29-28. Augustas Strasdas og Valdimar Þórsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir heimamenn en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6 fyrir gestina. Handbolti 9. maí 2007 21:20
Oddaleikur hjá HK og Stjörnunni Stjarnan lagði HK 28-23 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu í deildarbikarkeppni karla í handbolta í dag. Liðin verða því að mætast í oddaleik í Digranesi á miðvikudagskvöldið. HK hafði yfir í leikhléi í dag 14-13 en heimamenn voru sterkari á lokasprettinum. Handbolti 5. maí 2007 18:24
Brynjar þríbrotnaði á vinstri úlnlið Brynjar Valsteinsson, leikmaður HK, verður ekki meira með í úrslitum deildarbikarkeppninnar og gæti misst af upphafi næsta tímabils. Hann þríbrotnaði á úlnlið í vinstri hendi í leik gegn Stjörnunni í fyrrakvöld er hann lenti illa eftir að hafa keyrt upp völlinn í hraðaupphlaupi. Handbolti 5. maí 2007 06:00
Björgvin og Arnar á leið í Hauka Það er mikill hugur í Haukamönnum fyrir komandi tímabil í handboltanum en Aron Kristjánsson hefur tekið við stjórnartaumunum hjá félaginu í stað Páls Ólafssonar. Haukar hafa þegar gengið frá samningi við skyttuna Gunnar Berg Viktorsson og markvörðinn Gísla Guðmundsson og eftir helgi verður væntanlega gengið frá samningum við skytturnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Jón Agnarsson. Handbolti 5. maí 2007 03:15
HK lagði Stjörnuna HK-menn báru sigurorð af Stjörnunni í kvöld í fyrsta úrslitaleik liðanna í deildarbikar karla í handbolta. Stjarnan var yfir 11-9 í hálfleik. Augustas Stradzdas skoraði 9 mörk fyrir HK og Tomas Eitutis 8, en David Kekelia skoraði 8 mörk fyrir Stjörnuna og Patrekur Jóhannesson 7. HK getur tryggt sér deildarbikarinn með sigri í öðrum leik liðanna í Garðabæ á laugardaginn. Handbolti 3. maí 2007 21:34
Fylkir missir sína sterkustu menn Nú er ljóst að Fylkir mun missa sína sterkustu leikmenn en liðið féll nú á vikunum úr DHL-deildinni. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort Fylkir ætli að tefla fram liði í 1. deild karla á næsta ári. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Heimir Örn Árnason, Guðlaugur Arnarsson og Hlynur Morthens gætu vel verið á leið til Stjörnunnar ásamt ÍR-ingnum Ragnari Má Helgasyni. Handbolti 3. maí 2007 00:01
HK í úrslit HK tryggði sér í dag sæti í úrslitaleik deildarbikarsins í handbolta karla með öruggum sigri á Fram í oddaleik 31-26 eftir að hafa verið yfir 20-13 í hálfleik. HK mætir Stjörnunni í úrslitaleik keppninnar. Handbolti 29. apríl 2007 17:35
HK lagði Fram Tveir leikir fóru fram í deildarbikarkeppni karla í handbolta í kvöld. HK lagði Fram 28-26 eftir að jafnt var í hálfleik 14-14. Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði 8 mörk fyrir HK og þeir Tomas Eitutis, Valdimar Þórsson og Augustas Strazdas 5 hver en Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 8 fyrir Fram og Guðjón Drengsson 7. Þá vann Stjarnan góðan sigur á Val 27-23. Handbolti 25. apríl 2007 22:17
Valsmenn eru Íslandsmeistarar Valur er Íslandsmeistari karla í handbolta árið 2007. Liðið tryggði sér sigur í DHL-deildinni með því að leggja Hauka af velli á Ásvöllum, 33-31, en á sama tíma gerði HK 27-27 jafntefli við Akureyri fyrir norðan. Valsmenn hluti 33 stig í deildinni í vetur en HK varð í öðru sæti með 32 stig. Handbolti 22. apríl 2007 17:50
