
Tímamót

„Já, líklega hef ég verið undrabarn“
„Mér þætti vænt um ef flestir sjái sér fært að eiga þetta síðdegisboð með mér. Ég reiknaði aldrei með því að verða svona gamall. En það er gaman að líta yfir ævina. Og vera ekki alveg úti á þekju,“ segir Friðrik Ólafsson stórmeistari og lögfræðingur.

„Mæli rosalega mikið með því að giftast þeim sem maður elskar“
Hjónin og listaparið Ellen Margrét Bæhrenz og Arnmundur Ernst Backman gengu í hjónaband við hátíðlega athöfn í Nesvík á Kjalarnesi þann 21. desember síðastliðinn í návist sinna nánustu. Blaðamaður ræddi við Ellen um ástina og stóra daginn.

Ástfangin í eitt ár og flutt inn saman
Lífið virðist leika við kærustuparið, Freyju Haraldsdóttuir, baráttukonu og doktorsnema við menntavísindasvið Háskóla Íslands og David Agyenim Boateng, nemanda við Háskóla Íslands. Parið fagnaði árs sambandsafmæli sínu í byrjun október og er nú flutt inn saman

Dagur kveður eftir 23 ár í borginni
Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri sat sinn síðasta borgarstjórnarfund í dag þar sem hann bauðst lausnar frá störfum. Dagur varð borgarfulltrúi fyrst árið 2002, og hefur verið borgarstjóri eða formaður borgarráðs undanfarin fimmtán ár.

Skóari skellir í lás á Grettisgötunni
Skóvinnustofunni í Reykjavík, sem áður gekk undir nafninu Þráinn skóari, verður lokað fyrir mánaðamót. Þar með hverfur síðasti starfandi skósmiðurinn í miðborg Reykjavíkur á braut.

Heiðar Logi og Anný orðin foreldrar
Heiðar Logi Elíasson, brimbrettakappi og smiður, og kærasta hans Anný Björk Arnardóttir eignuðust stúlku þann 18. desember síðastliðinn. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Fimmtán árum fagnað í sólinni
Linda Benediktsdóttir, uppskriftahöfundur og matgæðingur, og eiginmaður hennar Ragnar Einarsson,forstöðumaður færsluhirðingar Landsbankans, fagna fimmtán ára sambandsafmæli sínu í dag.

Ragna Sigurðardóttir á von á barni
Ragna Sigurðardóttir nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar á von á barni með manni sínum Árna Steini.

Dóttir Ernu Mistar og Þorleifs Arnar fædd
Dóttir Ernu Mistar Yamagata listakonu og Þorleifs Arnar Arnarssonar er nú fædd. Parið greinir frá því á Instagram í dag. „Bjóðum þessa fögru dömu velkomna í heiminn,“ segir Þorleifur við færsluna.

Síðasti dagur Dags í borgarráði í dag
Dagur B. Eggertsson, nýr þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, sat sinn síðasta borgarráðsfund í morgun. Hann hefur starfað á vettvangi ráðsins frá árinu 2003, og haft þar marga hatta.

Setja börnin í forgang og slíta hjónabandinu
Bandaríska leik-og söngkonan Jessica Simpson og eiginmaður hennar, Eric Johnson fyrrverandi NFL-leikmaður, eru að skilja eftir tíu ára hjónaband. Hún segir að ákvörðunin hafi verið tekin með hagsmuni barna þeirra í huga.

Ár liðið frá því hraun rann inn í Grindavík
Ár er liðið frá því hraun rann inn í Grindavík þann 14. janúar 2024 í öðru eldgosi hrinunnar við Sundhnúksgíga. Gosið hófst um áttaleytið um morguninn og náði hraun fyrsta húsinu í Efrahópi um fimm tímum síðar.

Hætta rekstri Súfistans í Hafnarfirði
Rekstri kaffihússins Súfistans í Strandgötu í Hafnarfirði verður hætt á föstudaginn. Kaffihúsið var stofnað árið 1994 af hjónunum Birgi Finnbogasyni og Hrafnhildi Blomsterberg og hefur verið rekið af þeim og fjölskyldu þeirra frá upphafi.

Sonur Gretu Salomé og Elvars kominn með nafn
Sonur hjónanna, Gretu Salóme Stefánsdóttur tónlistarkonu og Elvars Þórs Karlssonar, var skírður við fallega athöfn liðna helgi. Drengurinn fékk nafnið Sólmundur. Frá þessu greinir Greta í færslu á Instagram.

