„Ein stór bomba“ á tjaldsvæðum landsins um helgina Mikill fjöldi fólks heimsótti tjaldsvæði landsins um helgina. Veðurblíða lék við landann víðs vegar um land í gær. Innlent 27. júní 2021 15:38
Hiti í kringum tuttugu stig fyrir austan út vikuna Hlýtt loft verður á öllu landinu næstu daga. Það verður þó langhlýjast fyrir austan þar sem hiti verður í kring um 20 stig og gæti farið upp í allt að 25 stig í dag. Veður 27. júní 2021 09:00
Glampandi sól og allt að 24 stiga hiti Þrátt fyrir mikið hvassviðri og appelsínugular og gular viðvaranir fyrir norðan fyrri part dags verður glampandi sól víðast hvar á landinu í dag. Langhlýjast verður austanlands þar sem hiti fer upp í 24 stig í dag. Veður 26. júní 2021 08:46
„Fólki er eindregið ráðið frá því að ferðast með aftanívagna“ Appelsínugul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Breiðafjörð, Strandir og norðurland vestra og Norðurland eystra. Þá er gul viðvörun í gildi á Vestfjörðum, miðhálendi og Suðausturlandi. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar við hvassviðri. Innlent 25. júní 2021 09:00
Víða vindasamt á landinu og appelsínugular viðvaranir í gildi Reikna má með allhvassri eða hvassri suðvestanátt í dag, en hvassviðri eða stormi norðvestantil á landinu og austur í Eyjafjörð. Einnig hvessir verulega allra syðst, sem og í Öræfasveit. Veður 25. júní 2021 07:17
Appelsínugul viðvörun á þremur svæðum Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun vegna hvassviðris á þremur svæðum. Áður voru gular viðvaranir í gildi á sömu svæðum, en áfram eru gular viðvaranir í gildi á þremur öðrum svæðum. Veður 24. júní 2021 16:34
Gul viðvörun víðs vegar um land Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á miðhálendinu, Norðurlandi eystra, Ströndum, Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og í Breiðafirði. Veður 24. júní 2021 10:17
Bongóblíða í kortunum um helgina Það er sól í kortunum á svo til öllu landinu á laugardag, en veðurfræðingur sem fréttastofa ræddi við segir að ferðalangar sem hyggjast elta góða veðrið um næstkomandi helgi eigi mestan séns á því að detta í sólríkan lukkupottinn ef haldið er austur á land, þar sem hiti gæti farið yfir 20 gráður. Innlent 22. júní 2021 13:55
Varasamir vindstrengir á Vesturlandi Varað er við snörpum vindstrengjum á norðanverðu Snæfellsnesi og víðar á vesturhelmingi landsins í dag. Ekki er ferðaveður fyrir hjólhýsi eða húsbíla sem fjúka auðveldlega í hliðarvindi á þeim slóðum. Innlent 21. júní 2021 07:26
Þurfum að bíða í allnokkra daga eftir hlýja loftinu Farið er að sjá fyrir endann á kalda loftinu sem legið hefur yfir landinu að undanförnu og gera spár ráð fyrir að það hörfi strax eftir helgi. Sýna þurfi smá þolinmæði þar sem það muni taka allnokkra daga í viðbót að koma hlýju lofti að landinu. Veður 18. júní 2021 07:09
Slydda fyrir norðan Þjóðhátíðarveðrið verður ekki sérlega fýsilegt á norðanverðu landinu í dag. Þar hefur verið fremur kalt og má búast við að beri á slydduéljum. Veður 17. júní 2021 09:39
Norðaustanátt og dregur svo úr vindi í nótt Veðurstofan spáir svipuðu veðri í dag og var í gær og fyrradag. Norðaustanátt, átta til fimmtán metrar á sekúndu og lítilsháttar rigning suðaustanlands en skúrir eða slydduél norðaustantil. Annars bjart með köflum og þurrt. Veður 16. júní 2021 07:11
Sumarið svíkur Íslendinga Klárlega einn mesti kuldi af þessum toga í áraraðir, segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Innlent 15. júní 2021 10:06
Bjart í mörgum landshlutum framan af degi Veðurstofan gerir ráð fyrir björgum degi í mörgum landshlutum framan af degi, en annars skýjað með köflum. Austlæg eða norðaustlæg átt fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hvassara með suðausturströndinni síðdegis. Veður 15. júní 2021 07:00
Vikan hefst á norðlægum áttum og svölu veðri Vikan hefst á norðlægum áttum og svölu veðri þar sem reikna má með lítilsháttar slydduéljum eða skúrum norðanlands, en annars yfirleitt þurru veðri á Vesturlandi. Hiti verður frá þremur stigum í innsveitum norðaustanlands, og upp í ellefu stig suðvestantil. Veður 14. júní 2021 07:19
