

Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin.
Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert.
Veitingastaðir McDonald‘s í Rússlandi voru opnaðir á nýjan leik í morgun eftir að stórfyrirtækið yfirgaf landið fyrr í vor vegna innrásarinnar í Úkraínu. Litlar breytingar hafa verið gerðar á veitingastöðunum eða matnum sem seldur er þar.
Rússar hafa líklega skotið tugum áratuga gamalla eldflauga sem hannaðar voru til að bera kjarnorkuvopn og granda flugmóðurskipum á skotmörk í Úkraínu. Þær eru sagðar ónákvæmar og líklegar til að valda dauðsföllum meðal óbreyttra borgara.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa stefna að því að eyða öllum borgum í Donbas héraði.
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna segir að Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, hafi ekki viljað hlusta á aðvaranir um að Rússar væru að safna liði í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu.
Yfirmaður í úkraínska hernum segir að framganga Úkraínumanna í stríðinu sé algjörlega háð því hvað Vesturlöndin láti þeim í té. Hann útilokar ekki að Rússar geri hlé á stríðinu til að reyna að sannfæra Vesturlönd um að slaka á viðskiptaþvingunum.
Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir rússnesk stjórnvöld ekki munu láta það gerast að „járntjald“ falli á efnahagslíf landsins líkt og þegar Sovétríkin voru og hétu. Þau mistök verða ekki endurtekin, segir hann.
Ævintýralegur flótti upp á líf og dauða er ljóslifandi í huga úkraínskar fjölskyldu sem var föst í hrikalegum aðstæðum í Maríupól í rúman mánuð, en er nú komin til Íslands.
Orrustan um Severodonetsk er sú erfiðasta sem Úkraínumenn hafa háð frá því að innrás Rússa hófst og mun ráða örlögum Donbas, segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti. Rússar virðast nálægt því að ná Severodonetsk á sitt vald en ríkisstjóri Luhansk héraðs segir hersveitir Úkraínu myndu getað „hreinsað“ borgina á nokkrum dögum með langdrægum vopnum frá Vesturlöndum.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir í viðtali við Financial Times að pattstaða í stríðinu við Rússa sé ekki valkostur og að Úkraína verði að hafa sigur á vígvellinum. Hann segir skort á vopnum hamla gagnsókn Úkraínuhers.
Vassily Nebenzia, sendifulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, gekk út af fundi öryggisráðsins í gær þegar forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins sakaði Rússa um að nota matvælabirgðir sem „leyniflaugar“ gegn þróunarríkjum heims.
Roman Kutuzov, rússneskur undirhershöfðingi, er sagður hafa verið felldur í árás á Donbas sem hann fór fyrir frá Donetsk-héraði. Rússneskir ríkismiðlar greina frá falli herforingjans og úkraínski herinn hefur einnig staðfest fall hans.
Harðir bardagar geisa nú við borgina Severodonetsk í austurhluta Úkraínu. Volodímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti hermenn á austurvígstöðvunum til að stappa í þá stálinu í gær.
Roman Abaramovich, fyrrverandi eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea, er einstaklega auðugur maður. Honum leiðist ekki að eyða peningum sínum og spurning er hvað hann geri fyrst henn getur ekki dælt peningum í Chelsea lengur. Mögulega býður hann til veislu.
Fyrirhugaðri ferð Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, til Serbíu hefur verið aflýst eftir að nágrannaríki Serbíu bönnuðu flugvél hans að ferðast um lofthelgi sína.
Vladimir Pútín Rússlandsforesti hótar að Rússir geri árásir á ný skotmörk innan Úkraínu ef Bandaríkin útvega Úkraínu langdrægar eldflaugar, segir í ríkismiðli Rússlands.
Einn særðist eftir eldflaugaárás Rússa á Kænugarð í morgun, segir Vitali Klitschko, borgarstjóri höfuðborgarinnar. Þá er hart barist í borginni Sjevjeródonetsk þar sem þúsundir almennra borgara hafa leitað sér skjóls í kjöllurum.
Annar mannanna, sem sakaður er um að hafa banað Alexander Litvinenko í Lundúnum, er látinn úr Covid-19.
Hundruðir manna flýja borgina Slóvíansk í austur Úkraínu daglega og tölur brottfluttra hafa næstum tvöfaldast í þessari viku. Loftárás sem drap þrjár manneskjur í borginni á þriðjudag hefur valdið þessum aukna fólksflótta, segir Vadym Lyakh, yfirmaður herstjórnar í Slóvíansk.
Rússneska innrásarliðið í Úkraínu hefur skilið eftir sig dauða og eyðileggingu í norður-, austur- og suðurhluta landsins á þeim hundrað dögum sem liðnir eru frá því innrásin hófst. Síðustu daga og vikur hafa Rússar látið stórskotum og eldflaugum rigna yfir borgir og bæi í Donbashéraði.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti birti í morgun myndskeið sem er tekið á nákvæmlega sama stað og annað myndskeið var tekið fyrir 99 dögum, degi eftir að innrás Rússa hófst. Þá lét forsetinn þau fleygu orð falla að hann þyrfti ekki brottflutning frá Kænugarði, heldur vopn. Í myndskeiðinu frá því í dag sagði forsetinn „Við höfum varið Úkraínu í 100 daga. Við munum vinna sigur. Dýrð sé Úkraínu!“.
Rússneski herinn er ekki uppbyggður fyrir þau verkefni sem hann átti að leysa af hólmi í Úkraínu. Frá upphafi stríðsins hefur herinn átt í basli og frammistaða hans verið langt undir væntingunum, ef svo má að orði komast.
Vólódímir Selenskí Úkraínuforseti segir að Rússar stjórni um fimmtungi Úkraínu. Hart er barist víða um landið en langmest í austurhluta þess.
Bandaríkjamenn munu verða við óskum Úkraínumanna og senda þeim háþróuð og langdræg eldflaugakerfi en aðeins eldflaugar með miðlungs drægi. Joe Biden Bandaríkjaforseti segist vilja styðja við Úkraínu án þess að stigmagna átökin.
Hermenn og málaliðar frá Rússlandi eru sagðir hafa tekið hundruð manna af lífi í bænum Moura í Malí í mars. Hermennirnir voru að elta vígamenn sem hafa verið umsvifamiklir á svæðinu um árabil.
Tunnan af olíu hækkaði um þrjú prósent og kostar nú nærri því 120 dollara eftir að Evrópusambandríki náðu samkomulagi um að banna innflutning á nær allri olíu frá Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. Olíuverð hefur þegar hækkað um sextíu prósent á þessu ári.
Hersveitir Rússa stjórna orðið um sjötíu prósentum af borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Harðir bardagar geysa í borginni og ríkisstjóri Luhansk segir að sigur Rússa þar gæti reynst þeim mikilvægur táknrænn sigur, þó að hernám Severodonetsk þjóni ekki miklum taktískum tilgangi.
Rússar leggja mikið kapp á að sigra síðustu úkraínsku hermennina í Luhansk. Harðir bardagar geysa í héraðinu og víðar í Austur-Úkraínu og segja sérfræðingar að Rússar virðist vera að drífa sig.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í kvöldávarpi sínu í gær að aðstæður í Donbas væru „ólýsanlega erfiðar“ og þakkaði úkraínskum hermönnum sem reyni áfram að verjast harðari árásum Rússa.