Birtist í Fréttablaðinu

Claire til BBA/Fjeldco
Enski lögmaðurinn Claire Broomhead, sem hefur undanfarin ár verið eigandi hjá LOGOS og starfað á skrifstofu lögmannsstofunnar í London, hefur gengið til liðs við BBA/Fjeldco sem eigandi.

Vatnsfyrirtæki Jóns tapaði 3,2 milljörðum
Tap Icelandic Water Holdings jókst um 61 prósent á milli ára og nam 25,6 milljónum dollara árið 2018. Það jafngildir um 3,2 milljörðum króna. J

Jón og Kolbeinn vilja fara í stjórn Símans
Útlit fyrir átök um stjórnarsæti í Símanum. Stoðir tefla fram Jóni Sigurðssyni og þá mun Kolbeinn Árnason lögmaður sækjast eftir stuðningi til að koma nýr inn í stjórn.

Markaðurinn krefst fleiri fjárfesta
Stórir einkafjárfestar segja að fleiri fjárfesta vanti inn á markaðinn og meira fjármagn þurfi að vera í virkri stýringu. Fari Kauphöllin í vísitölu MSCI mun það hafa jákvæð áhrif á virkni markaðarins.

Lyklar virki alls staðar
Rafbílasamband Íslands er tilbúið að gefa eftir kröfu um að ekki þurfi aðgangslykla frá orkufyrirtækjum til að hlaða rafbíla í skiptum fyrir að lykill frá einu fyrirtæki virki á allar hleðslustöðvar.

Freista þess að afla Play 1.700 milljóna
Íslensk verðbréf vinna að því að tryggja flugfélaginu Play hlutafé upp á 1.700 milljónir króna frá innlendum fjárfestum.

Risagróðurhús þyrfti orku Blönduvirkjunar
Paradise Farm þarf raforku sem samsvarar hámarksafli Blönduvirkjunar ef áform um 500 þúsund fermetra gróðurhús verða að veruleika. Talsmaður segir að leggja þyrfti í miklar fjárfestingar til að flytja raforkuna að stöðinni.

Afrekaskrá Vinstri grænna
Ríkisstjórnin hyggst veikja Samkeppniseftirlitið á þann veg að eftirleiðis geti fyrirtæki metið sjálf hvort samkeppni milli þeirra sé næg...

Dauðinn í hverju horni
Ný glæpasaga Ragnars Jónassonar, Hvítidauði, gerist meðal annars á berklahæli. Næsta bók kemur út á frönsku og íslensku.

Njótum jólanna án þess að kála okkur
Á Heilsustofnuninni Hveragerði er í desember boðið upp á helgarnámskeið í heilsu með Geir Gunnari Markússyni næringarfræðingi sem aðstoðar fólk við að halda sér á sporinu í mánuði allsnægta.

Klóna hunda og ketti í hundraðatali í Texas
Mörg hundruð manns hafa tekið á það ráð að láta klóna gæludýrin sín líkt og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú. Lauren Aston, hjá ViaGEn Pets, segir eftirspurn eftir klónun gæludýra vera að aukast.

Frumvarp um fæðingarorlof afleitt að mati verðandi móður
Frumvarp félagsmálaráðherra um lengingu fæðingarorlofs felur í sér að bæta við rétt hvors foreldris um sig. Kona sem á von á barni í byrjun næsta árs gagnrýnir ósveigjanleika í reglunum. Þetta fer gegn leiðbeiningum landlæknis um að hafa barn á brjósti út fyrsta árið og lengur ef það hentar móður og barni.

Ráðherra styður Hönnu Sigríði
Hanna Sigríður var skipuð forstjóri án auglýsingar af ráðherranum og tók við sem forstjóri um síðustu áramót. Síðan þá hefur mikil ólga kraumað meðal starfsmanna.

Attentus lagði til að ráðgjafi stigi til hliðar
Stjórnsýsla Stjórnendur Attentus höfðu sjálfir frumkvæði að því að nýr ráðgjafi tæki yfir verkefni sem fyrirtækið var fengið til að vinna í samstarfi við stjórnendur Vinnueftirlitsins.

Kanni kynbundinn launamun söngvara Íslensku óperunnar
Formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna segir kjarasamninga hafa verið brotna í samningum Íslensku óperunnar við söngvara sem tóku þátt í sýningunni Brúðkaup Fígarós. Æfingalaun kvenkyns söngvara hafi verið afar lág. Verið sé að snúa niður kjör þeirra sem í raun beri uppi árangur Óperunnar.

