Stórhættulegar tálbeituaðgerðir ungmenna á samfélagsmiðlum Myndbönd af hópi ungmenna ganga í skrokk á meintum barnaníðingum ganga á milli manna á samfélagsmiðlum. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir tálbeituaðgerðir stórhættulegar og að dæmi séu um að þær fari á versta veg. 17.1.2025 18:01
Sjá loksins fyrir endann á erfiðustu framkvæmdum á ferlinum Arkitekt og verkstjóri á Vatnsstíg, þar sem nýtt hótel og íbúðarhús hafa gjörbreytt ásýnd götunnar, segja verkið eitt það allra erfiðasta sem þeir hafa ráðist í á ferlinum. Skipulag á reitnum hafi reynst afar flókið - og ekki má heldur gleyma mannlega þættinum. 17.1.2025 10:31
Fær enn þá bullandi hjartslátt þegar síminn hringir óþægilega snemma Kona, sem missti þrjú systurbörn sín í snjóflóðinu í Súðavík fyrir þrjátíu árum, segir að enn þann dag í dag læsist um hana ótti þegar hún heyrir síma hringja snemma morguns. Hún furðar sig á því að rannsóknarnefnd um hamfarirnar, sem hóf störf í byrjun árs, hafi ekki verið komið á fót löngu fyrr. 16.1.2025 21:05
Hörmungar í Los Angeles og myrkur í Smyrilshlíð Íslendingur sem flúði gróðureldana í Los Angeles segir heimili sitt og allt hverfið sem hann bjó í brunnið til grunna. Mikil óvissa ríki um framtíðina og honum líði eins og hann sé staddur í bíómynd. Eldarnir eru þeir mestu á svæðinu í manna minnum og eyðileggingin mikil. Erfiðlega hefur tekist að ná stjórn á þeim þó vind sé tekið að lægja. 9.1.2025 18:03
Átta stiga hiti um helgina og varað við asahláku Veðurstofan varar við miklum leysingum, asahláku og fljúgandi hálku um helgina vegna hlýinda og lægðagangs eftir langan frostakafla. Veðurfræðingur hvetur fólk til að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. 9.1.2025 11:33
Sögulegt fuglaflensusmit á Íslandi og Trump ásælist Grænland Kettlingur sem drapst hér á landi er fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem greinist með skætt afbrigði fuglaflensu, samkvæmt Alþjóðadýraheilbrigðisstofnun. Læðan sem kettlingurinn var undan og annar kettlingur úr sama goti drápust líka. Fólki sem sá um veiku dýrin hefur verið gert að fara í sýnatöku. 8.1.2025 18:03
Foreldrar Ibrahims krefjast tuttugu milljóna í miskabætur Foreldrar Ibrahims Shah, átta ára drengs sem lést þegar ekið var á hann á Ásvöllum í Hafnarfirði í október 2023, krefja ökumann steypubíls um samtals tuttugu milljónir króna í miskabætur, að viðbættum lögmanns- og útfararkostnaði. 8.1.2025 16:03
Bílstjórinn á Ásvöllum ákærður fyrir manndráp af gáleysi Bílstjóri steypubíls, sem ók á dreng á Ásvöllum í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að hann lést, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Þetta staðfestir Hildur Sunna Pálmadóttir sviðsstjóri hjá ákærusviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 8.1.2025 13:24
Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú. 8.1.2025 11:48
Geta loksins kvatt drenginn sinn heima á Íslandi Jarðarför Maciej Andrzej Bieda, tíu ára drengs sem lést á Ítalíu annan í jólum, verður haldin í Landakotskirkju laugardaginn 11. janúar klukkan 13. 7.1.2025 10:44