

Tíska og hönnun
Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Valdamest í tískunni
Tímaritið Time birti lista yfir hundarð áhifamestu einstaklingana innan tískubransans frá árinu 1923, en það ár var Time fyrst gefið út. Listinn samanstendur meðal annars af fatahönnuðum, fyrirsætum, ljósmyndurum og ritstjórum.

Sigga Heimis í hópi þeirra bestu
Vefsíðan Stylepark.com fjallar um vöruhönnuðinn Sigríði Heimisdóttur í grein sinni um norræna, kvenkyns vöruhönnuði. Greinarhöfundurinn Anneke Bokern segir áberandi hversu margar norrænar konur hafa náð langt í greininni.

Kanye í samræðum við Dior
Enn hefur ekki verið ráðið í stöðu yfirhönnuðar tískuhússins Dior eftir að John Galliano var rekinn vegna ummæla sinna í garð gyðinga. Fjölmargir hönnuðir hafa verið orðaðir við stöðuna undanfarið ár og nú síðast var rapparinn Kanye West orðaður við tískuhúsið.

Íslenskir fatahönnuðir fóru á kostum á RFF
Spennan var mikil þegar ellefu íslenskir hönnuðir sviptu hulunni í fyrsta skipti af haust- og vetrarlínum 2012 á Reykjavík Fashion Festival um helgina. Sýningarnar mæltust mjög vel fyrir en í meðfylgjandi myndasafni má sjá brot af því besta sem boðið var upp á.

Englakroppar sýna sundföt
Victoria Secret englarnir Candice Swanepoel og Miranda Kerr kynntu nýju sundfatalínu fyrirtækisins um helgina.

Tískuveisla RFF hafin
Marsmánuður hefur verið einkar viðburðaríkur fyrir þá sem hafa gaman af tísku og hönnun en í dag hefst tískuhátíðin Reykjavik Fashion Festival.

Herramennirnir sem sækja tískuvikurnar
Tíska Nokkrir herramenn eru fastagestir í helstu tískuborgum heims á meðan á tískuvikunum stendur. Þar ber hæst nafn tískubloggarans Bryan Boy sem fetar alla jafna ótroðnar slóðir í klæðavali. Ljósmyndararnir Tommy Ton og Scott Schuman eru yfirleitt með puttana á púlsinum í klæðaburði þrátt fyrir að vera uppteknir við að mynda götutískuna. Indverski skartgripahönnuðurinn Waris Ahluwalia hefur einnig vakið athygli tískupressunnar fyrir einstaklega töffaralegan klæðaburð. Hér gefur að líta herramenn sem vekja eftirtekt.

Allt um HönnunarMars á einum stað
Vísir, Fréttablaðið og Stöð 2 hafa flutt fjöldan allan af fréttum um HönnunarMars á síðustu dögum, enda er af nægu að taka. Hér er umfjöllunin tekin saman á einn stað lesendum til hægðarauka.

Hátíð sem eflir íslenska hönnun
"Hönnunarmiðstöð var sett á laggirnar vorið 2008 og það var strax á dagskrá hjá okkur að standa fyrir svona dögum. Og þrátt fyrir hrunið haustið 2008 þá stóðum við fyrir hinum fyrsta Hönnunarmars 2009," segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Volki sigrar frumkvöðlakeppni - Elettra Wiederman hélt ræðu
'Volki, lista- og hönnunarstúdíóið, bar sigur úr býtum í frumkvöðlakeppni kvenna sem Íslandsbanki, Félag kvenna í atvinnurekstri og Opni Háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir. Alls sóttu 34 konur frumkvöðlanámskeið sem var undanfari keppninnar.

Gamla Sautján á Laugavegi breytist í hönnunarhús
Gamla Sautján húsið að Laugavegi 89 öðlast loks aftur líf um helgina eftir að hafa staðið autt í mörg misseri. Þar hafa 37 íslenskir fata- og skartgripahönnuðir komið upp aðstöðu til að sýna nýjustu framleiðslu sína. Þeir kalla innrás sína í húsið ATMO og er hún hluti af HönnunarMars.

Stærsta sýningin til þessa
HönnunarMars fer af stað af miklum krafti í dag með fjölmörgum sýningum og uppákomum út um allan bæ. Meðal þeirra er Samsuða, glæsileg samsýning Félags vöru- og iðnhönnuða í Brimhúsinu við Hafnarbakkann þar sem þrjátíu og tveir hönnuðir frumsýna verk sín. Er sýningin stærsti og glæsilegasti viðburður félagsins til þessa.

HönnunarMars í símann - app með öllum upplýsingum
Síminn hefur í samstarfi við HönnunarMars hannað app fyrir hönnunarðhátíðina sem fram fer í Reykjavík dagana 22. - 25. mars. Appið sem er á íslensku og ensku býður fólki upp á dagskrá hátíðarinnar í gegnum símann. Í tilkynningu frá Símanum segir að raða megi dagskránni eftir atburðum, flokkum, hverfum og áhuga hvers og eins. Í appinu er einnig kort sem sýnir staðina sem hýsa HönnunarMars, viðtöl við hönnuði, tengingar við blogg, twitter og fréttir af hátíðinni. Þá hefur sá sem hleður niður appinu möguleika á að taka myndir og deila með öðrum í gegnum appið.

Arkitektúr, útihúsgögn og erlendir gestir
Úr fjölmörgum viðburðum er að velja á HönnunarMars. Hér fylgir yfirlit yfir nokkra þeirra en nánari upplýsingar um þessa viðburði og alla hina er að finna á heimasíðunni honnunarmars.is.