Andstyggileg snjókoma gerir Mývetningum lífið leitt Bóndi í Mývatnssveit segir andstyggilegt að tekið hafi að snjóa í sveitinni nú þegar júnímánuður er að verða hálfnaður. Hann segir snjókomu og bleytu fara illa með fuglalíf og búfénað í sveitinni, að ógleymdum vondum áhrifum á lundarfar bænda og búenda. Innlent 13. júní 2021 19:43
„Það beið mín bara lítill vetur um miðjan júní“ Nokkurra sentímetra snjólag beið Adolfs Inga Erlingssonar, ökuleiðsögumanns, þegar hann gekk út á pall í sumarbústað sínum á Vaðlaheiði í morgun. Innlent 13. júní 2021 13:30
Ferðavagnar tókust á loft í Mosfellsbæ Þónokkrir ferðavagnar tókust á loft af plani verslunar Útilegumannsins í Mosfellsbæ í kvöld. Innlent 11. júní 2021 21:45
Skítakuldi í kortum næstu þrjár vikurnar að minnsta kosti Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur veigrar sér ekki við því að bjóða upp á vont veður og segir kulda í kortum næstu vikurnar. Innlent 11. júní 2021 12:28
Kalt loft færist yfir landið með norðanátt í dag Kalt loft færist yfir landið með norðanátt í dag, en von er á tíu til átján metrum á sekúndu með morgninum en heldur hægari norðvestanátt um austanvert landið þar til síðdegis. Yfirleitt rigning á láglendi um norðanvert landið en styttir upp og léttir til syðra. Veður 11. júní 2021 07:09
Hiti að fimmtán stigum og hlýjast norðaustantil Lægð er nú stödd skammt suðvestur af Reykjanesi og er hún á hægri norðausturleið yfir landið. Víða má reikna með rigningu í fyrstu en þegar að lægðin nálgast, og skilin ganga yfir, breytist úrkoman í skúrir. Veður 10. júní 2021 07:11
Norðanáttir valdi því að júní verði kaldur Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að búast megi við því að júnímánuður verði nokkuð kaldur hér á landi, sökum norðanáttar sem verði ríkjandi. Innlent 9. júní 2021 21:04
Skiptast á skin og skúrir næstu daga Næstu daga skiptast á skin og skúrir þar sem spár gera ráð fyrir lægðagangi. Skil með rigningu ganga þá allreglulega yfir landið en ólíkt stöðunni að undanförnu þar sem varla hefur sést til sólar sunnantil á landinu ætti að geta létt ágætlega til á milli lægðakerfa. Veður 9. júní 2021 07:20
Rólegheitaveður í dag en rigning um allt land á morgun Veðurstofan spáir rólegheitaveðri í dag en allvíða smá skúrir, þó síst norðaustantil. Í kvöld koma skil lægðar upp að landinu og mun rigna um allt land frá þeim á morgun. Veður 8. júní 2021 07:08
Víða skúrir og hiti að átján stigum Lægð dagsins er staðsett yfir Vesturlandi í morgunsárið og fylgir henni sunnan- og suðaustanátt víða á bilinu fimmtán til þrettán metrum á sekúndu. Sökum nálægðar við lægðarmiðjuna verður hægari vindur þó vestantil. Veður 7. júní 2021 07:09
Allt að 18 stig á Norðausturlandi en skúrir víða um land Víða má búast við skúrum á landinu í dag en útlit er fyrir rigningu með köflum suðaustanlands. Lengst af verður þó bjartviðri og þurrt að kalla um norðaustanvert landið. Áfram verður milt veður og gæti hitinn á Norðausturlandi náð allt að átján stigum. Innlent 6. júní 2021 09:33
Rigning, hvasst og slæmt skyggni á gossvæðinu í dag Ekki viðrar vel fyrir gönguferðir að gossvæðinu á Reykjanesi í dag. Spáð er suðaustan 10-18 metrum á sekúndu með rigningu og slæmu skyggni. Á Norðurlandi gæti hitinn náð allt að tuttugu stigum um helgina. Innlent 5. júní 2021 08:25
Hiti allt að tuttugu stigum norðanlands Veðurstofan spáir suðvestanátt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, þar sem hvassast verður með suðurströndinni. Skýjað að mestu um landið og víða dálítil rigning með köflum. Veður 4. júní 2021 07:07
Gul viðvörun á Suðurlandi Gul viðvörun tekur gildi klukkan sex á Suðurlandi vegna hvassviðris. Austan þrettán til tuttugu metrar á sekúndu eru frá Markarfljóti austur að Vík í Mýrdal og einnig á Hellisheiði. Vindhviður gætu náð 30 metum á sekúndu sem gæti valdið ökutækjum, sem taka á sig mikinn vind, vandkvæðum. Innlent 3. júní 2021 17:18
Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og fer að rigna Lægð nálgast nú landið og er því vaxandi suðaustanátt í dag. Veðurstofan spáir því að þegar líður á daginn muni þykkna upp og fara að rigna. Veður 3. júní 2021 07:11
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent