Framsóknarflokkurinn
Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki
Eftir snarpa baráttu eru sögulegar Alþingiskosningar að baki. Sjálfstæðisflokkur fékk sína verstu kosningu frá upphafi og Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í annað sinn í sögunni. Þá eru bæði Vinstri græn og Píratar dottin af þingi á meðan Viðreisn og Flokkur fólksins uppskáru ríkulega.
Mestu flokkaflakkararnir
Minnkandi flokkshollusta í íslenskri pólitík og lítill munur á stefnumálum hefur gert það að verkum að stjórnmálamenn eru farnir að flakka í meiri mæli á milli flokka. En spurningin er hver er mesti flokkaflakkarinn?
Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst
Sjálfstæðisflokkurinn stekkur upp um 3,1 prósentustig og tekur fram úr Viðreisn í nýjustu könnun Maskínu. Samfylkingin bætir lítillega við sig og mælist áfram stærst en Viðreisn dalar um tvö prósentustig. Botnbaráttan herðist en litlar breytingar er að sjá þess utan.
„Án okkar verður ekki til miðjustjórn“
Sindri Sindrason leit við á hliðarheimili Sigurðar Inga Jóhannssonar í vikunni og fékk sér morgunbolla með formanni Framsóknarflokksins. Ráðherra í dag, en það gæti breyst í kosningunum á morgun.
Hjarta og sál
Hvað þýðir að leggja hjarta og sál í verkin? Fyrir okkur í Framsókn snýst það um að láta ekki aðeins orðin tala, heldur sýna í verki og með árangri hvað raunverulega skiptir máli.
Kosningavökur flokkanna: Pílustaðir, hótel og kirkjur
Kjördagur Alþingiskosninga 2024 nálgast senn. Eftir rúmar fimm vikur af kosningabaráttu nálgast baráttan því hápunkt sinn, kosningakvöldið sjálft þar sem flokkarnir halda kosningavökur sínar. Kosningavökur eru þekkt fyrir að vera ein skemmtilegustu partýin, þó það fari auðvitað eftir því hvernig flokknum gengur.
XB fyrir börn
Samfélag sem setur börnin sín í forgang leggur traustan grunn að farsæld og jöfnuði fyrir komandi kynslóðir. Á síðustu árum hefur Framsókn leitt umfangsmiklar umbætur í þágu barna og fjölskyldna, undir forystu mennta- og barnamálaráðherra. Þessi aðgerðir hafa gjörbreytt þjónustu og þegar sýnt fram á raunverulegan árangur.
„Leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn“
„Maður finnur að fólk vill breytingar. Það er skýlaus krafa um samheldna ríkisstjórn. Þetta eru náttúrulega frábærar tölur. Við erum auðvitað afar þakklát. Liðið er bara samheldið, það eru engin vandræði og fullt af reynslu og þekkingu og bara gleði. Ég er samt keppnismanneskja, leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn. Það eru tíu mínútur eftir af seinni hálfleik.“
Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing
Íslendingar munu kjósa sér nýtt þing laugardaginn 30. nóvember. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni.
Íslensk ferðaþjónusta til framtíðar: Næstu skref
Ég er stolt af íslenskri ferðaþjónustu. Hún er ekki aðeins mikilvægur burðarás í efnahagslífi okkar, stærsta sjálfsprottna byggðaaðgerð Íslandssögunnar og aflvaki nýsköpunar um allt land. Ferðaþjónustan gerir okkur betri á okkar heimavelli – hún gerir okkur að stoltari gestgjöfum.
Framtíðin er í húfi
Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum stigið stór skref í átt að því að bæta lífsskilyrði barna og fjölskyldna. Í þessu verkefni hefur Framsókn verið í leiðtogahlutverki.
Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun
Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu, hafnar því að „opnun“ á nýju meðferðarheimili hafi verið skrautsýning sett upp sérstaklega fyrir Ásmund Einar Daðason barnamálaráðherra.
Drodzy Polacy
Nazywam się Jóhann Karl Sigurðsson. Jestem mężem kobiety pochodzącej z zagranicy, więc znam kwestie związane z imigrantami z własnego doświadczenia. Często pomagałem również imigrantom.
Svona voru kappræður flokksleiðtoganna
Leiðtogar stjórnmálaflokkanna mættu í kappræður hjá Heimi Má í opinni dagskrá á Stöð 2.
Glæný könnun Maskínu: Fylgi Framsóknar og Flokks fólksins á uppleið
Flokkur fólksins og Framsóknarflokkur bæta við fylgi sitt um tvö prósent. Þetta sýnir glæný könnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokkanna. Samfylking og Viðreisn dala um sirka tvö prósentustig á milli Maskínukannanna og Píratar mælast inni á þingi.
