Fangelsismál

Fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni
Karlmaður á fimmtugsaldri, vistmaður á Litla-Hrauni, fannst látinn í klefa sínum í morgun.

Vill bætur vegna gæsluvarðhalds sem var lengra en refsing
Nígerískur karlmaður fer fram á bætur frá íslenska ríkinu vegna frelsissviptingar eftir að hafa hlotið tveggja mánaða dóm en setið í gæsluvarðhaldi í tæplega ár. Lögmaður mannsins segir það handvömm í íslenskum lögum að ekki sé gert ráð fyrir að þessi staða geti komið upp.

Fangi kærir umfjöllun í DV til siðanefndar BÍ
Félag fanga hefur kvartað undan Ágústi Borgþóri Sverrissyni til siðanefndar Blaðamannafélagsins fyrir hönd Gunnars Rúnars Sigurþórssonar. Umfjöllun um einkahagi Gunnars og fjölskyldu hans sögð bæði tillitslaus og óvönduð.

Engin úrræði eru fyrir andlega veika fanga eftir afplánun
Fangelsismálastofnun hefur áhyggjur, samkvæmt heimildum fréttastofu, af andlega veikum föngum, sem geta verið hættulegir sjálfum sér og öðrum og eru að ljúka afplánun á næstunni, þar sem engin úrræði standa þeim til boða.

Stórskuldugum gert að sitja sektir af sér
Dómþolar hæstu sekta fara í fangelsi borgi þeir ekki, samkvæmt tillögum starfshóps. Samfélagsþjónusta verði ekki í boði fyrir þann hóp og fangapláss tryggð vegna vararefsinga. Innheimtuhlutfall hæstu sekta undir tveimur prósentum.

Blindur fangi á níræðisaldri tvívegis óskað eftir náðun
Sótt hefur verið um náðun í tvígang fyrir blindan fjölveikan fanga á níræðisaldri sem afplánar nú í fangelsinu á Akureyri. Af læknisvottorðum er ljóst að dvöl hans í fangelsi sé erfið en hann þarf aðstoð við flest dagleg verk.

Alþjóðleg eftirlitsnefnd lýsir áhyggjum sínum af heilbrigðismálum í fangelsum landsins
Eftirlitsnefnd á vegum Evrópunefndar um pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, eða pyntinganefnd Evrópuráðsins, heimsótti fjögur íslensk fangelsi í maí á þessu ári. Nefndin hefur nú birt skýrslu þar sem farið er yfir það sem betur mætti fara í íslenskum fangelsum, að mati nefndarinnar.

Stofna móttökumiðstöð fyrir aðstandendur fanga
Formaður félags fanga segir stjórnvöld hafa sýnt málaflokkinum lítinn áhuga.

Mikilvægt að skima fyrir kynsjúkdómum í fangelsum
Til stendur að hefja skimanir fyrir kynsjúkdómum meðal fanga til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu kynsjúkdóma í fangelsum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fylgst sé með fólki í áhættuhópum. Unnið er að aðgerðaráætlun til að bregðast við útbreiðslu kynsjúkdóma á Íslandi.

Mikill áhugi fagfólks á geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum
Sex hafa lýst áhuga á viðræðum við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) um geðheilbrigðisþjónustu fyrir fanga í fangelsum landsins. Þetta kemur fram í svari Sjúkratrygginga við fyrirspurn Fréttablaðsins. Viðræður eru sagðar standa yfir.

„Við þurfum bara að laga okkur að nútímanum“
"Ég efast að við þurfum að breyta miklu. Við erum núna með möguleikann á deildarskiptingu innan nýja fangelsisins á Hólmsheiði þannig að nei, ég held að þetta verði alls ekki vandamál hjá okkur,“ sagði Páll Winkel, fangelsismálastjóri, í tengslum við nýsamþykkt lög um kynrænt sjálfræði.

Fanga ekki veitt þjónusta í samræmi við dómsúrskurð
Gæsluvarðhaldsfangi fær ekki fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu þrátt fyrir að réttur til hennar sé sérstaklega orðaður í úrskurði Landsréttar. Þjónustan hefur ekki verið tryggð, segir forstjóri Fangelsismálastofnunar.

Ógagnsemi fangelsunar rædd í Svíþjóð
Alþjóðaráð Sameinuðu þjóðanna um vímuefnastefnu sendir frá sér sína þriðju ályktun í dag.


Pyndinganefnd í eftirlitsferð á Íslandi
Nefnd Evrópuráðs um varnir gegn pyndingum er í reglubundinni eftirlitsferð á Íslandi en nefndin var hér síðast 2012. Nefndin hefur eftirlit með stofnunum sem vista frelsissvipt fólk, fangelsi, geðdeildir og vistheimili.

