

Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember.
Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður.
Kosninganefnd Íraks ákvað í morgun dagsetningu á fyrirhugaðar kosningar í landinu og var ákveðið að Írakar gangi að kjörborðinu þann 30. janúar næstkomandi. Mikil óöld ríkir í landinu og margir fréttaskýrendur hafa talið óvarlegt að boða til kosninga að svo komnu máli á meðan ekki hefur tekist að ná tökum á uppreisnarhópum víðs vegar um landið.
Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið.
Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum.
Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak.
Ríkustu þjóðum heims gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvort og hversu mikið af skuldum Íraka þær felli niður. Erlendar skuldir Íraka eru um 122 milljarðar króna og hafa þeir beðið um niðurfellingu á þeim þar sem byrðin sé að sliga landið og hindra eðlilega uppbyggingu.
Bandarískir hermenn vinna nú að því að koma aftur á vatni, rafmagni og öðrum nauðsynlegum þjónustuþáttum í lag í borginni Fallujah í Írak. Það gæti tekið tímann sinn því Fallujah er nánast í rúst eftir bardagana undanfarnar vikur. Bandaríkjamenn treysta sér ekki til þess að segja til um hvenær íbúarnir, sem flúðu bardagana, geti snúið aftur. </font />
Skæruliðar vopnaðir sjálfvirkum rifflum og sprengjuvörpum börðust við bandarískar og írakskar hersveitir í hverfum súnní-múslima í Bagdad í morgun. Að minnsta kosti sjö skæruliðar féllu og þrír lögreglumenn.
Talsmenn Bandaríkjahers segja að andspyrna í borginni Fallujah í Írak hafi nú verið brotin á bak aftur. Uppreisnarmenn láta þó enn til sín taka og hóta þeim ofbeldi sem taka þátt í boðuðum kosningum í janúar.
Herskár íslamskur hópur ógnar væntanlegum frambjóðendum og kjósendum í fyrirhuguðum kosningum í Írak í janúar. Hópurinn hótar því að hver sá múslimi sem bjóði sig fram í kosningum verði refsað í nafni guðs.
Í það minnsta sautján Írakar létust í gær vegna ofbeldisöldunnar sem riðið hefur yfir landið frá því að bandarískar og íraskar hersveitir réðust til atlögu í Falluja fyrir tæpum tveimur vikum. Sjö létust í sprengjuárásum á þjóðvegum nærri Samarra og Baiji.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að vissulega sé ágreiningur milli Breta og Frakka um réttmæti Íraksstríðsins en það sé bara ágreiningur.
Um sextíu íröskum lögregluþjónum var rænt þegar þeir sneru aftur til Íraks eftir að hafa fengið þjálfun í Jórdaníu.
Íraskir gíslatökumenn hafa myrt Margaret Hassan, stjórnanda hjálparsamtakanna CARE, samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera. Sjónvarpsstöðin sagðist í gær vera með myndbandsupptöku af morðinu undir höndum en birti hana ekki.
Bandaríski herinn er að rannsaka hvers vegna bandarískur hermaður skaut Íraka sem lá særður inni í mosku í Falluja.
Á annað þúsund bandarískir og íraskir hermenn réðust gegn vígamönnum í Mosul til að koma á kyrrð í borginni. Vígamenn réðust á lögreglustöðvar í borginni meðan athygli Bandaríkjahers beindist að mestu að Falluja og náðu lögreglustöðvunum á sitt vald.
Bandarískar herþotur vörpuðu sprengjum á vígamenn í Baquba og Falluja í gær þar sem harðir bardagar geisuðu milli vígamanna annars vegar og bandarískra og íraskra hermanna hins vegar. Tugir manna féllu í bardögum sem hafa breiðst út um Írak í kjölfar árásarinnar á vígamenn í Falluja.<font face="Helv" color="#008080"></font>
Eftir tæplega vikulanga bardaga segjast bandarískir og íraskir hermenn í Falluja í Írak hafa náð stjórn á næstum allri borginni, en hún var áður undir yfirráðum skæruliða.
Sprengjuregnið í borginni Fallujah í Írak hófst á ný snemma í morgun eftir nokkur hlé þar í nótt. Talsmenn Bandaríkjahers segja borgina að mestu á valdi hersetuliðsins en andspyrna er þó enn töluverð á nokkrum stöðum í borginni þar sem skæruliðar og hryðjuverkamenn halda sig.
Bandarískar herflugvélar og stórskotalið gerðu árásir á suðurhluta borgarinnar Falluja í gær. Þar er talið að meginkjarni íraskra uppreisnarmanna haldi sig og reynir bandaríski herinn að þrengja að þeim.
Hópur íslamskra öfgamanna, sem kallar sig Ansar al-Jihad, greindi frá því í yfirlýsingu sem þeir birtu á Netinu fyrir stundu að þeir héldu þremur ættingjum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, í gíslingu. Hópurinn hótar að drepa fólkið innan tveggja sólarhringa, verði árásum bandarískra og írakskra hersveita á Fallujah ekki hætt.
Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni.
Sprengjum hefur rignt yfir Fallujah í Írak í nótt en áhlaup Bandaríkjahers og írakskra hersveita á borgina stendur þar nú sem hæst. Ekki færri en tíu bandarískir hermenn hafa fallið í bardögunum.
Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu.
Fjörutíu og fimm írakskir löggæslumenn féllu í árásum skæruliða skammt frá Bagdad í morgun. Harðir bardagar geisa í Fallujah og hafa bandarískar hersveitir komið sér fyrir í hjarta borgarinnar.
Harðir bardagar geisuðu í Falluja annan daginn í röð. Herferðin gegn vígamönnum þar hefur valdið úrsögnum úr írösku bráðabirgðastjórninni. Tugþúsundir óbreyttra borgara eru enn í borginni og halda sig innandyra. </font /></b />
Harðir bardagar geisa nú í borginni Fallujah í Írak. Hátt í fimmtán þúsund hermenn Bandaríkjamanna og Íraka héldu í nótt áfram sókn sinni inn í borgina og mæta þar harðri andstöðu. Árásinni er beint gegn uppreisnarmönnum úr röðum súnníta en talið er að nokkur þúsund þeirra séu í Fallujah.
Bandaríkjamenn og íraskir þjóðvarðliðar hafa hafið stórárás á borgina Fallujah og þar geisa nú harðir bardagar. Flestir borgarbúa eru flúnir. Talið er að um þrjátíu þúsund hermenn taki þátt í árásinni.
Bandarískir og íraskir hermenn brutu sér leið inn í Falluja í gær þegar þeir hófu stórsókn gegn vígamönnum í borginni. Harðir bardagar geisuðu fram eftir degi. Tugir vígamanna og nokkur fjöldi íbúa lést </font /></b />