Að kjósa annað en Framsókn er að kjósa kyrrstöðu eða afturför í heilbrigðismálum
Frá árinu 2022 og til 2023 fjölgaði valkvæðum liðskiptaaðgerðum á Íslandi um rúmlega átta hundruð aðgerðir. Meðal tíminn sem að hver sjúklingur þurfti að eyða á biðlista var yfir níu mánuðir.
Sigurður Ingi og óverðtryggingin 2 - lofað upp í ermina á sér
Það var átakanlegt að fylgjast með þér Sigurður Ingi í Forystusætinu. Það átti að snuða þig um að koma kosningabombunni þinni að. Þeim varð nú ekki kápan úr því klæðinu. Þú sást til þess.
Kannast ekki við áform um brjóstmynd úr bronsi
Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, segir það aldrei hafa komið til tals og hvað þá til framkvæmdar að láta gera brjóstmynd úr bronsi af sjálfum sér til að skreyta Ráðhús Reykjavíkur.
108 ár – hverjum treystir þú?
Íslensk stjórnmál hafa gengið í gegnum ótal umbreytingar síðustu áratugi. Flokkar hafa komið og farið, öfgar hafa verið reiddar fram og óstöðugleiki hefur oft sett mark sitt á landslagið. En eitt stendur upp úr sem stoð í íslenskri samfélagsgerð: Framsóknarflokkurinn.
Segist sækja fé í aukafjárveitingu vegna inngildingar
Barnamálaráðherra segir að fyrir atbeina núverandi fjármálaráðherra sé hægt að stórefla Ráðgjafar-og geiningarmiðstöð barna. Fé til þess sé m.a. sótt í aukafjárveitingu í fjárlögum til inngildingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fullyrðingar barnamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun stofnunarinnar barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna.
Barátta í áratugi fyrir auknu starfsnámi
Árin mín í stéttarfélagsstörfum voru um margt merkileg en þar voru til staðar angar af stuttu starfsnámi sem í minni tíð var síðan eflt og sífellt bætt ofan á. Þegar síðan 5 stéttarfélög sameinuðust 1998 -1999 þá kom í minn hlut að leiða starfsmenntun innan hins nýja stéttarfélags, Eflingar. Búnar voru til ótal nýjar stuttar starfsmenntabrautir sem unnið var að í samvinnu við vinnuveitendur og svo sveitafélögin. Síðar komu svo starfsgreinaráðin sem ætlað var að þróa eftir þörfum námsleiðir á framhaldsskólastigi. Þar hófst nýr kafli og merkilegur því sótt var til Norðurlanda um reynslu og gekk það vel.
Segir „taugaveikluðum“ Framsóknarmönnum að róa sig
Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir fullyrðingar barna- og menntamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna.
Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar
Lilja Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar segir að því fari fjarri að hún hafi ekki sterkar skoðanir þrátt fyrir að Framsókn sé á miðju stjórnmálanna. Lilja segir árin sem hún bjó í Kóreu hafa haft mikil áhrif á hana.
FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni
Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026.
Skólaforðun: Rangnefni sem þarfnast nýrrar nálgunar
Þegar rætt er um það sem kallað hefur verið "skólaforðun" er mikilvægt að átta sig á að hugtakið sjálft getur gefið ranga mynd af vanda barnanna.
Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna
Barna-og menntamálaráðherra segir skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa komið í veg fyrir að ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna hafi fengið nægt fjármagn til að sinna þjónustu sinni að fullu. Núverandi fjármálaráðherra ætli að taka á málinu.
Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn
Nýtt meðferðarheimili fyrir ungmenni var í dag opnað í Mosfellsbæ en heimilinu er ætlað að vera viðbót við greiningar- og meðferðardeild Stuðla. Meðferðarheimilið heitir Blönduhlíð og stendur við Farsældartún þar sem sérstakt þjónustuþorp fyrir börn á að rísa.
Vanrækt barn er besti ráðherrann
Það hefur loðað við mig frá því ég bauð mig fram til Alþingis árið 2016, í þriðja sæti fyrir Framsókn í Reykjavík norður, að ég væri framsóknarmaður. Því fer reyndar fjarri í dag. Ég hef ekki verið flokksbundinn neinum flokki í nokkur ár þó ég sé giftur flokksbundnum framsóknarmanni. Ég hef oft verið ósammála forystu Framsóknar og fundist stefnumál flokksins óljós.
Skuggaspil valdsins
Hvert líður land sem stjórnað er af þeim sem kunni að telja peninga en skilji ekki gildi mannsins? Hér kemur á svið okkar sagan af Bjarna og Simma, tveimur höfðingjum sem hafa setið við stjórnvöl Íslands lengur en flestir vilja muna. Þeir hafa siglt þjóðarskútunni í gegnum myrkur og birtu, en við skulum spyrja; Hvert hefur ferðinni verið heitið?
Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna
Hópur kvikmyndagerðarmanna hefur lýst yfir stuðningi við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. Lilja kynnti á dögunum framtíðarsýn og aðgerðaáætlun í málefnum kvikmyndagerðar.