Geðheilbrigðisþjónusta aukin í fangelsum landsins
Sjúkratryggingar Íslands auglýsa eftir tilboðum vegna geðheilbrigðisþjónustu við fanga í fangelsum landsins. Umsóknarfrestur rennur út eftir ellefu daga. Forstjóri Sjúkratrygginga segir að verkefnið nái til allra fangelsa landsins og vonar að hægt verði að ganga frá samningum í byrjun sumars.

Vilja að nefndin skoði skipun Skúla Þórs
Afstaða, félag fanga, hyggst senda stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis erindi og óska eftir því að nefndin taki til skoðunar skipun formanns nefndar um eftirlit með störfum lögreglu.

Andlega veikir fangar gengið berserksgang á Hólmsheiði: "Ég tel að fólkið eigi ekki heima í fangelsi.“
Mikið álag er á starfsfólki og föngum á Hólmsheiði vegna andlega veikra fanga sem þar eru vistaðir. Nokkur tilfelli hafa komið upp á síðustu vikum þar sem fangarnir hafa gengið berserksgang í fangelsinu. Fangelsismálastjóri er óánægður með ástandið og segir fólkið ekki eiga heima í fangelsi.

Héraðssaksóknari vill lengja hámarkstíma gæsluvarðhalds
Héraðssaksóknari telur brýnt að lengja hámarkstíma gæsluvarðhalds. Tólf vikna hámark gæsluvarðhaldsvistunar sem kveðið er um í 4. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála sé með öllu óraunhæft og eigi sér ekki hliðstæðu í löggjöf annarra Norðurlanda.

Fangelsin kaupa tóbak fyrir milljónir
Fangelsismálastofnun kaupir tóbak fyrir hundruð þúsunda króna í hverjum mánuði fyrir fanga. Tóbakið er selt í fangelsissjoppunum á Litla-Hrauni og Sogni. Stofnunin hefur engar tekjur af og selur tóbakið á kostnaðarverði.

Bæta þarf úrræði fyrir konur sem koma úr fangelsum
Fá úrræði eru í boði fyrir konur með fjölþættan vanda og að aflokinni fangelsisvist. Talskona Rótarinnar, félags um málefni kvenna með áfengis- og fíknivanda, og yfirlæknir á Vogi eru sammála um að gera þurfi úrbætur í málum kvenna í þessari stöðu.

Strokufangi náðist á hlaupum frá fangelsinu á Akureyri
Fangi í fangelsinu á Akureyri gerði fyrr í dag tilraun til að strjúka. Fanginn komst út úr fangelsinu en var hlaupinn uppi af vöskum fangaverði. Um er að ræða fyrsta strokið af lokuðu fangelsi frá árinu 2012 þegar Matthías Máni Erlingsson strauk af Litla-Hrauni skömmu fyrir jól.

Kasta upp lyfinu og selja áfram
Fangar á Litla-Hrauni hafa kastað upp lyfinu suboxone sem ætlað er sjúklingum í viðhaldsmeðferð gegn morfínfíkn og selt það áfram. Um tuttugu fangar fá lyfinu ávísað þrátt fyrir að það sé á bannlista í fangelsum samkvæmt reglum landlæknis. Fyrrverandi fangi segir neyslu á læknadópi hafa stóraukist á Litla-Hrauni.

Dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir „fólskulega“ árás á ungan hælisleitanda
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi nýlega tvo fanga á Litla-Hrauni í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á ungan hælisleitanda frá Marokkó.

Erfitt að fara úr svörtu hagkerfi
Formaður Afstöðu segir erfitt fyrir að fara úr svarta hagkerfinu þegar maður er á annað borð kominn þar inn.

Ár bak við lás og slá fyrir steikarpönnuárás á Hrauninu
Hrannar Páll Róbertsson, 31 árs karlmaður, hefur verið dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás í eldhúsaðstöðu fanga á Litla-Hrauni í apríl í fyrra.

Fór með réttindi fanga fyrir Hæstarétt og vann
Helgi Magnússon háði baráttu fyrir kosningarétti og braut blað í réttindamálum fanga meðan hann sat í gæsluvarðhaldi.

Meðvituð um hungurverkfall mannsins á Litla-Hrauni
Páll Winkel fangelsismálastjóri segist ekki geta rætt einstök mál en staðfestir í samtali við Vísi að fangelsismálayfirvöld séu meðvituð um hungurverkfall mannsins.

832 mál afgreidd hjá Landsrétti síðan rétturinn tók til starfa
Réttarkerfið á Íslandi er svo gott sem á hliðinni að sögn dósents við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

Fjórir gert tilraun til að skaða sig í fangaklefa frá áramótum: „Þá er bara allt notað til að reyna skaða sig“
Frá áramótum hafa fjórir einstaklingar gert tilraun til að skaða sig í fangaklefum lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu. Lögreglustjórinn segir fangaverði stundum neyðast til að afklæða fólk í annarlegu ástandi þar sem það noti fötin til að reyna að stytta sér aldur. Unnið sé að úrbótum.