
Svartfjallaland

Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi
Karlmaður á fimmtugsaldri sem skaut tólf manns til bana í smábæ í Svartfjallalandi á nýársdag svipti sig lífi eftir að lögreglumenn króuðu hann af. Forsætisráðherra landsins segir til greina koma að banna skotvopn í landinu í kjölfar fjöldamorðsins.

Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað
Að minnsta kosti tíu eru látnir, þar á meðal tvö börn, eftir skotárás á veitingastað í borginni Cetinje í vesturhluta Svartfjallalands í kvöld. Lögreglan leitar enn árásarmannsins.

Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni
Hópur Búlgara sem bjó í Bretlandi njósnaði fyrir Rússa í tæp þrjú ár og á þeim tímabili er hópurinn sagður hafa sett líf margra í hættu. Hópurinn stundaði njósnir víðsvegar um Evrópu, þar sem fólkið safnaði upplýsingum um fólk fyrir Rússa og ræddi meðal annars að myrða búlgarskan blaðamann sem kom að því að svipta hulunni af banatilræði rússneskra útsendara á Sergei Skripal.

Hafa lagt extra mikið í greiningu á ákveðnum þætti í leik Íslands
Lið Svartfellinga hefur gefið föstu leikatriðum Íslands gaum fyrir leik liðanna í Niksic í Þjóðadeild UEFA í dag. Þjálfari liðsins segir liðsheild íslenska liðsins einn af styrkleikum þess.

Pólitískur nýliði kosinn forseti í Svartfjallalandi
Hagfræðingurinn Jakov Milatovic, sem er nýliði á hinu pólitíska sviði, var kjörinn forseti Svartfjallalands í forsetakosningum sem fram fóru í landinu í gær.

Hætta við þátttöku í Eurovision vegna hás kostnaðar
Svartfellingar koma ekki til með að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Að sögn svartfellska ríkissjónvarpsins er það vegna hás kostnaðar sem fylgir þátttöku í keppninni.

Skaut ellefu manns til bana
Karlmaður var í dag skotinn til bana af lögreglu í borginni Cetinje í Svartfjallalandi eftir að hafa sjálfur myrt ellefu manns. Sex aðrir eru slasaðir eftir skotárásina.

Streymdu til Serbíu í ókeypis bólusetningu
Þúsundir streymdu frá Bosníu og Hersegóvínu, Svartfjallalandi og Norður-Makedóníu yfir landamærin til nágranna sinna í Serbíu í dag þar sem yfirvöld bjóða upp á ókeypis bólusetningu yfir helgina.

Reiðubúin að fara í stjórnarandstöðu eftir 30 ára valdatíð
Lýðræðislegi sósíalistaflokkurinn í Svartfjallalandi (DPS) er reiðubúinn að fara í stjórnarandstöðu eftir að hafa verið við völd í landinu í um þrjátíu ár. Þingkosningar fóru fram í landinu um liðna helgi.

Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.

Telja rússneska leynisveit reyna að valda óstöðugleika í Evrópu
Vestrænar leyniþjónustur hafa tengt fjórar aðgerðir við sömu rússnesku leyniþjónustusveitina, þar á meðal taugaeiturstilræðið á Englandi í fyrra.

Vissu ekkert um Svartfjallaland
Anna Leif Elídóttir flutti til Svartfjallalands í byrjun júlí. Hún er nú stödd á Íslandi en myndlistarsýning með verkum hennar er á byggðasafninu á Akranesi.

Deilir ást sinni á Hatara með heimsbyggðinni
„Ég ákvað að búa til hóp þar sem aðdáendur Hatara gætu komið saman og deilt efni sín á milli, kynnt tónlist þeirra fyrir hvert öðru og hjálpað þeim að vinna Eurovision“

Fjórtán dæmdir fyrir valdaránstilraun í Svartfjallalandi
Dómstóll í Svartfjallalandi hefur dæmt fjórtán manns, þar af tvo stjórnarandstöðuþingmenn, í fangelsi vegna tilraunar til valdaráns árið 2016.

Óveður geisar í Svartfjallalandi
Óveður hefur herjað á strandlengju Svartfjallalands, veðrið hefur valdið miklum skemmdum á byggingum.

Árás á blaðamann skaði umsókn Svartfellinga
Skotárásin sem gerð var á þriðjudag á Oliveru Lakic, 49 ára blaðamann sem skrifar um skipulagða glæpastarfsemi í dagblaðið Vijesti, hefur teflt umsókn Svartfjallalands um aðild að Evrópusambandinu í hættu.

Djukanovic lýsti yfir sigri í Svartfjallalandi
Djukanovic, sem er formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svartfjallalandi, hefur verið leiðandi afl í svartfellskum stjórnmálum um nokkuð skeið.

Sprengju kastað í bandarískt sendiráð
Ekki er vitað hvað vakti fyrir árásarmanninum.

Gaf lítið fyrir gagnrýni íslensku hræsnaranna
Filippseyjar taka lítið mark á ríkjum sem framkvæma fóstureyðingar í jafn miklum mæli og Íslendingar.

Miklir skógareldar við Adríahafið
Vel hefur tekist að ráða við skógarelda sem ógnað hafa borginni Split, mikilvægri hafnarborg við Adríahaf, undanfarna daga.

Pólverjar lofa Trump fagnandi stuðningsmönnum
Til stendur að flytja stuðningsmenn Trump með rútum til að hlusta á ræðu hans.

Trump ruddist fram fyrir ráðherra til að komast í mynd
Í myndbandi sem deilt hefur verið á alvefinn má sjá Trump ryðjast fram hjá forsætisráðherra Svartfjallalands, Dusko Markovic, í þeim tilgangi að komast fram fyrir hann og þannig í meiri nálægð við fjölmiðla.