Valur í lykilstöðu þegar 10 mínútur eru eftir Íslandsmeistaratitilinn blasir við Valsmönnum þegar 10 mínútur eru eftir af síðustu umferð DHL-deildar karla í handbolta. Þeir hafa þriggja marka forystu á Hauka, 28-26, og þurfa því að klúðra miklu á lokamínútunum til að missa af Íslandsmeistaratitlinum. HK er einu marki yfir gegn Akureyri fyrir norðan, 21-20. Handbolti 22. apríl 2007 17:17
Valsmenn í góðri stöðu Valsmenn eru komnir með aðra höndina á Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en liðið hefur þriggja marka forystu, 16-13, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðsins gegn Haukum á Ásvöllum í DHL-deildinni. HK hefur sömuleiðis yfir gegn Akureyri fyrir norðan, 14-13. Ef Valur sigrar á Ásvöllum í dag er liðið orðið Íslandsmeistari. Handbolti 22. apríl 2007 16:44
Engin úrslitakeppni í handboltanum Ársþing Handknattleikssambands Íslands var haldið í kvöld og voru þar nokkrar áhugaverðar breytingatillögur uppi á borðinu. Tillaga Hafnafjarðarliðanna Hauka og FH um fjölgun liða í deildinni og úrslitakeppni var dregin til baka. Mótinu verður þó breytt nokkuð og nánar verður greint frá því hér á Vísi í fyrramálið. Handbolti 18. apríl 2007 22:23
Stjarnan í deildarbikarinn Handbolti Stjarnan úr Garðabæ tryggði sér í gær fjórða sæti DHL-deildar karla þegar liðið lagði Akureyri, 35-31, í hreinum úrslitaleik um síðasta sætið sem tryggir sæti í deildarbikarnum að lokinni deildarkeppninni. Handbolti 16. apríl 2007 13:56
Fylkir og ÍR fallin - Ólafur varði 29 skot í marki Vals Gríðarleg spenna var í dag í næst síðustu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta. Toppliðin Valur og HK unnu leiki sína því ráðast úrslit í deildinni ekki fyrr en í lokaumferðinni, en Fylkir og ÍR töpuðu leikjum sínum í dag og eru því fallin úr deildinni. Handbolti 15. apríl 2007 17:42
Valsmenn upp að hlið HK Valur er kominn aftur upp að hlið HK á toppi DHL-deildar karla eftir að liðið burstaði Íslandsmeistara Fram 29-19 í stórleik kvöldsins. Valur og HK hafa 29 stig á toppnum og ljóst að spennan verður gríðarleg í síðustu umferðunum. Fram er með 22 stig í þriðja sæti deildarinnar. Handbolti 12. apríl 2007 21:46
HK á toppnum Þrír leikir fóru fram í DHL deild karla í handbolta í kvöld. HK er eitt á toppnum eftir sigur á ÍR 35-28 á útivelli en ÍR er í botnsæti deildarinnar. Haukar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni 29-21 og fengu mikilvæg stig í botnbaráttunni. Staða Fylkis versnaði til muna eftir að liðið steinlá 31-22 fyrir Akureyri fyrir Norðan. Handbolti 11. apríl 2007 22:00
Fylkir lagði Hauka Fylkir vann afar mikilvægan 26-24 sigur á Haukum í fallbaráttunni í DHL-deild karla í handbolta í dag. Þá vann botnlið ÍR óvæntan útisigur á Stjörnunni 26-25 og fyrr í dag vann Fram sigur á Akureyri 29-27. Handbolti 1. apríl 2007 19:44
HK vann öruggan sigur á Val HK komst í dag upp að hlið Vals á toppi DHL-deildar karla með 29-22 sigri á heimavelli í einvígi liðanna. Liðin hafa bæði hlotið 27 stig. Jafnt var á með liðunum í hálfleik en heimamenn stungu af í þeim síðari og unnu öruggan sigur. Handbolti 31. mars 2007 18:06
Uppgjör HK og Vals í Digranesi HK tekur á móti Val í DHL-deildinni í dag. Nánast er um að ræða hreinan úrslitaleik í Íslandsmótinu. Valur setur aðra hönd á bikarinn með sigri en HK sprengir mótið í loft upp nái það að landa sigri. Handbolti 31. mars 2007 11:00
Valsmenn komnir með tveggja stiga forystu Valsmenn náðu í kvöld tveggja stiga forystu í DHL-deild karla í handbolta með því að leggja nýkrýnda bikarmeistara Stjörnunnar örugglega af velli í Laugardalshöllinni, 31-25. Valsmenn voru með yfirhöndina nánast allan leikinn og unnu verðskuldað. Handbolti 25. mars 2007 19:29