Dúkkulísur í stað fyrirsæta
Dúkkulísutískusýning á vegum Kiosk fer fram á Hótel Lind á föstudaginn kemur. Hver hönnuður hannaði sérstaka dúkkulísu í raunstærð og munu þær sýna fatnað hönnuðanna.

Nýjar höfuðstöðvar vígðar
Hönnunarfyrirtækið Farmers Market flutti nýverið höfuðstöðvar sínar að Hólmaslóð 2. Í tilefni þess var haldið opnunarteiti á þriðjudaginn var.

Stefnumót hönnuða og bænda kynnt í heild sinni
Verkefnið Stefnumót hönnuða og bænda hefur vakið mikla athygli síðustu ár enda heppnaðist það með eindæmum vel. Það fólst í því að tefla saman einni elstu starfsstétt landsins, bændum, og einni yngstu starfstétt landsins, vöruhönnuðum. Markmiðið var síðan að þróa matarafurðir í hæsta gæðaflokki þar sem hönnun og rekjanleiki eru höfð að leiðarljósi.

Siggi Eggertsson hannar veggspjald Listahátíðar
Úrslit hönnunarsamkeppni Listahátíðar og Hönnunarmiðstöðvar voru tilkynnt á Kexi rétt í þessu og sigraði tillaga grafíska hönnuðarins Sigga Eggertssonar keppnina. Fékk hann 500 þúsund krónur í verðlaun.

Hönnun í hávegum höfð hjá Epal
HönnunarMars fer nú fram í fjórða skipti og áhugafólk um hönnun bíður fullt eftirvæntingar eftir að sjá hvað íslenskir hönnuðir hafa nýtt fram að færa.

Fyrirsætur snúa heim
Reykjavík Fashion Festival fer fram í þriðja sinn nú í lok mánaðarins. Ellefu íslenskir hönnuðir taka þátt í ár og má þar á meðal nefna ELLA, Kron by KronKron, Mundi, REY og Kalda.

Frumsýna nýja Kronkron-línu og halda happdrætti
Á fimmtudaginn verður slegið til veislu í versluninni Kronkron við Laugaveg þar sem ný vor- og sumarlína merkisins Kron by Kronkron verður til sýnis. Veislan er einnig haldin í tilefni af HönnunarMars sem er að sigla af stað og nær hámarki um helgina. Verslunin mun skarta sínu fegursta og auk nýju línunnar verða sýndar ljósmyndir eftir Sögu Sig sem hún tók fyrir línuna.

Ittala skoðar íslenska hönnuði
DesignMatch er haldin í Norræna húsinu í þriðja sinn þann 23. mars. Sýningin er haldin í tengslum við HönnunarMars og í ár taka nokkur stærstu hönnunarhús Norðurlandanna þátt í henni.

Tískustelpan sem allir fylgjast með
Rússneski blaðamaðurinn Miroslava Duma hefur verið eitt vinsælasta myndefni götutískuljósmyndara og bloggara upp á síðkastið. Duma þykir einstaklega lunkin við að blanda saman litríkum og munstruðum flíkum. Duma var eitt sinn ritstjóri Harper"s Bazaar en er nú sjálfstætt starfandi blaðamaður og skrifar fyrir blöð á borð við rússneska Harper"s Bazaar, Tatler og Glamour. Hún er fastur gestur á fremsta bekk á tískusýningum en uppáhaldshönnun hennar kemur frá Prada, Miu Miu, Lanvin, Alexander Wang og YSL.

Ný hönnunarbúð í miðbænum
Búðin Hrím hönnunarhús hefur fært út kvíarnar og komið sér fyrir á Laugaveginum, en verslunin hefur hingað til verið rekin í Hofi á Akureyri. Fjölmennt var í opnunarteitinu enda búðin kærkomin viðbót í verslanaflóru miðbæjarins. Verslunin er full af innlendri sem erlendri hönnun og er til að mynda heill veggur í versluninni tileinkaður Lomo-myndavélunum. Litríkir gluggar verslunarinnar vöktu athygli en hönnunin var í höndunum á stúlkunum á auglýsingastofunni Undralandið.

Vogue og Eurowoman á RFF
"Það eru ögn færri erlendir fjölmiðlar í ár en hafa verið síðustu ár en það er mjög góðmennt,“ segir Þórey Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Fashion Festival, um komu erlendra fjölmiðla á tískuhátíðina sem fer fram dagana 30. og 31. mars.

Valdamesti stílistinn
Stílistinn Kate Young trónir á toppi lista yfir valdamestu stílista í Hollywood um þessar mundir. Young tekur við titlinum af Rachel Zoe.

Leður og blóm
Línurnar fyrir komandi haust voru lagðar á nýyfirstöðnum tískuvikum. Þar mátti sjá margar fallegar flíkur og fylgihluti og greina yfirvofandi tískustrauma. Víða mátti sjá munstraðar flíkur, og þá sér í lagi blóma- og austurlensk munstur, líkt og hjá hönnuðunum Jason Wu og Proenza Schouler. Víðar leðurbuxur voru einnig áberandi og mátti sjá fyrirsætur klæðast slíku á sýningum Topshop Unique, Gucci og Derek Lam.

Litagleði í bland við klassík
Vorið er á næsta leyti og því óhætt að segja að tískuáhugamenn bíði spenntir eftir ferskum og flottum flíkum í verslanir eftir veturinn...

Skart innblásið af þorskbeinum
Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður hefur sent frá sér nýja skartgripalínu sem innblásin er af þorskbeinum. Jóhanna hannar undir nafninu Kría og var fyrsta skartgripalína hennar einmitt innblásin af beinum farfuglsins.

Nicole Richie sjúklega smart
Nicole Richie vakti verðskuldaða athygli í New York í vikunni þar sem hún sótti hina ýmsu viðburði!