Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Skjálftavirknin í Bárðarbungu datt hratt niður um klukkan níu eftir að hafa hafist af miklum þunga upp úr klukkan sex í morgun. Viðlíka skjálftavirkni hefur þó ekki sést á svæðinu síðan í aðdraganda eldgossins í Holuhrauni 2014. 14.1.2025 10:35
Hætta rekstri Súfistans í Hafnarfirði Rekstri kaffihússins Súfistans í Strandgötu í Hafnarfirði verður hætt á föstudaginn. Kaffihúsið var stofnað árið 1994 af hjónunum Birgi Finnbogasyni og Hrafnhildi Blomsterberg og hefur verið rekið af þeim og fjölskyldu þeirra frá upphafi. 14.1.2025 08:40
Ragnheiður Torfadóttir er látin Ragnheiður Torfadóttir, fyrrverandi rektor Menntaskólans í Reykjavík, er látin, 87 ára að aldri. Hún varð rektors skólans árið 1995, fyrst kvenna, og gegndi stöðunni til ársins 2001. 14.1.2025 07:47
Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu nú í morgun klukkan 06:08. Stærsti skjálftinn mældist 4,4 að stærð klukkan 6:29. Þrír skjálftanna hafa verið yfir 3 að stærð. 14.1.2025 07:19
Bætir í úrkomu og hiti nær tíu stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, átta til fimmtán metrum á sekúndu. Spáð er rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu, en að muni bæta í úrkomu síðdegis. Úrkomuminna verður á norðaustanverðu landinu. 14.1.2025 07:13
Lilja og Steinar nýir forstöðumenn hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið Lilju Kristjánsdóttur í stöðu forstöðumanns viðskiptaeftirlits og Steinar Arason í stöðu forstöðumanns regluvörslu hjá bankanum. 13.1.2025 13:10
Jón Magnús og Guðríður Lára til aðstoðar Ölmu Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ráðið sem aðstoðarmenn sína Jón Magnús Kristjánsson lækni og Guðríði Láru Þrastardóttur lögfræðing. 13.1.2025 13:08
Klara frá Kerecis til Arterna Biosciences Klara Sveinsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri líftæknifyrirtækisins Arterna Biosciences. Klara kemur til Arterna Biosciences frá Kerecis en þar hefur hún starfað frá árinu 2018 og haldið utan um nokkrar lykildeildir hjá félaginu á miklum vaxtartímum. 13.1.2025 11:24
Notendalausnir Origo verða Ofar Origo lausnir ehf., sá hluti Origo sem hefur sérhæft sig í sölu og þjónustu á notendabúnaði og tæknilausnum, hefur fengið nafnið Ofar. 13.1.2025 10:44
Metfjöldi útkalla þyrlusveitar Gæslunnar Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2024 en alls var sveitin þá kölluð út 334 sinnum. Um er að ræða 31 útkalli meira en árið 2023. 13.1.2025 10:34