Samherji segir uppbyggingu hamlað og Norlandair horfir til Grænlands með framtíðaraðstöðu í huga
Útgerðarfélagið Samherji gagnrýnir að í drögum að samgönguáætlun sé hvorki gert ráð fyrir að því að ljúka við flughlað Akureyrarflugvallar né því að stækka flugstöðina við völlinn.

Kári styrkti Sósíalista
Að auki lagði viðskiptamaðurinn Sigurður Pálmason fram sömu upphæð til flokksins.

Vilja rækta papaja og mangó í Ölfusi
Fjárfestar stefna að því að reisa allt að fimm hundruð þúsund fermetra gróðurhús hér á landi. Formaður Félags garðyrkjubænda og einn aðstandenda félagsins segir hugmyndina að Ísland verði matvælaland heimsins. Háð orkuverði hvort verkefnið sé raunhæft.

Lífsgrös og leyndir dómar
Bók Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur um rætur læknisþekkingar nútímans er afrakstur tveggja áratuga greiningar á galdraskræðum, lausnarsteinum og lækningamætti jurta.

Strandabörn helmingi færri en um aldamótin
Fækkun íbúa á Ströndum hefur verið viðvarandi síðustu áratugi. Börnum hefur fækkað hlutfallslega meira en öðrum íbúum á svæðinu.

Sameining rædd á Suðurlandi
Tillaga oddvita Skaftárhrepps um að hafnar verði viðræður um kosti og galla sameiningar sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps var samþykkt í sveitarstjórn.

Kaupir hlutafé í Alvotech
Fjárfestingafélagið Yas Holding hefur gert samkomulag við Alvotech um kaup á nýju hlutafé og samstarfssamning um þróun, framleiðslu og sölu líftæknilyfja.

Boðað varaflugvallagjald sagt ólöglegt
Forstjóri Icelandair segir áform um varaflugvallagjöld ólögleg og varhugaverð og brjóta gegn EES-samningi. Isavia lýsir áhyggjum af samblöndun byggðastefnu og reksturs Keflavíkurf lugvallar.

Vilja stytta grunnskólanámið
Samtök atvinnulífsins segja að sameina þurfi háskóla hérlendis og leggja til að ráðherra skipi nefnd til að fara í saumana á hvort hér þurfi sjö háskóla. Áður hafi verið rætt um sameiningu en ekki orðið af því.

Rjúpnaveiði fyrstu helgi tímabilsins gekk vel
Mér sýnist á samfélagsmiðlum og af því sem ég hef heyrt að þetta hafi verið góð helgi til veiða, segir Áki Ármann Jónsson, formaður Skotvís.

Spaðarnir enn á þyrlunni sem fórst í Suður-Kóreu
H225 Super Puma björgunarþyrla sem fórst í Suður-Kóreu fyrir helgi með sjö manns náðist upp úr sjónum í gær. Sjá má af myndum af flakinu að spaðar þyrlurnar eru enn áfastir.

Ráðgjafa vikið fyrir meintan dónaskap
Einum eigenda ráðgjafarfyrirtækisins Attentus var gert að hætta störfum fyrir Vinnueftirlitið eftir meintan dónaskap í garð starfsmanna sem sendu kvörtunarbréf til félagsmálaráðherra. Annar úr eigendahópi Attentus tók síðar við.

Með höfuðverk í 28 ár
Steingrímur Sævarr Ólafsson lenti í bílslysi árið 1991 og hefur þjáðst af höfuðverkjum síðan. Hann leyfir "samferðamanninum“ ekki að stjórna lífi sínu.

Ég kemst í dauðafæri, svo klikkar eitthvað
Halldór Einarsson, oft kenndur við Henson, gerir upp litríkt og ævintýralegt líf sitt í ævisögunni Stöngin út. Magnús Guðmundsson blaðamaður skrifaði sögu hans og segir ferlið hafa verið lærdómsríkt.

Langar til að verða hundrað ára gömul
Á mánudaginn verður ný heilsumiðstöð opnuð í Faxafeni. Hún er rekin af þeim Manuelu Ósk, Arnari og Snorra, sem ætla sér öll að ná hundrað og eitthvað ára aldri og líta ótrúlega vel út.