Látin laus eftir fimm ára afplánun Nazanin Zaghari Ratcliffe, bresk-írönsk kona sem dæmd var í fimm ára fangelsi fyrir njósnir í Íran í september árið 2016, var látin laus úr stofufangelsi í dag. Nýtt mál á hendur henni gæti þó farið fyrir dóm í Íran í næstu viku og því óljóst um framtíð hennar. 7.3.2021 23:00
Ekkert sýni jákvætt hingað til Búið er að skima meirihluta þeirra starfsmanna Landspítalans sem gætu hafa verið útsettir fyrir smiti eftir að starfsmaður á göngudeild lyflækninga A3 greindist með kórónuveirusmit. Hingað til hefur ekkert sýni verið jákvætt. 7.3.2021 21:24
Franskur milljarðamæringur lést í þyrluslysi Franski milljarðamæringurinn og stjórnmálamaðurinn Olivier Dassault er látinn, 69 ára að aldri. Dassault lést eftir að einkaþyrla hans hrapaði í Normandí í Frakklandi síðdegis í dag. 7.3.2021 20:27
Barn flutt á slysadeild eftir að bíll rann á leikvöll Eitt barn var flutt á slysadeild eftir að bíll rann á leikvöll í Áslandshverfi í Hafnarfirði á sjötta tímanum í dag. Bíllinn var mannlaus þegar atvikið átti sér stað. 7.3.2021 18:57
Smitfréttirnar minni á mikilvægi sóttvarna Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir fréttir dagsins áminningu um að slaka ekki á sóttvörnum. Fjöldi fólks sé kominn í sóttkví og enn fleiri hafi verið boðaðir til sýnatöku. 7.3.2021 18:35
Jarðskjálfti að stærð 4,0 við Fagradalsfjall Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt eftir klukkan fimm. Skjálftinn var 4 að stærð samkvæmt mælingum Veðurstofunnar og átti upptök sín tvo kílómetra norðaustur af Fagradalsfjalli. 7.3.2021 17:15
Svona var 167. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til upplýsingafundar klukkan fimm í dag. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn ræddu stöðu kórónuveirufaraldursins eftir að virkt smit kom upp á Landspítala. Alls hafa tveir greinst utan sóttkvíar á síðustu dögum. 7.3.2021 15:52
Harmar að embættisfólk hafi fengið bólusetningu fyrr en forgangshópar Sendiherra Færeyja í London fékk ásamt maka sínum bólusetningu í lok janúar eftir að mennta- og utanríkisráðuneytið þar í landi hafði sent beiðni þess efnis til landlæknisins í lok síðasta árs. Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, segir að héðan í frá verði öllum bólusetningaráætlunum fylgt og forgangshópar virtir. 6.3.2021 23:49
Fimm hlaup búin og sjö eftir Bjartur Norðfjörð hefur nú hlaupið rúma sex kílómetra fimm sinnum frá því klukkan fjögur í nótt og á eftir að hlaupa sjö sinnum til viðbótar. Sjálfur segist hann vera nokkuð góður eins og er, en mesta áskorunin sé að koma sér aftur af stað í næsta hlaup. 6.3.2021 22:57
Vill snúa aftur á K2 í sumar til að aðstoða við leit Fjallgöngumaðurinn Noel Hanna hefur boðið fram aðstoð sína ef farið verður í leitarleiðangur á K2 í sumar. Hanna ætlaði sér að komast á topp fjallsins í síðasta mánuði en sneri við þegar veður fór versnandi, skömmu áður en síðast spurðist til John Snorra og félaga hans. 6.3.2021 22:34