Máttu ekki synja barni um hjálpartæki Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að bann við styrkjum vegna hjálpartækja sem börnum með fötlun eru nauðsynleg eða hentug til tómstunda eigi sér ekki fullnægjandi stoð í lögum um sjúkratryggingar. 10.8.2023 10:40
Gítarleikarinn Robbie Robertson látinn Kanadíski tónlistarmaðurinn Robbie Robertson, gítarleikari og lagahöfundur hljómsveitarinnar The Band er látinn 80 ára að aldri. 10.8.2023 09:49
Vann einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í lottói Maður sem keypti lottómiða í Flórída hefur unnið rúmlega einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í Mega Millions-lottóinu. Vinningurinn er sá stærsti í sögu lottósins og sá þriðji stærsti í sögu bandarísks lottós. 9.8.2023 11:48
Fjörutíu og einn flóttamaður fórst undan stöndum Ítalíu Fjörutíu og einn flóttamaður lét lífið þegar þegar bátur fórst undan ströndum ítölsku eyjunnar Lampedusa. Báturinn lagði af stað frá hafnarborginni Sfax í Túnis og sökk nokkrum tímum eftir brottför. 9.8.2023 11:22
Segjast hafa komið í veg fyrir atlögu að lífi Selenskís Úkraínsk stjórnvöld segjast hafa komið í veg fyrir atlögu að lífi Volodómír Selenskí, forseta landsins. Úkraínsk kona hefur verið handtekinn vegna málsins. Hún er sögð hafa safnað gögnum um ferðir forsetans til að undirbúa rússneska loftárás. 9.8.2023 07:26
Íslandsvinurinn William Morris á nýjum fótboltatreyjum Fótboltafélagið Walthamstow FC tilkynnti um treyjur félagsins fyrir næsta tímabil í síðustu viku. Treyjurnar eru skreyttar mynstri eftir textílhönnuðinn og íslandsvininn William Morris. 8.8.2023 13:16
Wayne Brady kemur út sem pankynhneigður Leikarinn og grínistinn Wayne Brady hefur komið út úr skápnum sem pankynhneigður. 8.8.2023 12:06
Meiðyrðamáli Trump gegn E. Jean Carroll vísað frá Meiðyrðamáli Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, gegn pistlahöfundinum E. Jean Carroll var vísað frá af alríkisdómara í New York í gær. Trump höfðaði mál gegn Carrol vegna ummæla hennar um að hann hefði nauðgað henni. 8.8.2023 07:26
Opnar sig um líkamsskynjunarröskun og lýtaaðgerðir Söngvarinn Robbie Williams opnaði sig í síðasta mánuði um glímu sína við líkamsskynjunarröskun og sjálfshatur vegna slæmrar líkamsímyndar. Í gær greindi hann frá því að hann hygðist fara í lýtaaðgerðir til að laga sokkin augu sín. 7.8.2023 15:00
Eyddi formúgu fjár í Taylor Swift-miða sem voru ekki til Miðar á yfirstandandi tónleikaferðalag Taylor Swift eru illfáanlegir og rándýrir vegna endursölusíðna. Bandarísk kona sem keypti miða á 1.400 dali (um 180 þúsund íslenskra króna) uppgötvaði eftir kaupin að miðarnir voru ekki til. 7.8.2023 13:54