Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Gyðingar á Íslandi hafa upplifað aukinn ótta í kjölfar hryðjuverka Hamasliða 7. október 2023. Gyðingur búsettur hér á landi segir að landslagið hafi breyst og að hann sé ekki eins opinskár með það að hann sé gyðingur síðan yfirstandandi stríð hófst. 21.12.2025 14:13
„Þetta er bara ljótt“ Deildar meiningar eru um kynnta aðgerðaráætlun Loga Más Einarssonar menningarráðherra á fjölmiðlamarkaði. Sjálfur segir Logi aðgerðirnar skýrar, fjármagnaðar og til þess gerðar að efla lýðræðið í landinu en Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður segir aðgerðirnar þunnt kaffi. 21.12.2025 12:31
Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fyrri flóð hafa veikt sjávarkambinn í Vík í Mýrdal með þeim afleiðingum að sjór gengur lengra inn á land en áður, jafnvel í veðrum sem teljast ekki slæm. Vegagerðin segir að þetta hafi verið fyrirséð þróun. 21.12.2025 10:27
„Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds bílaleigu Akureyrar segir að þrátt fyrir að aukalegar 1550 krónur verði innheimtar af langtímaleigutökum standi það engan veginn undir kostnaði við innleiðingu nýrra laga um kílómetragjald sem hann segir gríðarlegan. 20.12.2025 16:04
„Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims segir veiðirétt íslensks sjávarútvegs á makríl samkvæmt nýju samkomulagi ekki langt frá vonum sínum. Viðbúið hafi verið að 16,5 prósent hlutur Íslands af heildarmakrílkvótanum væri ekki raunhæfur. 20.12.2025 15:18
Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni segir Íslendinga sérstaklega berskjaldaða fyrir vasaþjófnaði. Hann biðlar til fólks að hafa varann á í asanum sem fylgir jólainnkaupum og jólastressi. Þrír vasaþjófar sem voru handteknir í vikunni verða sendir úr landi og þrír hafa þegar verið sendir úr landi. 20.12.2025 13:54
Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Bílaleiga Akureyrar, Höldur, hefur tilkynnt viðskiptavinum sínum að frá og með áramótum muni fyrirtækið innheimta aukalegar 1550 krónur af viðskiptavinum sem eru með bíla í langtímaleigu hjá fyrirtækinu. 20.12.2025 10:10
Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Útlit er fyrir stífa sunnanátt með talsverðri rigningu á aðfangadag jóla í Reykjavík. Veðurspáin gerir ráð fyrir allt að átján metrum á sekúndu í borginni. 20.12.2025 09:48
Gagnrýnir að auglýsingaskilti sé sett framar umferðaröryggi barna í forgangsröðinni Íbúi Kársneshverfis segir Kópavogsbæ taka auglýsingapláss fram yfir umferðaröryggi barna. Hann og ung dóttir hans hafi ítrekað sloppið með skrekkinn þegar bílar þjóti yfir gangbraut á rauðu ljósi og að ekki hafi það bætt úr skák að bótaheit Kópavogsbæjar hafi að engu orðið og að stærðar auglýsingaskilti hafi sömuleiðis verið komið upp við gangbrautarljósin sem byrgir ökumönnum sýn í skammdeginu. 11.12.2025 00:03
Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Fjögur börn voru getin hér á landi með sæði dansks manns. Sjaldgæf og hættuleg genastökkbreyting fannst í erfðaefni hans sem getur valdið krabbameini. Ekki er vitað hvort þau beri stökkbreytinguna. Þetta kemur fram í umfjöllun Ríkisútvarpsins. 10.12.2025 21:35