Stjörnulífið: Framlengdi jólin í Paradís og stórafmæli á Tenerife
Það var nóg um að vera í vikunni sem leið. Helstu stjörnur landsins virtust flestar vera samankomnar á Tenerife þar sem stórafmælum var fagnað vel og innilega. Aðrar stjörnur lengdu jólin og svo mætti lengi telja.

Fjölmenni í fimmtugsafmæli Ásgeirs Kolbeins á Tenerife
Gleðin var við völd og sólin skein þegar Ásgeir Kolbeinsson fagnaði fimmtugsafmæli sínu á Adeje í Tenerife í gær. Fjöldi fólks mætti í glæsilega villu sem tekin hafði verið á leigu og meira að segja Elvis Presley kíkti í heimsókn.

Skilnaður eftir tuttugu ára samband
Leikkonan, Jessica Alba og eiginmaður hennar, Cash Warren kvikmyndaframleiðandi, eru að skilja eftir sextán ára hjónaband. Hjónin kynntust árið 2004.

Dóttir Anítu Briem og Hafþórs komin með nafn
Dóttir Anítu Briem leikkonu og Hafþórs Waldorff er komin með nafn. Stúlkunni var gefið nafnið Lúna. Stúlkan kom í heiminn þann 13. nóvember síðastliðinn og er þeirra fyrst barn saman. Fyrir á Aníta eina dóttur.

Sigrún Ósk kveður Stöð 2
Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur ákveðið að hætta störfum hjá Stöð 2 eftir sextán ára starf. Hún mun þó áfram vinna að nýrri þáttaröð sem fer í loftið á Stöð 2 eftir páska.

Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi
Jón Garðar Jörundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrir starfsemi alþjóðlega flutningafyrirtækisins Kuehne+Nagel á Íslandi.

Laufey ástfangin í eitt ár
Stjórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir og kærastinn hennar Charlie Christie, starfsmaður útgáfufyrirtækisins Interscope Records, fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu í gær. Í tilefni tímamótanna birti parið fallegar myndir af þeim saman í vetrardýrðinni á Íslandi.

„En við losnum aldrei við Jón Gunnarsson“
Óhætt er að segja að kveðjum hafi rignt yfir Bjarna Benediktsson eftir að hann tilkynnti í gær að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur sem formaður Sjálfstæðisflokksins og að hann hyggðist ekki taka sæti á þingi. Ýmsir fyrrverandi samherjar og andstæðingar hans hafa lagt orð í belg.

Segir Gunna hafa verið skipstjórann í brúnni
Björgvin Halldórsson segir að hæfileikar félaga hans Gunna Þórðarsonar hafi komið snemma í ljós. Gunni hafi verið skipstjórinn í brúnni í stúdíóinu og segist Björgvin hafa lært mikið af honum.

Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum.

Eva og Kári ætla að nýta hverja stund saman
Eva Bryngeirsdóttir jógakennari og eiginkona Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, segir að þau Kári muni nýta hverja einustu stund sem þau fái saman. Frá þessu greinir hún í hjartnæmri færslu á samfélagsmiðlum.

Stjörnulífið: Áramót, kossaflens og þakklátar stjörnur
Nýtt ár er gengið í garð 2025 og virðist það falla vel í kramið hjá stjörnum landsins ef marka má færslur þeirra á samfélagsmiðlum síðastliðna daga. Tímamótatilkynningar, heilsusamleg markmið og þakklætispistlar þar sem farið er yfir liðið ár eru áberandi ásamt fallegum myndum.

Stjörnufans á afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar
Mikill stjörnufans var á 80 ára afmælistónleikum Gunnars Þórðarsonar, eins ástsælasta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fóru fram í gær við góðar undirtektir.

Kynntist eiginkonunni á swingklúbbi
Það eru fáir sem kunna að lifa lífinu eins og Atli Steinn Guðmundsson blaðamaður Morgunblaðsins sem um árabil hefur fært Íslendingum magnaðar fréttaskýringar frá Noregi þar sem hann er búsettur. Atli gifti sig í síðustu viku við Miklagljúfur en það sem vakti hve mesta athygli við ráðahaginn var að kærasta þeirra hjóna gaf þau saman.

Mætti á undan Katrínu Tönju til landsins og kom henni á óvart
Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, og Brooks Laich, fyrrverandi hokkíleikmaður, trúlofuðu sig þann 16. desember síðastliðinn, eftir þaulskipulagt bónorð Brooks. Katrín deildi trúlofunarsögunni í einlægri færslu með fylgjendum sínum á Instagram.

Aron Kristinn og Lára eiga von á barni
Tónlistarmaðurinn Aron Kristinn Jónasson og viðskiptafræðingurinn Lára Portal eiga von á sínu fyrsta barni. Frá þessu greinir Aron í færslu á Instagram.