Rússland
Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti vill hitta Vladímir Pútín Rússlandsforseta og freista þess að koma friðarviðræðum aftur á skrið. Leiðtogarnir hafa ekki mæst augliti til auglitis frá því að Rússland gerði innrás í Úkraínu snemma árs 2022.
Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa spurt Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta að því á dögunum hvort Úkraínumenn gætu gert árás á Moskvu eða St. Pétursborg.
Pútín lætur sér fátt um finnast
Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður ætla að halda áfram stríðsrekstri Rússa í Úkraínu þar til Vesturlönd taka þátt í friðarviðræðum á hans forsendum.
Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín
Júlía Navalní, ekkja Alexei Navalní pólitísks andstæðings Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, biðlar til ítalskra stjórnvalda að aflýsa tónleikum leiddum af rússneskum hljómsveitarstjórnanda sem er sagður nátengdur Pútín.
Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump
Stjórnvöld í Úkraínu fagna mjög ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að selja Úkraínumönnum vopn í gegnum Atlantshafsbandalagsríkin, sem munu greiða fyrir og senda vopnin gegn því að fá nýjar birgðir frá Bandaríkjunum.
Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar Rússum með „mjög þungum tollum“ ef ekki næst að semja um frið í Úkraínu innan 50 daga. Hyggst hann aðstoða Evrópuríki við að senda Úkraínumönnum fleiri vopn, þar á meðal Patriot-loftvarnarkerfin sem eru efst á óskalista Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta.
Aðalsprautan í Pussy Riot fær íslenskan ríkisborgararétt
Nafn Nadezhdu Tolokonnikova, stofnanda hljómsveitarinnar Pussy Riot, er að finna á lista yfir einstaklinga sem lagt er til fái íslenskan ríkisborgararétt. Alþingi mun taka listann fyrir í dag.
Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt
Oscar Andreas Boganegra Florez frá Kólumbíu er einn þeirra fimmtíu sem mun fá íslenskan ríkisborgararétt á Alþingi í dag þegar þingmenn munu taka fyrir frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar. Frumvarpið var lagt fram í dag af allsherjar- og menntamálanefnd, á síðasta degi þings fyrir frí.
Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart
Keith Kellogg hershöfðingi í Bandaríkjaher og Sérstakur ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta kom til Úkraínu í morgun til skrafs og ráðagerða en búist er við því að rætt verði um frekari hernaðarstuðning fyrir Úkraínumenn og hertari refsiaðgerðir gegn Rússum.
Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans
Úkraínsk yfirvöld segjast hafa drepið tvo rússneska fulltrúa sem báru ábyrgð á dauða háttsetts úkraínsks ofursta sem var skotinn til bana á fimmtudag.
Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“
Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur lofað Rússum skilyrðislausan stuðning sinn í innrásarstríði þeirra við Úkraínu.
Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás
Rússar skutu rúmlega sex hundruð flugskeytum og drónum í gríðarstórri árás í nótt á vesturhluta Úkraínu. Að minnsta kosti fjórir eru látnir og fjórtán særðir.
Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa
Alþjóðabankinn áætlar að tíu ára enduruppbygging Úkraínu muni kosta um það bil 524 milljarða dala en færi svo að Rússum yrði að ósk sinni og þeir fengju þau svæði sem þeir hafa nú þegar lagt undir sig í friðarsamningum, myndu tæplega 200 milljarðar dala falla á þá.
Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt
Tveir létust og fleiri særðust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt en fjöldi sprenginga heyrðist í höfuðborginni. Íbúum var ráðlagt að leita skjóls og fjöldi fólks varði nóttinni á aðallestarstöð borgarinnar.
Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk
Rússneski herinn gerði gríðarlega umfangsmiklar árásir á Úkraínu í nótt, að sögn Vólódimírs Selenskís Úkraínuforseta, gegn 741 skotmarki. Segir hann Rússa hafa notað 728 dróna og þrettán eldflaugar í árásinni.
Er Trump að gefast upp á Pútín?
Vladimir Pútín Rússlandsforseti virðist vera farinn að reyna á þolinmæði Donald Trump Bandaríkjaforseta en síðarnefndi sagði í gær að Pútín væri fullur af „kjaftæði“.
Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann
Talsmaður stjórvalda í Kreml segir fréttir af dauða fyrrverandi samgönguráðherra Rússlands sorglegar en vill ekki tjá sig um hvernig hann bar að. Yfirvöld segja að ráðherrann virðist hafa svipt sig lífi skömmu eftir að hann var rekinn úr embætti.
Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða
Þrír menn hafa verið sakfelldir í Lundúnum fyrir að hafa kveikt í fyrirtækjum með tengsl við Úkraínu fyrir hönd rússneska málaliðahópsins Wagner.
Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann
Roman Starovoit, sem Vladímír Pútín rak úr stöðu samgönguráðherra Rússlands í morgun, fannst látinn af völdum byssuskots í bifreið sinni í dag. Yfirvöld í Rússlandi segja hann hafa fallið fyrir eigin hendi.
Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi
Vladímír Pútín Rússlandsforseti rak samgönguráðherrann sinn í morgun. Engin skýring var gefin á brottrekstrinum en miklar raskanir urðu á flugsamgöngum í Rússlandi um helgina vegna drónaárása Úkraínumanna.
Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa logið um ástæðuna fyrir því að vopnasendingar til Úkraínu hefðu verið stöðvaðar væri sú að gengið væri á birgðir Bandaríkjamanna. Greining á birgðastöðu hersins sýni fram á allt annað að sögn NBC.
Rússar sagðir nota efnavopn í Úkraínu í auknum mæli
Evrópskar leyniþjónustustofnanir segja að Rússar noti nú ólögleg efnavopn oftar í hernaði sínum í Úkraínu en áður og hiki ekki við að nota hættulegri efni. Þær telja að herða þurfi á refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna þess.
Engin árangur af símtalinu og fjórtán látnir eftir árás á Kænugarð
Fjórtán létust þegar Rússar gerðu drónaárás á Kænugarð í gær. Sprengingar heyrðust í borginni og nokkrir eldar kviknuðu í kjölfarið, meðal annars í íbúðabyggingum í nokkrum hverfum og í heilbrigðisstofnun í Holosiivskyi.
Danskur covid-samsærissinni bendlaður við rússneskan upplýsingahernað
Nafn dansks samsæriskenningasinna um kórónuveirufaraldurinn kemur fyrir í skjölum rússnesks sjóðs sem fjármagnar upplýsingahernað stjórnvalda í Kreml gegn Evrópu. Maðurinn hefur meðal annars boðið sig fram fyrir öfgahægriflokk og hlotið dóm fyrir að hóta ráðherra.
Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum
Forstjóri og fjármálastjóri dönsku málningarsamsteypunnar Flügger hafa verið ákærðir fyrir aðild að brotum á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Gerð var húsleit á heimilum þeirra sem og á skrifstofum samsteypunnar.
Flügger rannsakað fyrir brot á viðskiptaþvingunum
Tveir hafa verið handteknir í Danmörku en látnir lausir eftir skýrslutöku þar sem danski málningarrisinn Flügger er sagður vera undir rannsókn vegna meintra brota á viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi. Flügger, sem rekur meðal annars sex verslanir á Íslandi, neitar sök og segist hafa yfirgefið Rússland fyrir löngu, en Rússi sem gefur sig út fyrir að vera talsmaður fyrirtækisins hefur selt málningu þeirra víða um landið síðustu ár.
Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa
Volódimír Selenskí Úkraínuforseti og Alain Berset aðalritari Evrópuráðsins skrifuðu undir samkomulag um stofnun sérstaks dómstóls vegna árásarglæpa á hendur Úkraínu í Strassborg í dag.
Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist íhuga að láta Úkraínumenn fá fleiri háþróuð loftvarnarkerfi af gerðinni Patriot. Samt er óljóst hvort hann vilji selja þeim hergögnin eða gefa þau.
Óbreyttir borgarar féllu í árásum Rússa á úkraínskar borgir
Að minnsta kosti sextán óbreyttir borgarar eru sagðir hafa látist og hátt í hundrað til viðbótar særst í árásum Rússa á úkraínskar borgir síðasta sólarhringinn. Forseti Úkraínu freistar þess að fá bandamenn landsins til þess að veita því frekari hernaðaraðstoð á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem fer fram í dag.
Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir líklegustu sviðsmyndina í heimsmálunum að Íranar bregðist við sprengjuárás Bandaríkjamanna með árás og takmörkun á olíuflutningum. Erlingur segir sviðsmyndina neikvæða og það sé váleg þróun að ríki eins og Bandaríkin, Rússland og Ísrael telji sig geta beitt hervaldi án þess að þurfa að færa nokkur rök fyrir því.